Bændablaðið - 07.04.2022, Síða 61
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 61
páskadagur, en þá kom í ljós að lík
Jesú fannst ekki í gröfinni og trúðu
nærstaddir því að líklegast hefði
hann risið upp frá dauðum.
Fjörutíu dögum síðar var enn
fremur talið að nú hlyti Jesús að hafa
stigið upp til himna og var sá dagur
nefndur uppstigningardagur. Er sá
dagur tíu dögum fyrir aðra kristna
hátíð, hvítasunnuna, sem er talin
marka þann dag er heilagur andi kom
yfir lærisveina og aðra fylgjendur
Jesú, er átti að verða þeim og öðrum
haldreipi í lífinu.
Hafði Jesús séð þetta fyrir er
hann var meðal lifenda
og hvatti eftirlifendur
sína til dáða er kom að
því að segja sögu hans og
rækta þá trú er hann hafði
boðað. Fyrsti sunnudagur
eftir hvítasunnu kallast
svo trínitatis, eða
þrenningarhátíð, hátíðis-
dagur til heiðurs heilagri
þrenningu – birtingu Guðs
sem skapara, Jesú og
heilags anda, fyrirskipaður
af Jóhannesi páfa 22. á 14. öld.
Páskahérar í hreiðurgerð
En aftur að sætindum. Nú myndu
margir telja að súkkulaðieggin
sem við Íslendingar þekkjum svo
vel og njótum komi upphaflega frá
súkkulaðihænum.
Raunin er ekki sú heldur
voru páskaegg lengi talin afurð
páskakanínunnar/hérans sem fer
á stjá um þetta leyti árs og var til
að mynda auglýstur í dagblöðum
hérlendis um áraskeið sem
sætindaglaður vorboði. Hefur verið í
umræðunni að þær upplýsingar megi
rekja til Þjóðverja sem státuðu sig af
hinum eina sanna Oster-hase, þótt
sumir telji hann augljóslega ekki
héra heldur kanínu. Annars eru
bæði dýr auðvitað jafnvinsæl enda
skiptir víst ekki höfuðmáli hvaðan
glaðningurinn berst.
Segir sagan þó að tilvist
páskahérans sé upprunnin í
Þýskalandi þar sem hann brá sér í
hlutverk Grýlu eins og við þekkjum
hana best – og máttu þá börn sitja á
strák sínum ef þau sáu fyrir sér að
fá eitthvað gott í munninn.
Nú, geta hans – eða kanína – til
að verpa súkkulaðieggjum er talin
koma frá þeirri staðreynd að þessar
dýrategundir standa í hreiðurgerð
þegar þau eiga von á ungum,
sem svo skjóta upp kollinum í
hreiðrunum. Enginn hefur auðvitað
smakkað héra- eða kanínuegg og
því upplagt að ímynda sér að þeir
verpi súkkulaðieggjum sem þeir
deili svo gjarnan um páskaleytið
eftir vel lukkað súkkulaðivarp í
hreiðrum sínum.
Hvað varðar hugmyndir um
páskahéra versus páskakanínu er
rétt að minnast á þýskættuðu vor-
og frjósemisgyðjuna Ostara í því
samhengi. Nokkrar sögur má finna
af henni og ekki allar þær sömu.
Fyrsta vitneskja um hana er talin
skjóta uppi kollinum í frumkristinni
heimild, einu af ritum enska
kirkjumannsins Bede, en þar er
hún nefnd Eostre og er nafn hennar
talið afbökun á enska orðinu Easter
eða páskar. Eostre er gyðja vors
og frjósemis auk þess að tengjast
anda kanínunnar sem af mörgum
var lengi talin tvíkynja vegna þess
hve hún fjölgar sér fljótt. Samkvæmt
listfræðum gengu fyrstu vestrænu
kristnu mennirnir meira að segja svo
langt að telja kanínur geta fjölgað
sér án snertingar og tengdu kanínuna
hinni óspjölluðu Maríu mey – og má
því finna ýmis málverk, bækur og
annað þar sem María og kanína eru
í forgrunni.
