Vísbending


Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 41

Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 41
41V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1 markaðsleyfi fyrir á komandi árum og fyrirséð er að um verði að ræða mikilvæga keppinauta til framtíðar litið. Hér má nefna samruna Pfizer og Hospira árið 2015 en þar hafði framkvæmdastjórnin áhyggjur af því að Hospira hefði markaðsleyfi fyrir líftæknilyfi ásamt einum öðrum keppinaut en lyfið var og er notað til þess að meðhöndla sjálfsofnæmissjúkdóma.11 Hins vegar var Pfizer komið langt í þróun sambærilegra líftæknilyfja (e. biosimilars). Að mati framkvæmdastjórnarinnar hefði samruninn að öllu öðru óbreyttu leitt til þess að Pfizer hefði hætt við eða dregið úr áformum sínum um að setja líftæknilyf sitt á markað. Samruninn var samþykktur með skilyrðum sem fólust m.a. í því að líftæknilyf Pfizer, Infliximab, sem var í þróun, var selt ásamt öllum framleiðsluleyfum, hugverkaréttindum og nauðsynlegri tækni og þekkingu. Novartis keypti þessa einingu í framhaldinu. Hvað varðar nýleg afskipti Samkeppniseftirlitsins af samrunum þar sem áhyggjur af áhrifum á nýsköpun og R&Þ hafa verið uppi er hægt að nefna beiðni Samkeppniseftirlitsins, þann 23. apríl sl., og annarra samkeppnisyfirvalda í Belgíu, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi og Noregi, um að framkvæmdastjórn ESB taki samruna Illumina og Grail til rannsóknar. Um er að ræða fyrirtæki sem sérhæfa sig á sviði krabbameinsskim- ana en svo virðist sem Grail sé eina fyrirtækið í dag sem geti keppt við Illumina . Bandarísk samkeppnisyfirvöld hafa þegar lagst gegn samrunanum og hyggjast fá hann ógiltan fyrir dómstólum og framkvæmdastjórn ESB hefur nýlega hafið rannsókn á honum í kjölfar beiðni Samkeppniseftirlitsins og fimm annarra Evrópulanda.12 RANNSÓKNIR BENDA TIL JÁKVÆÐRA ÁHRIFA SAMKEPPNI Á HAGVÖXT OG NÝSKÖPUN Eins og fram hefur komið hafa verið færð fræðileg rök fyrir því að samkeppnisstefna geti stutt við nýsköpun. Auk þess virðist framkvæmd samkeppniseftirlits almennt vera í samræmi við þær áherslur sem Baker og Shapiro telja vera samþýðanlegar kenningum Arrow og Schumpeter. Hins vegar hafa þessi tengsl ekki verið rannsökuð jafn ítarlega og almenn áhrif samkeppni og samkeppniseftirlits á hagvöxt og skilvirkni fyrirtækja. 11 Ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB nr� M�7559 – Pfizer/Hospira� Vefslóð: https://ec�europa�eu/competition/mergers/cases/decisions/ m7559_20150804_20212_4504355_EN�pdf 12 Frétt á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins þann 23�4�2021 „Framkvæmdastjórn ESB samþykkir beiðni Samkeppniseftirlitsins að alþjóðlegur samruni fyrirtækja á sviði krabbameinsskimana verði rannsakaður�“ Vefslóð: https://www�samkeppni�is/utgafa/frettir/framkvaemdastjorn-esb-samthykk- ir-beidni-samkeppniseftirlitsins-ad-althjodlegur-samruni-fyrirtaekja-a-svidi 13 Porter, Michael� 1990� „The Competitive Advantage of Nations�“ New York: McMillan Press� 14 Porter, Michael� 2001� „Competition and Antitrust: Towards a Productivity-Based Approach to Evaluating Mergers and Joint Ventures�“ Antitrust Bulletin, útg� 46� Bls� 923� 15 Sjá t�d� skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr� 2/2008, Öflug uppbygging – Opnun markaða og efling atvinnustarfsemi Vefslóð: https://www�samkeppni� is/urlausnir/skyrslur/nr/538, OECD� 2014� Factsheet on how competition policy affects