Læknablaðið - 01.01.2022, Qupperneq 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 47
Dagur í lífi augnlæknis
06.50 Heyri óminn af útvarpinu sem
vekur mig, að þessu sinni BBC, ég snúsa
í nokkur skipti á gömlu útvarpsvekjara-
klukkunni áður en ég kem mér framúr.
Byrja daginn venjulega á teygjum. Löng
og heit sturta tekur svo við og þá vaknar
maður fyrir alvöru. Ég ólst upp á hafra-
graut í morgunmat og hef haldið því
nokkuð óslitið síðan. Þegar maður var í
sveit var það mjólk og súrt slátur með, en
því nú skipt út fyrir rjóma og bláber. Ekki
gleyma lýsinu. Kíkt í Fréttablaðið, en í dag
er færsla frá okkur Tomma með Fókus á
hjarta landsins.
7.45 Byrja daginn hjá Stefáni sjúkraþjálf-
ara uppí Urðarhvarfi.
8.30 Mættur í Sjónlag, byrjum á kaffi á
kaffistofunni. Í dag er ég með laseraðgerð-
ir fyrir hádegi og móttöku eftir hádegi.
Skipti um föt og kíki inn á skurðstofu
þar sem búið er að starta lasertækjunum
báðum en það tekur um 30 mínútur, ég
líki þessu oft við það að starta Júmbóþotu,
endalaust tékk og krosstékk. Tækninni
hefur hins vegar fleygt mikið fram í sjón-
lagsaðgerðum en við vorum einmitt að
endurnýja Femtosecond-laserinn okkar
sem útbýr flipann fremst í hornhimnunni.
Frábær tækni og fullt af nýjum möguleik-
um. Ég byrja á að plana hverja aðgerð
fyrir sig, notuð eru gögn úr topografiunni
ásamt refraksjon og mynd af lithimnu.
Útbúin tölvuskrá sem síðan er hlaðið
inní Excimer-laserinn. Þannig þekkir
laserinn augað sem á að meðhöndla
(tryggir öryggi) og eltir þannig minnstu
hreyfingar augans (tryggir nákvæmni).
Þessar aðgerðir taka fram að hádegi með
einni kaffipásu. Hver aðgerð tekur ca 10-
15 mínútur. Við erum þrjú sem komum
að aðgerðum, hjúkrunarfræðingur og
sjúkraliði.
12.00 Hádegishlé, af gömlum vana frá
Noregi, brauð með osti og kaffi. Síðan
beint á fund. Erum að þróa fjarlækninga-
þjónustu úti á landi. Sjónlag opnaði starfs-
stöð í Vestmannaeyjum í haust í sam-
vinnu við HSU. Mjög spennandi verkefni
þar sem tæknin er nýtt til að mynda og
rannsaka augu í Eyjum og síðan lesið úr
myndunum í Sjónlagi í Reykjavík. Fyrstu
vikurnar lofa mjög góðu en við erum að
þróa ferla í kringum þetta til að tryggja
gæði og ekki síst flæði upplýsinga.
13.00 Móttaka eftir hádegi, uppistaðan
í verkefnum dagsins eru sjúklingar með
hrörnun í augnbotnum, alltof algengur
sjúkdómur hjá öldruðum sem skerðir
lífsgæði umtalsvert. Vinnan snýst um
sjónmælingar og skoðun með greiningu
á augnbotnamyndum, ekki síst sneið-
myndum og æðamyndum af sjónhimnu.
Tækniframfarirnar í myndgreiningu hafa
fært þetta fag uppá nýtt plan. Hægt er að
fletta í lögum sjónhimnunnar og skoða
og greina frá öllum hliðum. Sífelldur
straumur nýrra lyfja hefur gjörbreytt horf-
um þessara sjúklinga, en þau verður að
gefa með inndælingu í glerhlaup augans.
Þennan eftirmiðdaginn snýst því um-
ræðan aðallega um ökuskírteinið, handa-
vinnu, lestur og að sjá barnabörnin. Að
reyna að halda í þetta í lengstu lög.
Svara inn á milli tölvupóstum. Næ
kaffibolla með staffinu inn á milli, mikil
gleði. Ég er alltaf jafn þakklátur fyrir
þennan vinnustað.
16.00 Næ að klára daginn á tilsettum
tíma, hleyp út og beint í ræktina í Laug-
um. Þar er ég með Þóru konunni minni í
þjálfun tvisvar í viku. Nauðsynlegt yfir
vetrartímann til að halda sér í formi fyrir
alla útivistina á vorin og sumrin. Slökun
eftir æfingu í gufubaði.
18.00 Við bara tvö í mat, menntskæl-
ingurinn í próflestri og kemur seint heim.
Orðið æ algengara eftir að elstu þrjú
fluttu að heiman, að við séum bara tvö í
kvöldmat. Lífsins gangur.
19.00 Löngu hættur að horfa á fréttir
eða að fylgjast með netmiðlum. Tóm nei-
kvæðni. Sest við tölvuna og held áfram
með klippiverkefni, er að setja saman
jólakveðju úr efni ársins. Af nógu að taka.
Klára að vinna myndir frá Austfjörðum
síðastliðið sumar. Svara erindum þar
sem óskað er eftir myndum fyrir ýmis
verkefni, svo sem að skreyta stigaganga
eða myndskeið fyrir Umhverfisstofnun.
Bjallaði í Tomma og fór yfir næstu færslu í
Fréttablaðið. Heyrum í syni okkar sem býr
í Kaupmannahöfn með kærustu sinni.
22.00 Kominn uppí rúm frekar snemma,
í takt við skammdegið. Klára þátt á Net-
flix og enda svo á Hallgrími Helgasyni
– Sextíu kíló af kjaftshöggum. Gengur hægt,
en þessa frábæru bók er bara betra að lesa
hægt.
23.00 Kveikt á vekjaraklukkunni, man
ekki meir …
Ólafur Már Björnsson
Sjónlagi augnlæknastöð í Glæsibæ
Með Ólafi Má á myndinni eru Heiðrún
Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur og Frið-
mey Baldursdóttir sjúkraliði.