Vísbending


Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 2

Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 2
EFNISYFIRLIT „Ég tók aldrei neina áhættu“ ������������������������������������������������� 4 – viðtal við Davíð Helgason Sókn á þremur vígstöðvum ������������������������������������������������� 10 – yfirlit yfir fjármögnun sprotafyrirtækja Af kynjahalla í fjárfestingum til nýsköpunar ������������������������ 12 – eftir Steinunni Bragadóttur og Finnborgu S� Steinþórsdóttur Um auðlindarentu og verðmætasköpun �������������������������������� 14 – eftir Gylfa Zoega Aðgengi að fjármagni fyrir sprotafyrirtæki á Íslandi �������������� 16 – eftir Svönu Gunnarsdóttur Hjartslátturinn frá King County ����������������������������������������� 18 – eftir Magnús Halldórsson Heimur í nýsköpun, ofurkraftar og áratugur aðgerða ������������ 22 – eftir Hrund Gunnsteinsdóttur og Tómas N� Möller Stafræn landamæri eru alltaf opin ��������������������������������������� 26 – eftir Helgu Valfells Fulltrúar stjórnmálaflokka svara ����������������������������������������� 30 – Hver er besta leiðin til að efla vöxt nýsköpunar? Fjórða stoðin og efling nýsköpunar �������������������������������������� 32 – etir Sigríði Mogensen Nýsköpunarmiðstöð Íslands – In Memoriam ������������������������ 36 – eftir Jónas Atla Gunnarsson Styður samkeppnisstefna við nýsköpun? �������������������������������� 38 – Eftir Val Þráinsson Er nýsköpun ekki lengur töff? ���������������������������������������������� 42 – eftir Jónas Atla Gunnarsson KÆRU LESENDUR Í fyrra ákváðum við hjá Vísbendingu að endurvekja gamla hefð og gefa út veglegt aukablað um jólin. Svo vel var tekið í þá útgáfu að okkur fannst góð hugmynd að endurtaka leikinn í maí með sérstöku vorblaði. Í þetta skiptið er sjónum beint sérstaklega að stöðu nýsköpunar, sprotastarfsemi og tæknifyrirtækja hérlendis og hugsanlegum leiðum til að bæta hana. Ágætlega hefur tekist til við að verja nýsköp- unarumhverfið í óvissunni sem fylgdi heimsfaraldr- inum á síðasta ári. Enginn samdráttur virðist hafa orðið í fjármögnun sprotafyrirtækja, þvert á móti lítur út fyrir að peningurinn sem þau fengu í fyrra hafi verið vel yfir meðaltali síðustu ára. En hvernig ætti ríkið að stuðla að nýsköpun og áframhaldandi vexti sprotafyrirtækja? Í þessu blaði nefna sérfræðingar úr ýmsum áttum fjölmargar leiðir til þess, auk þess sem lagt er mat á nýlegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Einnig er bent á mikilvægi þess að styðja við frumkvöðlastarfsemi þar sem stórar áskor- anir bíða okkar í loftslagsmálum í náinni framtíð. Ýmislegt bendir til góðra ára fram undan hjá tækni- fyrirtækjum. Með heimsfaraldrinum og þörfinni til að geta unnið heima hjá sér hefur almenn tækniþekk- ing og sveigjanleiki á vinnustöðum stóraukist. Með þessum breytingum er líklegt að fólk muni reiða sig meira á ýmsar tæknilausnir í sínu daglega lífi en það hefur áður gert. Til viðbótar við breytta vinnuhegðun gera flestar spár ráð fyrir því að öflugt hagvaxtarskeið bíði okkar þegar faraldrinum lýkur. Í slíku umhverfi er ekki ósennilegt að fjárfesting haldist mikil og fyrirtæki sem þróa hugmyndir sínar áfram geti því náð að fjármagna sig með öruggum hætti. Gangi spárnar eftir eru miklir möguleikar til staðar fyrir íslensk sprotafyrirtæki. Þessir möguleikar verða þó aðeins að veruleika ef ríkið og aðrir fjárfestar styðja við vöxt þeirra með réttum hætti. Með greiðum aðgangi að mannviti og fjármagni gæti vöxtur slíkra fyrirtækja hjálpað til við að koma Íslandi úr núverandi efna- hagssamdrætti og stuðlað að hagsæld í framtíðinni. Jónas Atli Gunnarsson ritstjóri Vísbendingar Ritstjóri: Jónas Atli Gunnarsson Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir Útgefandi: Kjarninn miðlar ehf., Fiskislóð 31 B, 101 Reykjavík Sími: 551 0708 Net fang: visbending@kjarninn.is Umbrot: Ágústa Kristín Bjarnadóttir Forsíðumynd: Saga Sig. Sala auglýsinga: Guðni Einarsson, sala@kjarninn.is Prentun: Prentmet Oddi Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.