Vísbending - 13.05.2021, Qupperneq 18
18 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1
HJARTSLÁTTURINN
FRÁ KING COUNTY
Hinn 29. febrúar 2020 var neyðarlögum lýst
yfir í Washington ríki. Fyrsta COVID-19 til-
fellið í Bandaríkjunum var opinberlega stað-
fest á elliheimili í Kirkland tveimur dögum
fyrr, skammt frá höfuðstöðvum Microsoft í Redmond,
á Seattle svæðinu.
Atburðarásin sem hófst með þessari aðgerð gleym-
ist engum sem upplifðu hraðar og dramatískar aðgerðir
yfirvalda og fyrirtækja í ríkinu. Fólki var fyrirskipað að
fara heim til sín og halda sig þar, skólum var lokað og
öllum starfsmönnum höfuðstöðva stærstu tæknifyrirtækja
heimsins - Amazon og Microsoft - var sagt að koma sér
heim og búa sig undir að vinna þar næstu mánuði. Í
samræmdum aðgerðum þessara fyrirtækja voru 110 þús-
und starfsmenn sendir heim og neyðaráætlanir virkjaðar.
Skömmu síðar breytti Bandaríkjaher heimavelli NFL
liðsins Seattle Seahawks í neyðarsjúkrahús. Það var ógn-
vekjandi áminning um hvaða staða var að komin upp.
Í SKÝINU
Þó víða í heiminum hafi viðlíka atburðarás átt sér stað, þá
er eitt sérstaklega mikilvægt við Seattle svæðið. Hagkerfi
þess hefur orðið kerfislægt mikilvægi fyrir heiminn vegna
þess hlutverks sem stærstu tæknifyrirtæki heimsins hafa
í daglegu lífi okkar.
Skýjaþjónusta (Cloud service) af ýmsu tagi hefur kerfis-
lægt mikilvægi. Án hennar er gangverkið í daglegu lífi
okkar einfaldlega ekki fyrir hendi. Á Seattle svæðinu hafa
byggst upp innviðir fyrir alþjóðlegt hagkerfi internets-
ins, en um 63 prósent af allri skýjaþjónustu heimsins
er stjórnað úr einni og sömu sýslunni í Washington ríki
- King County.
Amazon og Microsoft eru þar umfangsmest, en
einnig Google, Facebook og SalesForce, ásamt mörgum
minni fyrirtækjum sem þó teljast stór á alþjóðlegan
mælikvarða.
Má nefna sem dæmi fyrirtækið NetApp, sem keypti
íslenska fyrirtækið Greenqloud fyrir 50 milljónir Banda-
ríkjadala árið 2017, til að styrkja skýjaþjónustu sína.
Markaðsvirði fyrirtækisins er 16,8 milljarðar Banda-
ríkjadala í dag, eða sem nemur meiru en allur íslenski
hlutabréfamarkaðurinn, að viðbættum Íslandsbanka og
Landsbankanum, sé miðað við eigið fé þeirra. Þetta er
lítið fyrirtækið á þessari syllu skýjaþjónustunnar, með
starfsemi á Seattle svæðinu, en telst þó risi í samanburði
við mörg alþjóðleg fyrirtæki og jafnvel hagkerfi.
Þegar COVID-heimsfaraldurinn kom upp lýstist
þessi hlið heimshagkerfisins - skýjaþjónustan og hlutverk
internetsins - enn betur upp. Við það varpaðist kastljósið
á King County, eina af ríflega þrjú þúsund sýslum Banda-
ríkjanna. Fyrir venjulegt fólk varð skýjaþjónusta - t.d. fyrir
fjarfundi í atvinnulífi, heilbrigðisþjónustu og menntakerfi
- að ómissandi hlekk í keðju daglegra athafna.
ALÞJÓÐLEGT ÆÐAKERFI
Nú þegar það er farið að sjást ljós við enda ganganna í
heimsfaraldrinum, með almennri bólusetningu, þá vaknar
von um að þetta sama ljós vísi veginn út úr ógöngunum.
Hvaða lærdóm er hægt að draga af aðstæðunum sem
sköpuðust við COVID-19 heimsfaraldurinn? Mörgum
spurningum er ósvarað og mikið verk framundan, í því
að styrkja samfélög sem standa mörg eftir löskuð.
Eitt af því sem blasir við er að COVID19 faraldur-
inn hefur varpað ljósi á kerfislægt mikilvægi alþjóðlegrar
tækni og innviða internetsins - sem má líkja við æðakerfi
heimshagkerfisins.
MAGNÚS HALLDÓRSSON
stjórnarmaður í
Eyrir Venture Management