Sumir vilja meina að sögu
Ostara sé alls ekki að finna í kristinni
trúarbragðafræði heldur fyrst og
fremst í þýskum þjóðsögum og þá
heiðinni trú. Hún hafi meðal annars
breytt hérum í fugla og þeir launað
henni með því að verpa marglitum
skrauteggjum sem hún notaði
við hátíðarhöld tileinkuð vorinu.
Þar sem sagan er heiðin, hentaði
bandarískættuðum bókstafstrúuðum
almenningi ekki að gleðja sjálfa sig
eða aðra með henni sem skyldi og
breyttu því héranum í kanínu.
Því er páskakanínan þekktari á
þeim slóðum á meðan hérinn heldur
velli annars staðar.
Páskaegg á öll borð!
Svona fyrir vantrúaða á héra/
kanínuvarp, komu páskaegg á borð
Íslendinga í kringum aldamótin
1900, þá innflutt, fyllt sælgætisegg
eða úr súkkulaði – þóttu mikið
nýnæmi og nokkuð var gert veður
yfir „rándýrum súkkulaðieggjum sem
eru á boðstólum“ á síðum dagblaða.
Hérlendis var Björnsbakarí víst fyrst
til að framleiða páskaegg sem gerð
voru úr súkkulaði eða marsípani, í
kringum 1920, og ekki leið á löngu
þar til mátti sjá slíkt hið sama á
boðstólum hjá Nóa & Síríusi, svo og
hjá sælgætisgerðinni Víkingi sem þá
var til. Árið 1966 hóf sælgætisgerðin
Móna þá nýbreytni að framleiða
einnig súkkulaðihænur og unga sem
í var sett sælgæti á borð við það sem
mátti finna í eggjunum. Í dag eru
bæði Víkingur og Móna komin undir
hatt sælgætisgerðarinnar Freyju sem
landsmenn þekkja vel.
Sælgætisgerðin Góa var svo
stofnuð í ársbyrjun 1968 og má finna
hjá þeim eina hvíta súkkulaðiegg
landsins, sem þykir jafn heillandi í
munni og á að horfa.
Nú til dags er framleiðsla á
páskaeggjum í raun vertíð þar
sem hundruð tonna af súkkulaði
eru notuð, en um er að ræða á
aðra milljón eggja ef ekki meira.
Sannarlega nóg á íslenskan markað
myndi maður ætla. Gleðilega páska! Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
ÓMISSANDI Í SAUÐBURÐINN
LAMBBOOST OG FLORYBOOST eru fæðubótarefni sem verka styrkjandi og
efla ónæmiskerfi unglamba. 100% náttúrulegar vörur sem löngu hafa sannað sig.
Auðvelt í notkun, þarf ekki að blanda og kemur með íslenskum leiðbeiningum.
Nánari upplýsingar hjá dýralæknum og umboðsaðila www.dyraheilsa.is
Lambboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Heilbrigð þarmaflóra – Mjólkursýrugerlar
Eflir ónæmiskerfið – Broddur
Örvandi – Jurtakraftur (kóla, gúarana)
Eykur líkamlegan styrk – Flókin samsetning vítamína og járns
Eykur orku – Nauðsynlegar fitusýrur, glúkósi, þríglyseríðar
LAMBBOOST
FLORYBOOST
Floryboost stuðlar að jafnvægi þarmaflórunnar og
saltbúskap líkamans þegar meltingartruflanir gera vart við sig.
Verndar þarmana – Viðarkol og leir sem draga í sig eiturefni
Kemur jafnvægi á saltbúskap líkamans – Natríumklóríð,
magnesíumklóríð, kalíumklóríð og fosföt
Eykur orku – Dextrósi
Styrkir erta slímhúð – Nauðsynlegar olíur unnar m.a. úr rósmaríni,
cajeput, timótei og thymol
Súkkulaðihænur og ungar frá Sælgætisgerðinni
Mónu árið 1966. Mynd / timarit.is
Hin óspjallaða María mey, sonur hennar, Jesús, ásamt kanínu í forgrunni.
Málverk eftir Titian (Tiziano Vecellio). Mynd / wikipedia.com