Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 7 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Science and the future of the Icelandic health care system - high expectations for the new Minister of Health Helga Ágústa Sigurjónsdóttir MD, PhD, clinical professor Landspitali University Hospital and Faculty of Medicine, School of Health Sciences, University of Iceland, Senior consultant at Laeknasetur Outpatient clinic. Chief Editor of the Icelandic Medical Journal Vísindi og framtíð heilbrigðiskerfisins á Íslandi – miklar væntingar til nýs heilbrigðisráðherra Vísindi eru undirstaða styrks heilbrigðiskerfis. Liðið ár markaði mörg mikilvæg vísindaleg tíma- mót. Byltingarkennd bóluefni gegn SARS2-COVID 19 veirunni voru markaðssett um áramótin 2020- 2021 og bólusetningar almennings hófust í ársbyrj- un 2021. Aldrei höfðu vísindamenn náð eins hratt árangri í þróun bóluefna, sem sjaldan hefur verið eins mikilvægt. Heimsfaraldrinum er ekki lokið, vísindavinnan heldur áfram. Skilningur var á mikil- vægi vísindavinnu varðandi faraldurinn og íslenskir vísindamenn fengu áheyrn þjóðarinnar og þeirra er stýra fjármagninu. Vísindavinna sem íslensk þjóð getur verið stolt af. Söguleg vísindaleg tímamót urðu með markaðs- setningu nýs bóluefnis gegn malaríu og aldarafmæli var frá uppfinningu insúlíns. Sú þróun sem síðan hefur átt sér stað í meðferð með nýjum lyfjum og aukinni tækni heldur áfram að auka lífsgæði og lif- un einstaklinga með sykursýki sem byggir á þrot- lausri vísindavinnu. En fleiri þættir en heimsfaraldurinn reyndu á lýðheilsu þjóðarinnar árið 2021, svo sem jarðskjálft- ar, eldgos, efnahagsvandi í kjölfar heimsfaraldurs, minnkandi hreyfing í samkomutakmörkunum og mögulega hafa einhverjir sjúkdómar og greiningar fallið í skuggann af yfirstandandi heimsfaraldri. Það er heilbrigðiskerfisins að standa vörð um það með vísindalegri nálgun og eins og alltaf eru raddir lækna þar verulega mikilvægar. Læknablaðið flutti efni um allt ofangreint á liðnu ári, ásamt fjölda annarra mikilvægra leiðara, bréfa til blaðsins og ekki síst lýsinga sjúkratilfella og vísinda- greina frá íslenskum læknum. Blaðið er leiðandi í birtingu íslensks vísindaefnis innanlands. Skemmti- legt efni berst frá ungum sem öldnum læknum alls staðar að auk þess sem blaðið falast eftir að halda á lofti mikilvægum umræðuefnum innan heilbrigð- iskerfisins. Lestur fræðigreina og leiðara gegnum PubMed og almennt á netinu hefur aukist með ár- unum frá því slíkar mælingar hófust 2012, og 2021 barst blaðinu mesti fjöldi vísindagreina í gegnum ScholarOne frá upphafi notkunar þess grunns, en frá 2015 fara allar fræðigreinar til blaðsins í gegnum ScholarOne. Læknablaðið hefur alltaf staðið læknum nærri og þessar tölur bera þess skýr merki. Theódór Skúli Sigurðsson og Margrét Ólafía Tómasdóttir hverfa nú úr ritstjórn blaðsins og er þakkað fyrir góð störf, ásamt öllum sem á einhvern hátt hafa komið að efni blaðsins með skrifum eða ritrýni á liðnu ári. Nýir læknar eru boðnir vel- komnir í ritstjórn. Gunnar Thorarensen lauk námi í svæfinga-og gjörgæslulækningum frá Sahlgrenska Háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg. Hann starfar nú á Landspítala og er kennslustjóri sérnámslækna í því fagi. Hann tók þátt í endurskoðun nýs Codex Ethicus, birt í þessu tölublaði. Lilja Sigrún Jónsdóttir lauk sérfræðinámi í heimilislækningum á Íslandi og starfar á Heilsugæslu Efstaleitis. Hún er með Dr.Sc gráðu í faraldsfræði og tölfræði frá Erasmus háskól- anum í Rotterdam. Hún hefur meðal annars starfað