Vísbending - 13.05.2021, Blaðsíða 30
30 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 1
Nýsköpun er nauðsynleg til að tryggja efnahagslega velgengni þjóðarinnar sem
og að leysa stærsta úrlausnarefni samtímans sem er hnattræn hlýnun. Hugvitið
er uppspretta nýsköpunar og stærsta auðlind okkar sem hægt er að virkja endalaust.
Nýsköpunarstefna á að vera leiðarljós en ekki meitluð í stein. Skattaívilnanir hafa virkað
vel og þær aðgerðir sem við höfum fest í sessi auka fyrirsjáanleika, sem er mikilvægt
fyrir öll fyrirtæki. Þá skipta almenn góð rekstrarskilyrði, vaxtaumhverfi, stöðugleiki
og aðgengi að hæfu starfsfólki miklu máli. Síðast en ekki síst er mikilvægt að Ísland
verði áfram ákjósanlegur staður til að búa á, það tryggir samkeppnishæfni okkar.
BRYNDÍS HARALDSDÓTTIR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Flokkur fólksins telur það vera mikil mistök að horfa upp á falinn fjársjóð snill-
inga sem fá aldrei tækifæri til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Ríkið
verður að leggja sitt af mörkum til að tryggja að mannauður óslípaðra demanta fái
tækifæri til að skína skært. Ísland býr yfir miklum mannauði og menntunarstig hér á
landi vex stöðugt. Við eigum að leggja markvissa áherslu á menntun á öllum stigum
nýsköpunar og hiklaust að leggja til fjármagn til stuðnings hugmyndum í mótun sem
að lokum geta orðið risastór meistaraverk. Ísland þarf að víkka sjóndeildarhringinn,
okkur vantar fleiri egg í körfuna og þar kemur nýsköpun sterkust inn.
INGA SÆLAND
FLOKKUR FÓLKSINS
ÞINGMENN SVARA
HVER ER BESTA LEIÐIN TIL AÐ EFLA VÖXT
NÝSKÖPUNAR HÉR Á LANDI Á NÆSTU ÁRUM?
Mikilvægi nýsköpunar hefur sjaldan eða aldrei verið meira en einmitt nú þegar sér
fyrir endann á heimsfaraldrinum. Miklu skiptir að efla nýsköpun með öllum
ráðum því að hún er upphaf að vexti og framförum framtíðarinnar. Nauðsynlegt er
að kortleggja leið sprotans til fulls vaxtar með því að stuðningur í hverju skrefi miði
að þörfum hvers og eins. Í dag lánar enginn banki til sprotafyrirtækja svo neinu nemi.
Því þarf að breyta svo við missum ekki fyrirtæki úr land um það bil sem þau verða
lífvænleg. Sérstaka áherslu þarf að leggja á nýsköpun í hefðbundnum atvinnuvegum
þar sem þekking okkar og reynsla vegur þyngst.
ÞORSTEINN SÆMUNDSSON
MIÐFLOKKURINN
Nýsköpun og frumkvöðlahugsun er mikilvæg í öllum geirum íslensks atvinnulífs og þar
eru stofnanir ríkisins ekki undantekning. Gera á íslenskum fyrirtækjum í nýsköpun
og hugverkaiðnaði kleift að skapa ný störf og taka þátt í að skapa sjálfbæran hagvöxt
framtíðarinnar. Ísland á í harðri samkeppni um þessi fyrirtæki og í henni skipta skattalegir
hvatar máli. Efla þarf samkeppnissjóði og ráðgjöf um styrkumsóknir. Nýsköpun og grænar
fjárfestingar er lykillinn að lausnum í glímunni við loftlagsvanda. Samfylkingin vill að
stofnaður verði grænn fjárfestingarsjóður í opinberri eigu, sem leiti samstarfs við einka-
fjárfesta og sveitarfélög um allt land, um loftslagsvæna atvinnustarfsemi og grænan iðnað.
ODDNÝ HARÐARDÓTTIR
SAMFYLKINGIN