Vísbending


Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 16

Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 16
16 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1 AÐGENGI AÐ FJÁRMAGNI FYRIR SPROTAFYRIRTÆKI Á ÍSLANDI Viðhorf til nýsköpunarumhverfisins á Íslandi hefur gjörbreyst síðasta áratuginn. Þar má helst nefna að hugarfarið gagnvart nýsköpun er orðið allt annað í kjölfar meiri þekkingar og er fólk almennt farið að gera sér betur grein fyrir mikil- vægi hennar fyrir samfélagið í heild. Það er kominn meiri skilningur á að nýsköpun er langhlaup en ekki spretthlaup og er ekki lengur talað um tapað fé heldur fjárfestingu í reynslu og þekkingu sem fæst við misheppnaða tilraun í rekstri nýsköpunarfyrirtækja. Þetta er oft dýrmætasta fjárfesting til framtíðar og leiðir oftar en ekki af sér fjölda vel heppnaðra fyrirtækja sem tekið getur mörg ár eða áratugi að skila þeim árangri sem sóst er eftir, bæði hvað varðar einstök fyrirtæki og nýsköpunarumhverfið í heild sinni. Til að þessi fyrirtæki geti orðið að veruleika þá þarf auðvitað meira en rétt viðhorf og skilning. Markaðs- aðgengi íslenskra fyrirtækja hefur gjörbreyst með þeim tæknibreytingum sem hafa átt sér stað og hafa þau nú alla burði til að geta orðið alþjóðleg fyrirtæki leiðandi á sínu sviði svo framarlega sem lagaumgjarðir og innviðir séu með þeim hætti að þau geti það sem og aðgengi og því fjármagni sem til þarf. FJÁRMÖGNUN SPROTAFYRIRTÆKJA HÉRLENDIS Aðgengi að fjármagni fyrir sprotafyrirtæki leikur lykil- hlutverk í að láta hugmynd verða að veruleika. Það telst til undantekninga að frumkvöðlar í nýsköpunarfyrir- tækjum hafi nægilegt fjármagn til umráða til þess að koma fyrirtækjum sínum á legg. Það má ímynda sér nokkurs konar virðiskeðju fjármögnunar sem sýnir hvernig þessi fyrirtæki fjármagna sig þar sem samfélagið leggur þeim lið með ýmsum hætti. Fyrst eru það vinir og vandamenn sem fjárfesta í hugmyndinni. Síðan, en ekki öruggt, eru það styrkir og samhliða eða í framhaldi koma viðskipta- englar, sem eru efnaðir einstaklingar sem oftar en ekki hafa stofnað sín eigin félög og vilja með fjárfestingu sinni styðja þá sem eru í þeirri stöðu sem þeir voru einu sinni. Þá taka við framtakssjóðir sem sérhæfa sig í fjárfestingum í fyrirtækjum af ýmsum toga. Síðasta skrefið í fjármögnun væri möguleg skráning í Kauphöll, en hér á landi er sú fjármögnunarleið lítið notuð enn sem komið er. Það eru til nokkrar gerðir fjárfestingarsjóða og aðgreina þeir sig oftar en ekki eftir þroskastigi hugmyndarinnar eða þeim iðnaði sem viðkomandi viðskiptahugmynd snýr að. VÍSISJÓÐIR OG NÝSKÖPUNARFYRIRTÆKI Ein tegund framtakssjóða er vísisjóður. Þetta eru sérhæfðir sjóðir sem fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum sem eru vænleg til vaxtar og útrásar. Þessir sjóðir byrjuðu fyrst í Bandaríkjunum fyrir um 70 árum en eiga sér stutta sögu á Íslandi. Vísisjóður er nýyrði sem varð til 2020 og byggir á hljóðlíkingunni við ensku skammstöfunina VC (venture capital), sem er notuð erlendis til að lýsa þeim sjóðum sem fjárfesta í snemmbærum fyrirtækjum þar sem vænta má mikils vaxtar og verðmætasköpunar. Þetta eru áhættufjárfestingar og má segja að í rekstri vísisjóða gildi sú þumalfingursregla að þegar fjárfest er í 10 fyrirtækjum þá eru það 4-6 félög sem ekki ná að skila höfuðstól til baka og jafnvel tapast, 4-6 félög rétt skila höfuðstól til baka með lítilli ávöxtun og svo loks 2-4 félög sem ná að skila einhverri ávöxtun að ráði. Markmiðið er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði þannig að þau skili góðri ávöxtun til fjárfesta og samfélagsins í heild til framtíðar. Hér á landi gegna sjóðirnir mikilvægu hlutverki í að brúa bilið á milli sprotafjármögnunar, sem er samsett SVANA GUNNARSDÓTTIR framkvæmdastjóri Frumtak Ventures

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.