Morgunblaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2022
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
T
ónlist í kvikmyndum er orð-
in mun veigameiri en áður
og snýst um meira en bara
að semja tónlistina. Það er
margt annað sem þarf að hugsa um,“
segir Inga Magnes Weisshappel sem
nýlega var ráðin „music supervisor“
hjá alþjóðlega fyrirtækinu Wise Mu-
sic Group. Starfið felst í því að hafa
yfirsýn yfir tónlistina í kvikmyndum,
sjónvarpsþáttum eða auglýsingum.
Störf sem þetta hafa lengi verið hluti
af bransanum í Bandaríkjunum,
Bretlandi og víðar en Inga er að öll-
um líkindum fyrsti starfandi „music
supervisor“ á Íslandi. Hún segir að
það sé stórt skref fyrir íslenskt tón-
listarlíf og gæti hjálpað til við að
koma íslensku tónlistarfólki enn bet-
ur á framfæri á alþjóðlegum kvik-
myndamarkaði.
Vann við gerð Kötlu
Inga er 29 ára og útskrifaðist
sem tónskáld úr Listaháskóla Ís-
lands fyrir fjórum árum. „Ég er með
smá bakgrunn í myndlist og hef
ástríðu fyrir því að sameina tónlist
og mynd. Ég hef alltaf heillast af
kvikmyndabransanum sem getur
sameinað mörg listform í eitt. Það er
því alger draumur að geta starfað
með ólíkum listamönnum við kvik-
myndagerð,“ segir hún.
Frá útskrift hefur Inga starfað
mikið sem „music editor“ við ýmis
kvikmyndaverkefni. Meðal verkefna
eru Katla og Netflix-myndin Aga-
inst the Ice. „Í þessu starfi hef ég
verið einskonar milliliður milli tón-
skálds og leikstjóra. Ég tek til að
mynda tónlist sem tónskáldið hefur
samið og stilli henni upp, vel músík
fyrir senur og sýni leikstjóra. Þetta
er alls konar handavinna og fyrir
vikið fær tónskáldið meiri frið til að
semja tónlistina.“
Stór verkefni sem bíða
Inga tók við starfinu hjá Wise
Music fyrr á þessu ári. „Ég þurfti
aðeins að hugsa mig um og átta mig
á því hvort Ísland væri tilbúið fyrir
starf sem þetta, hvort hér væri nóg
af verkefnum. Eftir að hafa talað við
fólk í bransanum komst ég að því að
svo væri. Verkefnin hér eru orðin
svo stór og fram til þessa hefur eng-
inn verið að halda utan um kvik-
myndatónlist á Íslandi, hvorki fyrir
framleiðendur né tónskáldin.“
Hún segir að verkefni séu þegar
farin að hrúgast inn. „Ég hef eig-
inlega verið að drukkna í fundum
síðan ég byrjaði fyrir tveimur mán-
uðum. Það eru þegar komin tvö
kvikmyndaverkefni og fleiri eru að
raðast upp. Það virðast allir vera
fegnir því að loksins sé einhver með
tónlistarþekkingu kominn til Íslands
til að halda utan um þessi mál.“
Rennir ekki blint í sjóinn
Wise Music er alþjóðlegt fyrir-
tæki sem m.a. sérhæfir sig í útgáfu
kvikmyndatónlistar. Inga segir að
tónskáldið Ólafur Arnalds sé þar á
mála og sama gilti um Jóhann Jó-
hannsson heitinn. Starf „music su-
pervisors“ hefur löngum þótt sjálf-
sagt á stærri mörkuðum og hefur
síðustu ár verið að þróast í ná-
grannalöndunum. Inga verður í raun
sjálfstætt starfandi á Íslandi en
vinnur í samstarfi við skrifstofu
Wise Music í Kaupmannahöfn. „Það
er mikil reynsla á þessu sviði þar.
Fólkið í Kaupmannahöfn hefur farið
í gegnum þetta allt, að byrja svona
starfsemi og leyfa henni að þróast.
