Vísbending - 13.05.2021, Page 26
26 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1
STAFRÆN LANDAMÆRI
ERU ALLTAF OPIN
– VÍSISJÓÐIR Á TÍMUM COVID
1 https://www�althingi�is/altext/erindi/150/150-2107�pdf
Undanfarin 10 ár hefur verið rætt um mikilvægi
alþjóðageirans í íslensku atvinnulífi. Þetta er
sá hluti atvinnulífsins sem býr til útflutnings-
tekjur af verðmætum sem byggja á þekkingu
í stað auðlinda. Tæknidrifin nýsköpunarfyrirtæki eru
hornsteinn alþjóðageirans. Þetta eru fyrirtæki sem eru
alþjóðleg frá stofnun. Til þess að slíkum fyrirtækjum
vegni vel þurfa þau að hafa aðgengi að alþjóðlegum
mörkuðum, rétta starfsfólkinu og nægu fjármagni til að
vaxa og dafna. Það hefur sýnt sig að oft er gott þegar
innlendir og erlendir fjárfestar vinna saman að slíkri
uppbyggingu.
Frá árinu 2015 hafa orðið til nokkrir einkareknir vísisjóðir
á Íslandi sem starfa með langtímasjónarmið að leiðarljósi
og fjárfesta yfirleitt í tæknidrifnum nýsköpunarfyrirtækjum.
Fram að því voru starfandi Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
(NSA) sem var í eigu ríkisins og Frumtak 1 sem var stofnaður
af NSA þar sem ríkið var með 40% af eignarhlut sjóðsins.
Innan Framvís, Samtaka íslenskra vísisjóða og englafjárfesta,
eru núna starfandi fjórir sjóðir sem samtals reka eignasöfn
með heildarverðmæti fyrir tugi milljarða króna. Þessir sjóðir
eru að mestu leyti fjármagnaðir af lífeyrissjóðum, fjársterkum
einstaklingum og bönkum. Neðangreind mynd unnin af
Viðskiptaráði Íslands1 lýsir þessari þróun.
HELGA VALFELLS
stofnandi og starfandi með-
eigandi Crowberry Capital
1 Nýlegar gengisbreytingar geta skekkt stærðartöflur sjóðanna Heimildir: Northstack, Seðlabankinn, Viðskiptaráð Íslands