macro-economic outcomes� Vefslóð: https://www�oecd�org/daf/ competition/2014-competition-factsheet-iv-en�pdf, Gutmann, J�, og Voigt, S� 2014� „Lending a Hand to the Invisible Hand? Assessing the Effects of Newly Enacted Competition Laws”� Vefslóð: http://ssrn�com/abstract=2392780, Petersen� 2013� „ANTITRUST LAW AND THE PROMOTION OF DEMOCRACY AND ECONOMIC GROWTH�” Journal of Competition Law & Economics, Vol� 9, Útgáfa 3, bls� 593–636� Vefslóð: https:// doi�org/10�1093/joclec/nht003, Symeonidis, G� 2008� “The effect of competition on wages and productivity: evidence from the United Kingdom�” The Review of Economics and Statistics, útg� 90(1), bls� 134-146� Vefslóð: http://www�mitpressjournals�org/doi/abs/10�1162/rest�90�1�134#� U761BvmSyVM, Taylor, J� E� 2002� „The output effects of government sponsored cartels during the New Deal�“ The Journal of Industrial Economics� 50(1), bls� 1-10� Vefslóð: http://www�jstor�org/stable/3569770, Büthe, Tim og Cheng, City� 2017� A Step Ahead – Comeptition Policy for Shared Prosperity and Inclusive Growth, Alþjóðabankinn� Bls� 216 Vefslóð: https://openknowledge�worldbank�org/handle/10986/27527, Symeonidis, George� 2019� „Competition, Innovation and the Use of Innovations�“ The Journal of Industrial Economics, 67(3-4), bls� 565-592� Vefslóð: https:// onlinelibrary�wiley�com/doi/full/10�1111/joie�12209 Porter (1990) rannsakaði þó tíu leiðandi hagkerfi yfir fjögurra ára tímabil og sýnir þar fram á að fyrirtæki sem séu varin fyrir erlendri samkeppni fari halloka og missi að lokum getu sína til að geta keppt á alþjóð- legum mörkuðum.13 Porter (2001) leggur svo áherslu á áhrif samkeppni til að hvetja til nýsköpunar. Nýsköpun auki sífellt neysluvirði vöru og þjónustu, auk þess sem framleiðsluaðferðir verði skilvirkari, en hvort tveggja stuðli að aukinni framleiðni. Samkeppni knýi áfram nýsköpun í þessum víða skilningi. Þótt tækninýjungar séu afleiðingar margvíslegra þátta sé enginn vafi á því að heilbrigð samkeppni sé ómissandi þáttur. Það þurfi aðeins að horfa til dapurlegs ferils nýsköpunar hjá þeim ríkjum þar sem vöntun er á samkeppni til að sannfærast um þá staðreynd. Öflug samkeppni í umhverfi sem styður við hana sé eina leiðin til viðvarandi framleiðni- aukningar og langtíma viðnámsþróttar efnahagsstarf- seminnar.14 Á liðnum áratugum hafa niðurstöður rannsókna einnig stutt þá almennu niðurstöðu að fyrirtæki sem búa ekki við samkeppnislegt aðhald, hvort sem það er vegna skorts á samkeppnislöggjöf eða þá að þau séu varin fyrir alþjóðlegri samkeppni, eru sjaldnast í fararbroddi þegar horft til hagkvæmni í rekstri og heltist úr lestinni í alþjóðlegri samkeppni.15 NIÐURSTAÐA Af framangreindu má álykta að samkeppnisstefna styðji sérstaklega við nýsköpun í umhverfi þar sem stjórn- völd stefna að opnum mörkuðum, einstaklingar og fyrirtæki fá að njóta ávaxta hugmynda sinna og tekið er tillit þeirrar hagkvæmni sem getur falist í samvinnu og samrunum fyrirtækja. Þegar litið er til nýlegra mála hjá framkvæmdastjórn ESB, þar sem áhrif samruna á nýsköpun hafa verið rannsökuð, virðist í framkvæmd vera gætt að þessum atriðum. Jafnframt virðast rann- sóknir, þegar á heildina er litið, styðja við það að samkeppniseftirlit stuðli að nýsköpun. Vegna þessa alls eru sterkar vísbendingar um að samkeppnisreglur og framkvæmd þeirra, eins og henni er háttað í dag, styðji við nýsköpun.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.