Skessuhorn


Skessuhorn - 04.04.2022, Qupperneq 30

Skessuhorn - 04.04.2022, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 202230 Ég bý í Grundarfirði og uni þar vel. Ég og maki minn fluttum hing­ að ásamt dóttur okkar árið 2013. Við ætluðum að vera hér í eitt skólaár þar sem ég hafði fengið tímabundna ráðningu sem ensku­ kennari við Fjölbrautaskóla Snæ­ fellinga og 9 árum síðar þá erum við hér enn. Þar sem við héldum að við yrð­ um einungis tímabundið hér í Grundarfirði þá vorum við ekkert sérlega að velta fyrir okkur kostum og göllum þess að búa hér frem­ ur en annars staðar. Okkur bauðst að vera hér áfram og nú sjáum við fram á að dóttir okkar ljúki ekki bara grunnskólanum hér heldur líklegast framhaldsskólanum líka. Mér finnst magnað að hér geti börn stundað samfellt nám frá leik­ skóla og þangað til háskóli tek­ ur við. Við erum með framsækinn fjölbrautaskóla hér í bænum. Nám­ ið er verkefnamiðað leiðsagnar­ nám þar sem nemendur geta unnið samkvæmt sveigjanlegu skipulagi og námsumhverfið gerir nemend­ ur ábyrgari í eigin námi. Í FSN er upplýsingatækni nýtt á fjölbreyttan hátt og stafrænt nám er í fyrirrúmi. Nemendur grunnskólans eru almennt vel undirbúnir þegar þeir hefja nám hjá mér í framhaldsskól­ anum og hvað okkur varðar þá líð­ ur dóttur okkar vel hér í grunnskól­ anum. Hennar þörfum er mætt og allt bara ansi flott og gott – og mér skilst að heilt yfir eigi það sama við um flesta aðra. Stelpan nemur allskyns við skólann og snillismiðja, þar sem nemendur skapa og smíða úr allskyns hrávið, þykir henni hvað skemmtilegust ásamt upplýsinga­ tækni – en bæði sköpun og upplýs­ ingatæknimennt er mjög mikilvæg­ ur undirbúningur fyrir þátttöku í stafrænni framtíð. Í grunnskólanum höfum við kraftmikla og góða kennara sem sinna starfi sínu faglega og af heil­ indum þrátt fyrir að oft þurfi sök­ um fjármagns að sníða stakk eftir vexti. Mig langar að sjá meira fjár­ magni veitt til grunnskólans okk­ ar. Því meira fjármagn sem sett er í menntun barna því ríkara verð­ ur samfélagið sökum auðgi þeirra sem byggja samfélag framtíðarinn­ ar – og eru flestir ekki að vona að börnin í dag verði þau sem byggja Grundarfjörð framtíðarinnar. Mig langar að sjá stöðugildum fjölgað til þess að minnka álag á starfsfólk. Mig langar að skólinn hafi fjármagn og færi á að upp­ færa tölvu­ og tækjabúnað. Mig langar að sjá meira fjármagni veitt í snillismiðjur, í tónlistarskól­ ann, í upplýsingatækni, í forritun­ arkennslu og nýsköpunarmennt. Mig langar að skólinn hafi fjár­ magnið og starfskraftinn til þess að koma Grunnskóla Grundarfjarðar í fremstu röð þeirra skóla sem eru að undirbúa nemendur fyrir virka þátttöku í stafrænum heimi. Loftur Árni Björgvinsson Höfundur er í 3. sæti fyrir L-lista Bæjarmálafélagsins Samstöðu Pennagrein Vangaveltur Grundfirðings Pennagrein Vegagerðin hefur nú tekið yfir rekstur landsbyggðarvagna og ný gjaldskrá tekið gildi. Samkvæmt nýrri gjaldskrá hækkar samgöngu­ kortið mitt um 92% milli ára, sem er fáránlega mikil hækkun. Ekki er lengur hægt að kaupa kort fyr­ ir ákveðna leið heldur einungis fyr­ ir ákveðna landshluta, en áður var ég með kort sem gilti milli Akra­ ness og höfuðborgarsvæðisins. En nú á ég að borga það sama fyr­ ir samgöngukort og einstaklingur sem býr t.d. í Staðarskála. Stakt far­ gjald er aftur á móti 4.900 krónur frá Staðarskála til Reykjavíkur en 980 krónur frá Akranesi til Reykja­ víkur. Þetta nær náttúrulega ekki nokkurri átt. Ég veit ekki hverjum datt það snjallræði í hug að láta þá sem búa í nærumhverfi höfuðborgarsvæðisins borga það sama fyrir samgöngu­ kort og þeir sem búa fjórum sinn­ um lengra í burtu. Svo því sé haldð til haga þá eru önnur bæjarfélög að