Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Póstdreifing
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Verður stífla bráðamóttökunnar losuð? Samið við sérfræðilækna? Verkefnum útvistað í meira mæli?
Svarið er já, segir Willum Þór Þórsson, nýr heilbrigðisráðherra, á fyrstu dögum í starfi. Þá nýbúinn að
ráða Björn Zoëga, forstjóra Karólínska og áður Landspítala, sem ráðgjafa
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Það er aðkallandi að semja við sérfræðilækna,“
segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
„Það er aðkallandi að semja við alla sem sinna
heilbrigðisþjónustu.“ Kerfið spili best saman
stefni allir að sama marki.
„Ég þarf nú að finna út úr því hvar raunveru-
lega steytir til að búa til samningsgrundvöll að
nýju,“ segir Willum. Beggja vegna borðsins þurfi
að anda með nefinu, núllstilla sig. „Við hljótum
að horfa á það þannig; að samningar séu ákjós-
anlegt fyrirkomulag.“
Willum hefur látið til sín taka á fyrstu dögum
í embætti. Meðal annars gert Landspítala kleift
að útvista 175 aðgerðum til að stytta biðlista.
„Já,“ svarar Willum, spurður hvort búast megi
við því að fleiri verkefnum verði útvistað af
spítalanum. „Það þarf samt að vera í samhengi
við kjarnastarfsemi spítalans,“ segir hann og að
þeir sem sinni þjónustunni þurfi að meta hvaða
aðgerðum sé skynsamlegast að útvista.
„Spítalinn er á réttri leið með þetta. Ég fagna
því að við nýtum allt kerfið,“ segir ráðherrann.
Horfa þurfi á þarfir fólksins umfram rekstr-
arformið. Þá þurfi að koma upp miðlægum
biðlista svo fólk sé ekki tvískráð. „Við þurfum að
tryggja þjónustuna innan viðunandi tíma.“ Ný
stjórn spítalans að norrænni fyrirmynd komi að
þeim málum. „Karólínska er með svona stjórn.
Hún hefur bæði reksturinn og skipulagið með
höndum.“ En hver eiga að sitja í stjórninni? Enn
óákveðið, svarar Willum. „Þetta er eitt af helstu
verkefnum Björns í ráðgjöf.“
Willum segir að breyta þurfi lögum áður en
stjórnin verði skipuð og það taki tíma. Hann
skilji vel tortryggni gagnvart áformunum því for-
stjóri og ráðherra hafi haft bein samskipti hingað
til, sem geti auðveldað flóknar ákvarðanir.
„En okkur hefur ekki tekist að ná utan um
starfsemina. Við fáum reglulega neyðaróp um að
það vanti fjármagn og fólk, stíflur séu á spítal-
anum og bráðamóttakan reglulega undir ágjöf,“
segir hann og því vert að skipa stjórn til að ná
fram breytingum. „Ef við finnum í þessari vinnu
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar
að fylgja stjórnarsáttmálanum og ná árangri í að
breyta heilbrigðiskerfinu með þarfir þeirra sem
þurfa þjónustu að leiðarljósi. Mynd/gag
Hlustið á viðtalið
á hlaðvarpi
Læknablaðsins
Aðkallandi að semja
við sérfræðilækna
að stjórn er ekki til bóta, hljótum við að skoða
það.“
Hann segir að ekki hafi verið ákveðið hvort
hreyft verði við ráðningarferli forstjóra þar sem
stjórnin hafi ekki verið skipuð. „Enda geri ég mér
grein fyrir því að þetta er ekki allt að gerast í
réttri röð,“ segir hann.
En hvað með samninga við einkaaðila um
opnun hjúkrunarrýma til að losa stífluna á
bráðamóttökunni? „Já, ég mun skoða það,“ segir
hann. Greina þurfi hópinn sem stífli bráðamót-
tökuna og sjá hver þjónustuþörfin sé og gera í
kjölfarið heiðarlega tilraun til að leysa vandann.
„Ég geri mér grein fyrir því að heilbrigðismál
eru stór og viðkvæmur málaflokkur á margan
hátt. Til að halda einbeitingu horfi ég á stjórn-
arsáttmálann. Þar eru áherslurnar,“ segir hann.
„Ég mun leggja mig allan fram enda heilbrigðis-
þjónusta þjóðinni hjartans mál.“
Í boltanum með Birni Zoëga
Körfuboltanum, staðfestir Willum heilbrigðisráð-
herra og fyrrum knattspyrnuþjálfari þegar hann
er spurður hvort hann hafi á sínum tíma verið í
boltanum með Birni Zoëga, forstjóra Karólínska
sjúkrahússins og nýráðnum ráðgjafa sínum í
heilbrigðismálum.
„Á árum áður var hann í Val og ég í KR. Svo
var hann okkur innan handar sem læknir hjá Val
þegar ég þjálfaði. Ég þekki hann mjög vel,“ segir
Willum, og að gott sé að hafa Björn til ráðgjafar í
erfiðri stöðu spítalans.
„Hann er hreinskiptinn; kemur sér beint að
efninu. Ofsalega góður og ég því hamingjusamur
með þetta. Hann er forstjóri Karólínska og þekk-
ir allt það sem stjórnarsáttmálinn segir til um að
ráðist verði í og styður við það sem ná þarf utan
um í starfseminni á spítalanum þannig að fólki líði
betur. Þetta snýst allt um það. Hann þekkir bæði
spítalann, hvernig aðrir af þessari stærðargráðu
og stærri vinna með stjórn.“
Nú er
nóg
komið
Fyrirbyggjum mígreni
AIMOVIG® ER ÆTLAÐ SEM
FYRIRBYGGJANDI MEÐFERÐ
HJÁ FULLORÐNUM MEÐ MINNST
4 MÍGRENISDAGA Í MÁNUÐI1
Aimovig 70 mg og 140 mg stungulyf, lausn í áfylltum lyfjapenna.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Markaðsleyfishafi:
Novartis Europharm Limited. Nálgast má upplýsingar um lyfið, fylgiseðil þess og gildandi
samantekt á eiginleikum lyfs á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is.
HEIMILDIR: 1. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM AIMOVIG, WWW.SERLYFJASKRA.IS
A
IM
2020/01–04/IS