Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 13
13V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1
sett sér jafnréttismarkmið fyrir úthlutanir úr sjóðum. Aftur á móti þarf að stíga enn
fastar til jarðar til að leiðrétta kynjahallann. Kynjaslagsíða er ríkjandi í hugmyndum og
viðmiðum um hvað telst vera ný sköpun og því falla verkefni leidd af konum oft ekki
innan þeirra ramma sem settir eru. Endurskoða þarf hugmyndir og viðmið um skipulag
og úthlutun styrkja úr sjóðum ríkisins. Stjórnvöld þurfa að höfða betur til áhugasviðs,
styrkleika og sérstöðu kvenfrumkvöðla og endurskoða hvaða greinar eru styrkhæfar og
gera þarf betur í þeim geirum þar sem konur eru í meirihluta s.s. í ýmsum samfélags-
málum, menntunargeiranum og heilbrigðiskerfinu. Þess má geta að víða er verið að
ráðast í sértækar aðgerðir til að stuðla að aukinni þátttöku kvenna í nýsköpun. Evrópska
nýsköpunar ráðið starfrækir m.a. sjóð sem styrkir framúrskarandi verkefni leidd af konum
og mun fara af stað með tilraunaverkefni til að styðja nýsköpunarfyrirtæki kvenna.
Stjórnvöldum ber að vinna að markmiðum jafnréttislaga og laga um opinber fjármál og
tryggja að ráðstöfun opinbers fjármagns komi á og viðhaldi jafnrétti og jöfnum tækifærum
kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Íslenskt samfélag og vinnumarkaður verður af
tækifærum og ávinningi ef tilhneiging er til þess að líta framhjá helmingi íbúanna sem
uppsprettu nýsköpunar og skapandi hæfileika. Ef stjórnvöld vilja ná markvissari árangri
í að auka margbreytni hagkerfisins og byggja fjölbreyttari stoðir undir íslenskt atvinnulíf
og mynda þannig grundvöll efnahagslegrar velgengni þá þurfa áætlanir um auknar
fjárfestingar í nýsköpun að byggja á kynja- og jafnréttissjónarmiðum. Slíkar ákvarðanir
yrðu farsælt skref í átt að auknu jafnrétti og réttlæti í íslensku samfélagi.
MYND 1 STOFNENDUR, STJÓRNENDUR OG STJÓRNAR MEÐLIMIR FÉLAGA SEM HLUTU
STUÐNINGS-KRÍU
MYND 2 UMSÆKJENDUR, STOFNENDUR, STJÓRNENDUR OG STJÓRNIR FÉLAGA SEM HLUTU
STUÐNING FRÁ STUÐNINGS-KRÍU EFTIR KYNI