Vísbending


Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 23

Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 23
23V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1 fyrir fyrirtæki og fjárfesta að laga sig að breyttri þróun hvað varðar óbeinan umhverfiskostnað. RAUNSÆI OG NÝSKÖPUN Í myndbandsupptöku sem Greta Thunberg6 dreifði á samfélagsmiðlum í tilefni loftslagsfundarins, blés hún á yfirlýsingar um markmiðin. Sagði þau ófullnægjandi og gölluð. „Við erum enn óralangt frá því að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins, sem 197 ríki skrifuðu undir, um að hlýnun fari ekki yfir 1,5 gráðu (m.v. upphaf iðnbyltingar), jafnvel þegar við tökum þessi nýju markmið inn í myndina.“ Faith Birol, forstjóri Alþjóðlegu Orkumálastofnunar- innar (IEA), fagnaði því að yfirlýstar skuldbindingar við loftslagsaðgerðir hafi aldrei verið meiri, en sagði aðalmálið vera framkvæmdina. „Tölfræðin fer ekki saman við orðin eins og staðan er núna – bilið milli markmiða og árangurs er að breikka.“ Mælingar á losun CO2 sýna að í ár verði aukningin næstmest frá upphafi mælinga. Birol sagði tilætlaðan árangur grundvallast að miklu á þróun tækni sem væri ekki enn tilbúin fyrir markað. „Hafið það á hreinu – þetta kallar á ofurkrafta7,“ sagði Birol. 6 https://twitter�com/GretaThunberg/status/1385303013376598020 7 https://www�iea�org/news/executive-director-speech-at-the-leaders-summit-on-climate 8 https://climate�nasa�gov/vital-signs/carbon-dioxide/ 9 https://www�unep�org/interactive/emissions-gap-report/2019/ ALVÖRU ÓGN VIÐ TILVIST OKKAR? Myndin hér að ofan frá NASA8 segir meira en mörg orð. Síðastliðin 800.000 ár hefur magn CO2 í lofthjúpnum sveiflast mjög. Hitastig jarðar sveiflast nokkurn veginn í takt við það, með smá töf þó. Fyrir 10.000 árum náði hitastig jafnvægi á um einnar gráðu bili. Á þeim tíma þró- uðust samfélög manna. Síðasta stóra skrefið í þeirri þróun var iðnbyltingin. Upp úr 1950 sjáum við svo afleiðingar athafna okkar á samfélög og vistkerfi. Aukningin er úr takti við jafnvægið sem ríkti síðustu 10.000 ár. Slík frávik hringja viðvörunarbjöllum á ótal sviðum. Hlýnun er beintengd við magn gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu eins og myndin til hægri sýnir (úr bók Bill Gates, How to Avoid a Climate Disaster) og hefur aukist stöðugt frá byrjun iðnbyltingar. Í skýrslu Umhverfisstofn- unar Sameinuðu þjóðanna, UNEP, segir að við séum á síðasta séns til að lágmarka hlýnun við 1,5 gráðu9. Iðnbyltingin færði okkur fordæmalausa velmegun en því miður byggir hún ekki á sjálfbærum forsendum. Í dag er tími á nýja iðnbyltingu byggða á sjálf bærum forsendum og róttækum breytingum. C02-ÚTBLÁSTUR SÍÐUSTU 800 ÞÚSUND ÁRIN

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.