koma mun betur út úr þessu þar sem stakt fargjald er hærra hjá þeim en hjá okkur Akurnesingum. Fyrir okkur Akurnesinga sem sækjum vinnu á höfuðborgarsvæð­ inu og höfum verið að nýta okkur samgöngukortið þar sem það var hagkvæmur kostur, þá er það ekki eins hagstætt og það var saman­ ber þessi áður nefnda 92% hækk­ un. Kosturinn við samgöngukortið var að maður fékk 12 mánuði á verði 9. Þessi sömu mánuðir og nú eru 92% dýrari. Þegar maður nú reiknar með að nota ekki vagninn þegar maður er í sumarfríi, veik­ indum og öðrum tyllidögum, og maður tali ekki um þær ferðir sem falla niður vegna veðurs, þá eru þessir þrír auka mánuðir allt í einu orðnir að ekki neinu, og þá ávinn­ ingurinn með þessu samgöngukorti orðinn lítill sem enginn. Hvetur frekar til að nota einkabílinn á milli með auknu sliti á vegum og öðru sem því fylgir. Ég hef sent póst á Vegagerðina þar sem ég lýsti vonbrigðum með þessar breytingar en hef ekki feng­ ið nein viðbrögð þaðan. Ég er alla­ vega ekki að fara endurnýja mitt kort alveg á næstunni að óbreyttu. Kveðja, Helgi Hauksson Skagamenn drógu stutta stráið Pennagrein Fyrri umræða um ársreikning Akra­ neskaupstaðar fyrir árið 2021 hef­ ur farið fram í bæjarstjórn Akraness. Seinni umræða um ársreikninginn fer fram 10. maí næstkomandi. Rekstrarafgangur samstæðunn­ ar var 578 milljónir króna eða 721 milljónum króna betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir. Skuldavið­ mið heldur áfram að lækka og er nú einungis 20% eða langt undir 150% hámarki sem kveðið er á um í lögum. Skuldir kaupstaðarins við lánastofn­ anir halda áfram að lækka og eru einungis 919 milljónir króna og hafa lækkað um 138 milljónir króna á milli ára. Rekstur sveitarfélaga eru und­ ir virku eftirliti, ekki bara frá eftirlit­ stofnunum ríkisins heldur líka íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Eftirlit og eftirfylgni veitir þeim sem fara með fjármál kaupstaðarins á hverjum tíma nauðsynlegt aðhald. Því er áhugavert að bera ársreikning Akraneskaupstað­ ar saman við ársreikninga nokkura af þeim sveitarfélögum sem við berum okkur oft saman við. Til samanburðar er skuldaviðmið samstæðu Árborgar 138,5%, skuldaviðmið Reykjavíkur­ borgar fyrir A hluta 61% en skulda­ viðmið samstæðu Reykjavíkurborgar án OR 93%, skuldaviðmið Garðabæj­ ar er svo 71% og í Mosfellsbæ er það 102%. Það er þvi óhætt að halda því fram að staðan hér á Akranesi sé sterk og á því byggjum við. Heildartekjur Akraneskaupstaðar voru rúmir 9,4 milljaðar og voru því samtals rúmum 1,1 milljarði yfir áætl­ un ársins. Veltufé frá rekstri hjá sam­ stæðu var tæpt 17% af heildartekjum eða rúmir 1,5 milljarðar og er það 910 milljónum betri niðurstaða en fjár­ hagsáætlun gerði ráð fyrir. Handbært fé í árslok var tæpur 1,6 milljarður og lækkaði um 239 milljónir á árinu vegna mikillar innviðauppbyggingar í samfélaginu og einnig hafði niður­ greiðsla skulda og skuldbindinga áhrif en þær voru 596 milljónir á árinu. Framlegðarhlutfall hækkaði veru­ lega á milli ára, veltufjárhlutfall er enn mjög sterkt og skuldahlutfall fer áfram lækkandi og er 73% í árslok 2021 en var 84% í árslok 2020. Eigin­ fjárhlutfall er í árslok 60% og hækk­ ar um 1%. Niðurstaða ársreikningsins er veru­ lega ánægjuleg. Þessi afar góða niður­ staða er til komin vegna ábyrgrar og traustrar fjámálastjórnar. Á árinu 2021 jukust skatttekjur Akraneskaup­ staðar um 516 milljónir frá fyrra ári, framlög Jöfnunarsjóðs hækkuðu um 296 milljónir frá fyrra ári og aðrar tekjur jukust um 460 milljónir á milli ára. Rekstur málaflokka var í takti við fjárhagsáætlun. Heildareignir í lok árs námu samtals rúmum 15 milljörðum króna og hækkuðu um 706 milljón­ ir króna milli ára. Heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals rúm­ um 6,5 milljörðum króna og hækk­ uðu um 68 milljónir króna á milli ára. Langtímaskuldir lækkuðu um 138 milljónir króna, lífeyrisskuldbinding hækkaði um 141 milljón króna vegna áhrifa hækkunar lífaldurs á lífeyris­ réttindi og skammtímaskuldir hækk­ uðu um 66 milljónir króna. Rekstr­ arafgangur ársins var jákvæður um 507 milljónir króna fyrir A hluta og jákvæður um 71 milljón króna fyrir B hluta. