Vísbending


Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 24

Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 24
24 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1 LEIÐARVÍSAR, REGLUR OG LÖG Gerð Parísarsamkomulagsins10 um aðgerðir í loftslags- málum 2015 og samþykkt heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun11 eru dæmi um átak alþjóða- samfélagsins til að stuðla að sjálfbærri þróun. Löggjöf Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins þróast hratt í átt að aðgerðum gegn grænþvotti og að rekstur verði sjálfbærari12. Í þessu sambandi má nefna áætlun Evrópu- sambandsins um sjálfbæra þróun, á ensku EU Green 10 https://unfccc�int/process-and-meetings/the-paris-agreement/the-paris-agreement 11 https://sdgs�un�org/goals 12 https://ust�is/graent-samfelag/graenn-lifstill/vottanir-og-adrar-merkingar/graenthvottur/ 13 https://ec�europa�eu/info/strategy/priorities-2019-2024/european-green-deal_en 14 Financing the circular economy� Capturing the opportunity� https://www�ellenmacarthurfoundation�org/assets/downloads/Financing-the-circular-economy�pdf 15 https://www�ncdc�noaa�gov/sotc/global/202013 Deal13. Þar kemur skýrt fram að loftslagsmarkmiðum verði aldrei náð nema við förum úr línulegu hagkerfi yfir í hringrásarhagkerfi. HRINGRÁSAR­HVAÐ? Í línulegu hagkerfi er hráefni að mestu unnið úr náttúr- unni, notað og fargað eða endurnýtt að hluta. Aðferðafræði hringrásarhagkerfis byggir hins vegar á því að hanna vöru þannig að hún nýtist lengur. Við lok líftíma hennar megi svo endurnýta hráefni að fullu eða skila aftur í hringrás náttúrunnar. Hringrásarhagkerfið er forsenda þess að við getum viðhaldið neyslu og lífsgæðum í lokuðu vistkerfi sem jörðin okkar er. Frá upphafi árs 2020 hafa sjóðir, sem fjárfesta í skráðum hlutafélögum sem uppfylla að hluta eða að fullu kröfur hringrásarhagkerfisins, sexfaldast 14. Vaxið úr 0,3 í rúma 2 milljarða Bandaríkjadala. Í skýrslu MacEllen stofn- unarinnar um fjármögnun á hringrásarhagkerfinu eru færð rök fyrir því að hringrásarhagkerfið skapi fjölmörg viðskiptatækifæri fyrir nýjan og sjálfbærari hagvöxt. Á HEIMASLÓÐIR Árið 2020 var annað heitasta ár síðan mælingar hófust15. Tíu heitustu árin í Evrópu frá upphafi mælinga voru Ljósmynd: Pexels

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.