Þau þekkja af eigin reynslu hvað það
hefur gagnast kvikmyndafram-
leiðslu að þessi staða varð til. Fyrir
vikið þarf ég ekki að renna blint í
sjóinn hér, fara íslensku leiðina og
gera allt sjálf.“
Starfið mjög fjölbreytt
Starf Ingu getur verið misjafnt
eftir verkefnum en felur það alla
jafna í sér að hafa yfirsýn yfir tón-
listina í hverju verkefni. Stundum
þarf bara að gera samning um notk-
un á tónlist sem hefur áður verið
gefin út en stundum þarf einnig að
velja þá tónlist. „Svo er það líka að
velja tónskáld, sitja með leikstjóra
og framleiðendum og hjálpa þeim að
túlka sína sýn og hvað þeir vilja fá út
úr tónlistinni. Eftir það get ég þurft
að sjá um verkefnastjórn, skil á efni
og alls kyns samskipti.“
Ung tónskáld fái tækifæri
Inga segir að reynsla sín af því
að vera milliliður milli tónskálds og
leikstjóra nýtist vel í nýja starfinu.
„Ég kann bisness-hliðina, hvernig
þetta virkar allt saman. Ég hef hitt
margt hæfileikafólk síðustu ár sem
veit ekki hvað það á að gera til að
koma sér á framfæri. Ég sé fyrir
mér að ég geti hjálpað til við að gefa
upprennandi tónskáldum tækifæri
til að sanna sig og opna fyrir þau
dyrnar. Framleiðendur eru kannski
líklegri til að hleypa nýju fólki að ef
ég stend að baki því og styð við það.
Ég held að þetta geti því gagnast
bæði framleiðendum og tón-
skáldum.“
Fyrirtæki horfa til Íslands
Mikil gróska hefur verið í kvik-
myndabransanum á Íslandi síðustu
ár. Fjöldi stórra sjónvarpsþáttaraða
hefur verið framleiddur hér og ekk-
ert lát virðist vera á gerð leikinna
kvikmynda. „Ég er ekki viss um að
það hefði verið grundvöllur fyrir
þessari stöðu fyrir tíu árum. Eftir að
Hildur Guðna vann óskarinn hafa ís-
lensk tónskáld vakið meiri athygli og
erlend framleiðslufyrirtæki eru far-
in að horfa hingað af þeim sökum.
Nú er allt í kringum tónlistar-
framleiðsluna í kvikmyndagerð að
verða mun stærri pakki en áður og
það er ekki að hægt að setja allt sem
að henni snýr á hendur tónskáld-
anna. Þau hjá Wise Music urðu ein-
mitt vör við skort á fagmannlegri yf-
irsýn kvikmyndatónlistar á Íslandi,
þ.e. „music supervision“. Núna er ég
ein á skrifstofu en þeirra langtíma
hugmynd er að skrifstofan muni
stækka. Þau eru líka ánægð með þá
athygli sem ég fengið í bransanum
eftir að ég var ráðin. Þau eru eig-
inlega í skýjunum yfir því hvað ég
hef farið á marga mikilvæga fundi og
hvað margir eru áhugasamir um
þessa stöðu.“
Alltaf heillast af kvikmyndabransanum
Inga Weisshappel var
fyrr á árinu ráðin „music
supervisor“ hjá Wise
Music Group. Hún er sú
fyrsta sem gegnir slíku
starfi á Íslandi og segir
að ekki sé vanþörf á
sökum uppgangs í kvik-
myndabransanum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frumkvöðull Inga Weisshappel er að líkindum fyrsta manneskjan sem starfar sem „music supervisor“ á Íslandi. Hún starfar fyrir Wise Music Group.
Sextíu ára af-
mæli rokk-
hljómsveit-
arinnar Rolling
Stones verður
fagnað með heið-
urstónleikum í
Gamla bíói í
kvöld. Heið-
urshljómsveitin
Stóns stendur
fyrir tónleik-
unum en þá munu einnig koma fram
vel valdir einstaklingar úr íslensku
tónlistarlífi. Stóns hafa vakið athygli
fyrir færni og líflega sviðsframkomu
og þykir hljómsveitin koma tónlist-
inni vel til skila. Hana skipa þeir
Björn Stefánsson, Bjarni M. Sigurð-
arson, Birgir Ísleifur Gunnarsson,
Karl Daði Lúðvíksson og Frosti Jón
Runólfsson. Uppselt er á viðburðinn
sem átti upprunalega að fara fram í
Háskólabíói.
60 ára afmælistónleikar
Stóns spila til
heiðurs Stones
Stóns Íslensku
Rolling Stones.