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá mikinn viðsnúning í rekstri Höfða hjúkrunar­ og dvalarheimilis á árinu 2021. Rekstrarniðurstaða Höfða var jákvæð um rúmar 65 milljónir króna á meðan áætlun ársins gerði ráð fyr­ ir rúmlega 14 milljón króna neikvæðri niðurstöðu. Ábyrg fjármálastjórn skapar svig­ rúm til þess að lækka álögur en á sama tíma bæta þjónustu. Á þessu kjör­ tímabili hefur álagsprósenta á íbúð­ ar­ og atvinnuhúsnæði verið lækkuð töluvert og þegar borin eru saman sveitarfélögin á SV horni landsins kemur kaupstaðurinn mjög vel út. Sú rekstrarniðurstaða sem nú hefur ver­ ið kynnt gefur okkur tækifæri til að halda áfram á sömu braut. Að hafa burði til þess að lækka álögur á íbúa og fyrirtæki á sama tíma og fram fer gríðarlega öflug innviðauppbygging endurspeglar sterka stöðu bæjarfé­ lagsins. Samfélag í sókn Á síðasta ári voru fjárfestingar hjá Akraneskaupstað rúmur milljarður króna og óhætt er að segja að mik­ ið uppbyggingarskeið sé hafið inn­ an samfélagsins. Meðal helstu fram­ kvæmda á árinu 2021 voru að 221 milljón króna var sett í nýja þjónustumiðstöð við Dalbraut en þar er starf­ semi Feban til húsa og sem stendur bæjarskrif­ stofur Akraneskaupstað­ ar. Rúmar 200 milljónir voru settar í uppbyggingu á nýjum leikskóla í Skógarhverfi. Þegar sú glæsilega bygging verð­ ur tilbúin munu vinnu­ aðstæður starfsmanna og nemenda í leikskólum bæjarins batna verulega en einnig mun aukið svig­ rúm verða til að lækka inntökuald­ ur barna í leikskóla bæjarins. Fjár­ magn að upphæð 116 milljónir fór í breytingar á Grundaskóla, m.a. vegna loftgæðamála. Auk þessa var fjármagn sett í endurbætur á götum bæjarins, í nýframkvæmdir í gatnagerð og gang­ stíga, í uppbyggingu íþróttamann­ virkja og í Reiðhöll Dreyra svo fátt eitt sé nefnt. Í fjárfestinga­ og framkvæmda­ áætlun fyrir núverandi ár var sam­ þykkt að ráðast í umfangsmiklar fjár­ festingar upp á rúmlega 2,1 milljarð króna. Stærstu fjárfestingarverkefn­ in á þessu ári eru uppbygging sam­ félagsmiðstöðvar að Dalbraut, upp­ bygging íþróttamannvirkja á Jaðars­ bökkum, endurbætur á skólahús­ næði og bygging nýs leikskóla í Skógarhverfi. Jafnframt er gert ráð fyrir að byggja nýjan þjónustukjarna fyrir fatlaða, byggja nýtt áhaldahús og auk þessa sem úthlutað verður lóðum í Skógarhverfi 3C og 5 og unnið að verulegum framkvæmdum í gatna­ gerð í Skógarhverfi og Flóahverfi. Ásamt þessu verður áfram unnið að mikilvægu viðhaldi eldri gatna. Af þessari miklu innviðaupp­ byggingu má sjá að Akranes er sam­ félag í sókn. Unnið er eftir skýrri framtíðarsýn með það að markmiði að gera góðan bæ að enn betri bæ. Höldum áfram metnaðarfullu upp­ byggingarstarfi á traustum grunni. Við erum hvergi nærri hætt. Að setja X við B er að setja X við enn betri stað til að búa á. Elsa Lára Arnardóttir, formaður bæj- arráðs á kjörtímabilinu 2018 – 2022 og núverandi oddviti Framsóknar og frjálsra og skipar 7. sæti á lista í kom- andi sveitarstjórnarkosningum. Ragnar Sæmundsson, formaður skipulags- og umhverfisráðs á kjör- tímabilinu 2018 – 2022 og skipar 1. sæti á lista Framsóknar og frjálsra í komandi sveitastjórnarkosningum. Við erum á réttri leið – Höldum áfram

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.