Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 47 Dagur í lífi augnlæknis 06.50 Heyri óminn af útvarpinu sem vekur mig, að þessu sinni BBC, ég snúsa í nokkur skipti á gömlu útvarpsvekjara- klukkunni áður en ég kem mér framúr. Byrja daginn venjulega á teygjum. Löng og heit sturta tekur svo við og þá vaknar maður fyrir alvöru. Ég ólst upp á hafra- graut í morgunmat og hef haldið því nokkuð óslitið síðan. Þegar maður var í sveit var það mjólk og súrt slátur með, en því nú skipt út fyrir rjóma og bláber. Ekki gleyma lýsinu. Kíkt í Fréttablaðið, en í dag er færsla frá okkur Tomma með Fókus á hjarta landsins. 7.45 Byrja daginn hjá Stefáni sjúkraþjálf- ara uppí Urðarhvarfi. 8.30 Mættur í Sjónlag, byrjum á kaffi á kaffistofunni. Í dag er ég með laseraðgerð- ir fyrir hádegi og móttöku eftir hádegi. Skipti um föt og kíki inn á skurðstofu þar sem búið er að starta lasertækjunum báðum en það tekur um 30 mínútur, ég líki þessu oft við það að starta Júmbóþotu, endalaust tékk og krosstékk. Tækninni hefur hins vegar fleygt mikið fram í sjón- lagsaðgerðum en við vorum einmitt að endurnýja Femtosecond-laserinn okkar sem útbýr flipann fremst í hornhimnunni. Frábær tækni og fullt af nýjum möguleik- um. Ég byrja á að plana hverja aðgerð fyrir sig, notuð eru gögn úr topografiunni ásamt refraksjon og mynd af lithimnu. Útbúin tölvuskrá sem síðan er hlaðið inní Excimer-laserinn. Þannig þekkir laserinn augað sem á að meðhöndla (tryggir öryggi) og eltir þannig minnstu hreyfingar augans (tryggir nákvæmni). Þessar aðgerðir taka fram að hádegi með einni kaffipásu. Hver aðgerð tekur ca 10- 15 mínútur. Við erum þrjú sem komum að aðgerðum, hjúkrunarfræðingur og sjúkraliði. 12.00 Hádegishlé, af gömlum vana frá Noregi, brauð með osti og kaffi. Síðan beint á fund. Erum að þróa fjarlækninga- þjónustu úti á landi. Sjónlag opnaði starfs- stöð í Vestmannaeyjum í haust í sam- vinnu við HSU. Mjög spennandi verkefni þar sem tæknin er nýtt til að mynda og rannsaka augu í Eyjum og síðan lesið úr myndunum í Sjónlagi í Reykjavík. Fyrstu vikurnar lofa mjög góðu en við erum að þróa ferla í kringum þetta til að tryggja gæði og ekki síst flæði upplýsinga. 13.00 Móttaka eftir hádegi, uppistaðan í verkefnum dagsins eru sjúklingar með hrörnun í augnbotnum, alltof algengur sjúkdómur hjá öldruðum sem skerðir lífsgæði umtalsvert. Vinnan snýst um sjónmælingar og skoðun með greiningu á augnbotnamyndum, ekki síst sneið- myndum og æðamyndum af sjónhimnu. Tækniframfarirnar í myndgreiningu hafa fært þetta fag uppá nýtt plan. Hægt er að fletta í lögum sjónhimnunnar og skoða og greina frá öllum hliðum. Sífelldur straumur nýrra lyfja hefur gjörbreytt horf- um þessara sjúklinga, en þau verður að gefa með inndælingu í glerhlaup augans. Þennan eftirmiðdaginn snýst því um- ræðan aðallega um ökuskírteinið, handa- vinnu, lestur og að sjá barnabörnin. Að reyna að halda í þetta í lengstu lög. Svara inn á milli tölvupóstum. Næ kaffibolla með staffinu inn á milli, mikil gleði. Ég er alltaf jafn þakklátur fyrir þennan vinnustað. 16.00 Næ að klára daginn á tilsettum tíma, hleyp út og beint í ræktina í Laug- um. Þar er ég með Þóru konunni minni í þjálfun tvisvar í viku. Nauðsynlegt yfir vetrartímann til að halda sér í formi fyrir alla útivistina á vorin og sumrin. Slökun eftir æfingu í gufubaði. 18.00 Við bara tvö í mat, menntskæl- ingurinn í próflestri og kemur seint heim. Orðið æ algengara eftir að elstu þrjú fluttu að heiman, að við séum bara tvö í kvöldmat. Lífsins gangur. 19.00 Löngu hættur að horfa á fréttir eða að fylgjast með netmiðlum. Tóm nei- kvæðni. Sest við tölvuna og held áfram með klippiverkefni, er að setja saman jólakveðju úr efni ársins. Af nógu að taka. Klára að vinna myndir frá Austfjörðum síðastliðið sumar. Svara erindum þar sem óskað er eftir myndum fyrir ýmis verkefni, svo sem að skreyta stigaganga eða myndskeið fyrir Umhverfisstofnun. Bjallaði í Tomma og fór yfir næstu færslu í Fréttablaðið. Heyrum í syni okkar sem býr í Kaupmannahöfn með kærustu sinni. 22.00 Kominn uppí rúm frekar snemma, í takt við skammdegið. Klára þátt á Net- flix og enda svo á Hallgrími Helgasyni – Sextíu kíló af kjaftshöggum. Gengur hægt, en þessa frábæru bók er bara betra að lesa hægt. 23.00 Kveikt á vekjaraklukkunni, man ekki meir … Ólafur Már Björnsson Sjónlagi augnlæknastöð í Glæsibæ Með Ólafi Má á myndinni eru Heiðrún Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur og Frið- mey Baldursdóttir sjúkraliði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.