að vísindum hjá Hjartavernd og verið verkefnastjóri í samvinnuverkefni Evrópuþjóða. En þrátt fyrir augljóst mikilvægi vísindavinnu hefur hún staðið höllum fæti á Íslandi síðastliðin ár eins og fram hefur komið bæði í ræðu og riti. Hlutfallslegum tilvitnunum í vísindaverk íslenskra lækna hefur fækkað verulega þegar skoðaður er samanburður á milli háskólasjúkrahúsa á Norður- löndum. Sá stuðull fyrir Landspítala fer úr því að vera leiðandi á Norðurlöndum í það að vera í lægsta sæti.1 Íslenskir læknar eru sjaldnar í forsæti birtra rannsókna.1 Þetta er áhyggjuefni og er von lækna að aukið fé renni til vísindavinnu sem skapi rými fyrir unga lækna við sín fyrstu spor í vísindavinnu og þeirra eldri sem leiða brautina. Þjóð sem nýtur vaxandi langlífis þarf að bregðast við fjölþættari heil- brigðisvanda með hækkandi aldri og auka fjölda heilbrigðisstarfsfólks. Læknaskortur er þegar farinn að segja til sín á Íslandi. Læknadeild Háskóla Ís- lands hefur ekki getað aukið fjölda læknanema eins og þyrfti og kraftmikið menntafólk leitar erlendis til læknanáms. Læknadeild þarf aukið fé og athygli stjórnvalda. Fjöldi íslenskra læknanema erlendis er jákvæður með tilliti til læknaskorts framtíðarinn- ar. Er ekki eðlilegra að stjórnvöld styðji betur við fjárhag Háskóla Íslands og Landspítala? Vísindi og menntun heilbrigðisstarfsfólks eru órjúfanlega tengd. Fé skortir í báða málaflokka og læknar binda vonir við að nýr heilbrigðisráðherra fái tækifæri til að beita sér fyrir aukinni vísindavinnu með auknu fé til þess málaflokks og til menntunar lækna og heil- brigðismála almennt. Virk vísindavinna og styrk heilbrigðisþjónusta eru undirstaða heilbrigðrar og hamingjusamrar þjóðar. Heimildir 1. Gottfreðsson M. Úr fyrsta sæti í botnsætið á 15 árum – saga um sam- runa og vannýtt tækifæri. Vísbending 2021; 33: 1-4. doi 10.17992/lbl.2022.01.668 Þjóð sem nýtur vaxandi langlífis þarf að bregðast við fjölþættari heilbrigðisvanda með hækkandi aldri og auka fjölda heilbrigðisstarfsfólks. Læknaskortur er þegar farinn að segja til sín á Íslandi. Læknadeild Háskóla Íslands hefur ekki getað aukið fjölda læknanema eins og þyrfti. Helga Ágústa Sigurjónsdóttir sérfræðingur í lyflækning- um og innkirtla- og efna- skiptalækningum, klínískur prófessor við Landspítala og Háskóla Íslands. Sérfræðilæknir Læknasetri. Ritstjóri Læknablaðsins helgaags@landspitali.is 1. Samantekt á eiginleikum lyfs - Eliquis. Ábendingar: Forvörn gegn bláæðasegareki (VTE) hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa gengist undir valfrjáls mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti (eingöngu ELIQUIS (APIXABAN) 2,5 mg). Forvörn gegn heilablóðfalli og segareki í slagæð hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum (non-valvular atrial fibrillation, NVAF) ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum, svo sem sögu um heilablóðfall eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient ischaemic attack, TIA), aldur ≥ 75 ára, háþrýstingi, sykursýki eða hjartabilun með einkennum (NYHA flokkur ≥ II). Meðferð við segamyndun í djúplægum bláæðum (DVT) og lungnasegareki (PE), og forvörn gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki hjá fullorðnum (báðir styrkleikar). *Eliquis dregur marktækt úr hættu á heilaslagi/segareki í slagæð ásamt því að fækka meiriháttar blæðingum í samanburði við warfarín2 VIÐHELDUR JAFNVÆGI* VIÐ NOTKUN ELIQUIS1 SKÖMMTUN TVISVAR Á DAG 432DK1900464-01, PP-ELI-DNK-0247, PFI-21-02-05, febrúar 2021
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.