Vísbending - 13.05.2021, Side 7
Búum í haginn
fyrir atvinnulíf
framtíðarinnar
arionbanki.is
Traustur fyrirtækjarekstur og öflug
nýsköpun kallar á samstarfsaðila sem
skilur þarfirnar.
Arion banki býður fyrirtækjum af öllum
stærðum og í öllum geirum alhliða
þjónustu með fagmennsku, innsæi
og þekkingu að leiðarljósi.
Hafðu samband á fyrirtaeki@arionbanki.is,
við þjónustuver í síma 444 7000 eða í
netspjalli á arionbanki.is.
fyrirtækjanna: „Það er mjög létt að stofna leikjafyrirtæki
en mjög erfitt að láta það ganga vel.“
GAT EKKI ANNAÐ EN AÐ FJÁRFESTA Í SPROTUM
Umsvif Davíðs á tölvuleikjamarkaðnum hafa hins vegar
minnkað á síðustu árum, en hann hætti sem forstjóri
Unity árið 2014. Þó situr hann enn í stjórn fyrirtækisins,
auk þess sem hann hefur verið stjórnarmaður í öðrum
hugbúnaðar- og leikjafyrirtækjum.
Samhliða því hefur hann svo aukið við fjárfestingar sínar
í sprotafyrirtækjum. Hann byrjaði á slíkum fjárfestingum
fyrir tíu árum síðan, en þær hafi þá verið að takmörkuðu
leyti. „Síðan hef ég fjárfest meira á síðustu fimm árum og
á síðustu 2-3 árum hefur það orðið svolítið fagmannlegra
þar sem ég hef verið með teymi í kringum mig.“
„Ég fjárfesti kannski ekki mjög stórum upphæðum
en hef þó fjárfest í mörgum fyrirtækjum. Þar eru leikja-
fyrirtæki, hugbúnaðarfyrirtæki, líftæknifyrirtæki og nú
meira fyrirtæki sem þróa tækni sem dregur úr loftslags-
vandanum,“ bætir hann við.
Aðspurður hvers vegna hann hafi ákveðið að fjárfesta í
sprotafyrirtækjum segir Davíð það vera bæði vegna reynslu
og áhuga. „Ég kann svolítið á að stofna tæknifyrirtæki og
hef gaman af ferlinu í kringum það og fólkinu sem stofnar
fyrirtækin. Ég gat eiginlega ekki annað en að gera það.“
„Ég er líka vel tengdur góðu fólki sem vill vinna með
mér og sýna mér hluti, þannig að ég sé marga góða hluti
gerast,“ bætir hann við. „Nú er ég kominn með teymi,
en við vinnum saman í að pikka út bestu fyrirtækin og
fjárfesta í þeim.“
Davíð Helgason var forstjóri Unity Technologies til ársins 2014. Ljósmynd: Jonggirl Lee, @gnal_official