Vísbending - 13.05.2021, Qupperneq 6
Búum í haginn
fyrir atvinnulíf
framtíðarinnar
arionbanki.is
Traustur fyrirtækjarekstur og öflug
nýsköpun kallar á samstarfsaðila sem
skilur þarfirnar.
Arion banki býður fyrirtækjum af öllum
stærðum og í öllum geirum alhliða
þjónustu með fagmennsku, innsæi
og þekkingu að leiðarljósi.
Hafðu samband á fyrirtaeki@arionbanki.is,
við þjónustuver í síma 444 7000 eða í
netspjalli á arionbanki.is.
um tölvuleiki og fórum í gegnum langan feril þar sem
við vorum að prófa að gera hitt og þetta. Við enduðum
á að gera einn leik, en á meðan við vorum að klára hann
ákváðum við að taka hugbúnaðinn sem leikurinn byggði
á og selja hann,“ segir Davíð. Úr því varð meginsölu-
vara fyrirtækisins til, en það er leikjahugbúnaður sem
hefur verið notaður til að þróa um það bil helming allra
tölvuleikja heimsins.
„ÉG VAR BARA AÐ BÚA EITTHVAÐ DÓT TIL“
Þessi mikli árangur Unity sem hefur gert fyrirtækið að
því verðmætasta sem Íslendingur hefur stofnað var því
tilkominn eftir fjölmargar misvel heppnaðar tilraunir til
að búa til verðmæti upp á eigin spýtur.
Þrátt fyrir það segir Davíð frumkvöðlastarfsemi ekki
fela í sér mikla áhættu, þvert á það sem margir halda
fram. „Það er oft talað um að fólk sé að taka einhverja
mikla áhættu, en mér leið aldrei þannig. Ég tók aldrei
neina áhættu þannig séð. Ég var bara að búa eitthvað
dót til og það var aldrei nein hætta á að ég myndi deyja
eða neitt svoleiðis.“
„Við búum í sósíaldemókratísku landi þar sem maður
fær að njóta velferðarkerfisins þótt maður eigi ekki pen-
inga, þannig helsta áhættan er að fá ekki borgað meðan
hugmyndin er í þróun,“ bætir hann við. „Það er auðvitað
alltaf einhver hætta á að eitthvað gangi ekki, en maður
lærir alltaf eitthvað.“
FYNDINN BRANSI
Davíð segir samkeppnisumhverfið á tölvuleikja markaðnum
vera nokkuð skemmtilegt: „Þetta er fyndinn bransi að því
leyti að þú þarft að búa til frekar slæman leik til að finna
ekki neinn á netinu sem nennir að spila hann.“
„Þannig að þetta er skemmtilegur markaður, þú getur
hitt fullt af mögulegum kúnnum út um allan heim og tengst
við þennan geira sem er orðinn risastór núna.
Aftur á móti segir Davíð það ekki vera auðvelt að búa
til vinsælan tölvuleik, þar sem mikil samkeppni ríki á milli
Meginsöluvara Unity Technologies er hugbúnaðurin Unity, sem notaður er til að þróa tölvuleiki. Ljósmynd: Bára Huld Beck