Morgunblaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það var í desember síðast-
liðnum sem þær Hekla og
Lilja María frumfluttu verkið
Lofthjúp í Hannesarholti en það var
samið fyrr á árinu 2021. Verkið er
samið fyrir þeramín, píanó og hljóð-
skúlptúrinn Huldu sem Lilja María
hannaði. Auk þess léku þær nokkur
af fyrstu rafverkunum sem samin
voru á síðustu öld, verk sem eru
skrifuð fyrir þeramín og píanó, en
elsta verkið var samið 1929. Á efnis-
skránni voru meðal annars verk eftir
Joseph Schillinger, Isidor Achron,
Friedrich Wilkens og Isaac Silva.
Þær hafa flutt þessa efnisskrá aftur
eftir þetta, t.d. í Mengi í síðasta
mánuði þegar þær héldu nokkurs
konar útgáfutónleika en þá var hægt
að kaupa nótur og forskrift að verk-
inu sem m.a. innihéldu niðurhals-
kóða að plötunni.
Hekla er kunn fyrir störf sín
sem nútímatónskáld og þeramínleik-
ari og hefur gefið út nokkrar plötur
sem lofaðar hafa verið hérlendis sem
erlendis. Lilja María er sömuleiðis
tónskáld og leggur stund á doktors-
nám í tónsmíðum í London. Verk
hennar hafa snúist um að tengja tón-
list, myndræna miðla og sviðslistir.
Hún er þá hluti af Hlökk ásamt Ingi-
björgu Ýri Skarphéðinsdóttur og
Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Plata
þeirra frá 2019, Hulduljóð, var mikið
lofuð og fékk m.a. Kraumsverðlaun.
Lilja hefur auk þess unnið að fjölda-
mörgum hljóðskúlptúrum en nánar
má lesa um þá hér: www.liljamaria-
.com.
Pistilritari setti sig í samband
við Heklu og innti hana eftir því
Göróttur galdraseiður
hvernig þetta samstarf hefði orðið
að veruleika. „Við Lilja vorum sam-
an í tónlistardeildinni í LHÍ og við
kynntumst þar,“ svarar hún. „Okkur
langaði að semja verk fyrir hljóð-
skúlptúra-hörpuna hennar (Huldu)
og þeramín og prófa að framkalla
líka öðruvísi hljóð á hljóðfærin.“
Hekla segir að í viðbót við verk-
ið nýja, Lofthjúp, hafi þær haft gam-
an af því að gramsa í eldri raftónlist,
þá frá þriðja áratug síðustu aldar.
„Það var pínu vesen að finna nót-
urnar,“ segir hún og hlær. „Okkur
fannst einfaldlega forvitnilegt að
skoða þessa hundrað ára gömlu tón-
list og gera svo nýja svoleiðis tónlist
ef svo mætti segja. Einhver heil-
hringur. Það er líka merkilegt að
þeramínið er „skrifað“ mjög hefð-
bundið út fyrir þessi gömlu verk,
eins og það sé fyrir fiðlu eða rödd á
meðan við erum með annan hátt á,
ég er að „lúppa“ („lykkja“), gera ísk-
ur og svoleiðis.“
Hekla segir að „Huldan“ henn-
ar Lilju sé líka mikið galdratæki og
erfitt að temja það. Öfugt við þessa
eldgömlu raftónlist sem var afar
öguð og „klassísk“.
Verkið, Lofthjúpur, hangir inni
á Bandcamp (https://duother-
elda.bandcamp.com/releases) en
Hekla leggur áherslu á að eðli verks-
ins sé að vera mjög breytilegt og
þetta verk á Bandcamp engan veg-
inn endanleg „niðurstaða“. Fyrsta
lagið þar er spilað með því að beita
skopparabolta á Hulduna en þann
gjörning má sjá á instagramsíðu
Heklu. Verkin eru ansi mögnuð,
hljóðvinna skiptir greinilega miklu;
þau eru skerandi, ískrandi og köld
en hleypa um leið melódíum í gegn-
um sig. Svona rétt svo (sjá „II“).
Sum eru þá meira afstrakt og af-
dráttarlaus. En heyrn er sögu
ríkari!
Hekla segir að lokum að hún
ætli að gefa út plötu undir Heklu-
nafninu í ár. „Ég verð eitthvað að
spila í sumar og er svona að fara í
gang aftur. Lilja er í náminu eins og
stendur. En til stendur að spila að-
eins meira í sumar sem Duo Ther-
elda og kannski bæta langspili í
verkið.“
»
Verkin hér eru
ansi mögnuð, hljóð-
vinna skiptir greinilega
miklu; þau eru skerandi,
ískrandi og köld en
hleypa um leið meló-
díum í gegnum sig.
Duo Therelda er heiti
á nýrri sveit eður verk-
efni sem þær Hekla
Magnúsdóttir og Lilja
María Ásmundsdóttir
standa að.
Rökkur Þær Lilja
María og Hekla kalla
sig Duo Therelda.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
EMPIRE
VARIET Y
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. 75%
U S A T O D AY
89%
Marcus Miller,
sem talinn er
meðal áhrifa-
mestu bassa-
leikurum sam-
tímans í djassi,
R&B og sálar-
tónlist, heldur
tónleika í Eld-
borg í Hörpu 6.
júlí. Hefur Mill-
er unnið til tvennra Grammy-
verðlauna, hlotið fengið Edison
Lifetime Achievement In Jazz-
verðlaunin í Hollandi og Vic-
toire du Jazz-verðlaunin í
Frakklandi 2013 auk þess að
vera útnefndur fulltrúi sem
UNESCO Artist For Peace sama
ár. Í tilkynningu segir að ein-
kennandi bassaleik hans megi
heyra í óteljandi lögum og að
tímaritið Bass Player hafi sett
hann á lista yfir tíu áhrifamestu
djasstónlistarmenn sinnar kyn-
slóðar. Miller hefur starfað með
mörgum sögufrægum tónlist-
armönnum, meðal annars
Arethu Franklin, Wayne Shorter
og Miles Davis.
Marcus Miller á
tónleikum í Hörpu
Marcus Miller
Málverkasýn-
ingin Ab-
straktið í
grjótinu var
opnuð í gær í
Mjólkurbúðinni,
sal Myndlist-
arfélags Ak-
ureyrar, að
Kaupvangs-
stræti 12, og
stendur yfir til
25. apríl. Er það einkasýning
listmálarans Halldórs Kristjáns-
sonar þar sem til sýnis verða
landslagsmyndir málaðar í
fyrra og á þessu ári.
Segir í tilkynningu að mynd-
irnar séu tilraun listamannsins
til að fanga hughrifin af því að
standa einn úti í náttúrunni og
þeirri tilfinningu að vera sjálfur
hluti hennar. „Þær fanga örlítið
af þeirri ró og lífsorku sem hún
hefur fram að færa,“ segir þar.
Málverk sem fanga
ró og lífsorku
Halldór
Kristjánsson