Morgunblaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2022
Gleðilega páska
Rafstöðinni í Elliðaárdal, Gufunesbæ,
og grásleppuskúrunum við Ægisíðu.
Minnum á páskaeggjaleit
Sjálfstæðisflokksins í dag kl. 11:00.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er stórt og flókið verkefni
enda mikið um eltingarleiki og has-
ar. Það hefur þó allt gengið vel til
fram til þessa,“
segir Óskar Þór
Axelsson kvik-
myndaleikstjóri
sem þessa dag-
ana vinnur að
gerð kvikmyndar
eftir vinsælli sögu
Arnaldar Indr-
iðasonar, Napóle-
onsskjalanna.
Kvikmyndatökur
hafa farið fram hér á landi síðustu
vikur, meðal annars í Reykjavík og á
Langjökli, og lauk þeim í byrjun vik-
unnar. Á annan dag páska heldur
Óskar út til Kölnar í Þýskalandi og
verður við tökur í myndveri í tvær
vikur.
Sagan færð til dagsins í dag
Napóleonsskjölin komu út árið
1999 og hefur lengi staðið til að gera
kvikmynd eftir sögunni. Marteinn
Þórisson skrifar handritið og var
upprunaleg útgáfa þess til fyrir tíu
árum en það hefur verið í þróun al-
veg fram til dagsins í dag. Til marks
um það má nefna að fundur flugvél-
arflaksins þýska úr seinni heims-
styrjöldinni á Vatnajökli, sem er til-
urð sögunnar, er nú rakið til þess að
jökullinn hafi bráðnað af völdum
hlýnunar jarðar. Þá þurfti að breyta
sögunni með tilliti til þess að hér er
ekki lengur herstöð Bandaríkjahers
svo fátt eitt sé nefnt.
Leikarar úr Game of Thrones
og Midsomer Murders
Myndin er framleidd af Sagafilm
og þýska fyrirtækinu Splendid
Films og er áætlaður kostnaður við
gerð hennar um 900 milljónir króna.
Fjöldi þekktra leikara fer með stór
hlutverk í Napóleonsskjölunum
sem kallast Operation Napoleon
upp á ensku. Þekktastur er
sennilega Iain Glen sem hefur
til að mynda leikið í Game of
Thrones. Aðalkven-
hlutverkið er í höndum
Vivian Ólafsdóttur en
með önnur stór hlut-
verk fara breski
leikarinn Jack Fox
og Ólafur Darri
Ólafsson. Margir
þekktir leikarar
fara með smærri
hlutverk, til að
mynda breska
leikkonan Annette
Badland sem kunn
er fyrir leik í Doc-
tor Who, Ted
Lasso, Eastenders,
Bergerac og Midso-
mer Murders, þýski
leikarinn Wotan
Wilke Möhring, Nanna
Kristín Magnúsdóttir og breska
leikkonan Adesuwa Oni. Þá fara þeir
Þröstur Leó Gunnarsson, Hjörtur
Jóhann Jónsson og Atli Óskar Fjal-
arsson sömuleiðis með hlutverk í
myndinni.
Eins og sjá má á mynd með grein-
inni er persóna Ólafs Darra nokkuð
skrautleg og klæðist gamalli Liver-
pool-treyju merktri John Barnes.
„Hann leikur einbúa sem býr við
jökulræturnar. Hann er mikill veiði-
maður og áhugamaður um enska
boltann sem fer oft í fótboltaferðir.
Þetta er góð týpa. Í svona mynd má
gera aukapersónurnar svolítið ýkt-
ar,“ segir Óskar Þór.
Hasarmynd með smá húmor
Leikstjórinn segir í samtali við
Morgunblaðið að um tveir þriðju
hlutar myndarinnar séu á ensku en
afgangurinn á íslensku. „Hún gerist
að megninu til á Íslandi en smávegis
í Bandaríkjunum,“ segir hann.
Óskar Þór hefur áður gert mynd-
irnar Svartur á leik og Ég man þig
og er því ekki ókunnugur því að mat-
reiða spennu ofan í áhorfendur.
Hann segir að Napóleonsskjölin séu
ekki hefðbundin norræn spennu-
mynd með þeim drunga sem þeim
gjarnan fylgi. „Hún er hressilegri.
Þetta er hasarmynd og með smá
húmor. Bókin er ólík öðrum sögum
Arnaldar. Hann hefur sjálfur sagt að
þetta sé Alistair MacLean-bókin
hans og það er sannleikur í því.“
Arnaldur fylgist vel með
Óskar segir aðspurður að þótt
Arnaldur taki ekki beint þátt í fram-
leiðslu myndarinnar sé hann áhuga-
samur og hafi reynst hjálplegur þeg-
ar á hefur þurft að halda. „Hann
hefur verið að lesa yfir handritin og
gefa góð ráð. Hann hefur fylgst með
á hliðarlínunni, einhvers konar
klappstýra verkefnisins. Svo hef ég
aðeins leitað til hans með einstakar
senur. Ég vildi til dæmis passa að
endirinn væri nær bókinni en
hann var og við vorum sam-
mála um það. Arnaldur hef-
ur verið mjög ánægður
með útkomuna og segist
vera spenntur að sjá
myndina því hann elskar
svona myndir.“
Eins og áður segir
fara tökur fram í
Þýskalandi næstu
tvær vikurnar og
svo eru smávægi-
legar tökur eftir á
Íslandi. „Við erum
að horfa á áramót-
in, að myndin
verði meira og
minna tilbúin
fyrsta janúar,“
segir Óskar Þór.
Tvíeyki Vivian Ólafsdóttir og Jack Fox í myndinni. Hún leikur
lögfræðing sem sökuð er um morð sem hún framdi ekki.
Flak Nasistaflugvél úr seinni heimsstyrjöldinni finnst á Vatna-
jökli eftir að jökullinn tók að bráðna vegna hlýnunar jarðar.
Skrautleg Annette Badland er í skrautlegu aukahlutverki.
Hún hefur áður leikið í í Doctor Who og Midsomer Murders.
Fjölþjóðaher leikara í sögu Arnaldar
- Tökur standa nú yfir á Napóleonsskjölunum sem gerð er eftir sögu Arnaldar Indriðasonar
- Þekktir leikarar í stórum hlutverkum - Leikstjórinn segir myndina hasarmynd með smá húmor
Ljósmyndir/Juliette Rowland
Stórmynd Iain Glen fer með aðalhlutverkið en hann lék í þáttunum Jack Taylor sem Marteinn Þórisson skrifaði.
Bóndi Ólafur
Darri Ólafsson
leikur einbúa sem
fylgist vel með
enska boltanum.
Óskar Þór
Axelsson