Læknablaðið - 01.01.2022, Side 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 7
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Science and the future of the
Icelandic health care system
- high expectations for the
new Minister of Health
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
MD, PhD, clinical professor
Landspitali University Hospital
and Faculty of Medicine,
School of Health Sciences,
University of Iceland,
Senior consultant at
Laeknasetur Outpatient clinic.
Chief Editor of the Icelandic
Medical Journal
Vísindi og framtíð heilbrigðiskerfisins
á Íslandi – miklar væntingar til nýs
heilbrigðisráðherra
Vísindi eru undirstaða styrks heilbrigðiskerfis.
Liðið ár markaði mörg mikilvæg vísindaleg tíma-
mót. Byltingarkennd bóluefni gegn SARS2-COVID
19 veirunni voru markaðssett um áramótin 2020-
2021 og bólusetningar almennings hófust í ársbyrj-
un 2021. Aldrei höfðu vísindamenn náð eins hratt
árangri í þróun bóluefna, sem sjaldan hefur verið
eins mikilvægt. Heimsfaraldrinum er ekki lokið,
vísindavinnan heldur áfram. Skilningur var á mikil-
vægi vísindavinnu varðandi faraldurinn og íslenskir
vísindamenn fengu áheyrn þjóðarinnar og þeirra er
stýra fjármagninu. Vísindavinna sem íslensk þjóð
getur verið stolt af.
Söguleg vísindaleg tímamót urðu með markaðs-
setningu nýs bóluefnis gegn malaríu og aldarafmæli
var frá uppfinningu insúlíns. Sú þróun sem síðan
hefur átt sér stað í meðferð með nýjum lyfjum og
aukinni tækni heldur áfram að auka lífsgæði og lif-
un einstaklinga með sykursýki sem byggir á þrot-
lausri vísindavinnu.
En fleiri þættir en heimsfaraldurinn reyndu á
lýðheilsu þjóðarinnar árið 2021, svo sem jarðskjálft-
ar, eldgos, efnahagsvandi í kjölfar heimsfaraldurs,
minnkandi hreyfing í samkomutakmörkunum og
mögulega hafa einhverjir sjúkdómar og greiningar
fallið í skuggann af yfirstandandi heimsfaraldri.
Það er heilbrigðiskerfisins að standa vörð um það
með vísindalegri nálgun og eins og alltaf eru raddir
lækna þar verulega mikilvægar.
Læknablaðið flutti efni um allt ofangreint á liðnu
ári, ásamt fjölda annarra mikilvægra leiðara, bréfa til
blaðsins og ekki síst lýsinga sjúkratilfella og vísinda-
greina frá íslenskum læknum. Blaðið er leiðandi í
birtingu íslensks vísindaefnis innanlands. Skemmti-
legt efni berst frá ungum sem öldnum læknum alls
staðar að auk þess sem blaðið falast eftir að halda
á lofti mikilvægum umræðuefnum innan heilbrigð-
iskerfisins. Lestur fræðigreina og leiðara gegnum
PubMed og almennt á netinu hefur aukist með ár-
unum frá því slíkar mælingar hófust 2012, og 2021
barst blaðinu mesti fjöldi vísindagreina í gegnum
ScholarOne frá upphafi notkunar þess grunns, en
frá 2015 fara allar fræðigreinar til blaðsins í gegnum
ScholarOne. Læknablaðið hefur alltaf staðið læknum
nærri og þessar tölur bera þess skýr merki.
Theódór Skúli Sigurðsson og Margrét Ólafía
Tómasdóttir hverfa nú úr ritstjórn blaðsins og er
þakkað fyrir góð störf, ásamt öllum sem á einhvern
hátt hafa komið að efni blaðsins með skrifum eða
ritrýni á liðnu ári. Nýir læknar eru boðnir vel-
komnir í ritstjórn. Gunnar Thorarensen lauk námi
í svæfinga-og gjörgæslulækningum frá Sahlgrenska
Háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg. Hann starfar nú
á Landspítala og er kennslustjóri sérnámslækna í
því fagi. Hann tók þátt í endurskoðun nýs Codex
Ethicus, birt í þessu tölublaði. Lilja Sigrún Jónsdóttir
lauk sérfræðinámi í heimilislækningum á Íslandi og
starfar á Heilsugæslu Efstaleitis. Hún er með Dr.Sc
gráðu í faraldsfræði og tölfræði frá Erasmus háskól-
anum í Rotterdam. Hún hefur meðal annars starfað
að vísindum hjá Hjartavernd og verið verkefnastjóri
í samvinnuverkefni Evrópuþjóða.
En þrátt fyrir augljóst mikilvægi vísindavinnu
hefur hún staðið höllum fæti á Íslandi síðastliðin
ár eins og fram hefur komið bæði í ræðu og riti.
Hlutfallslegum tilvitnunum í vísindaverk íslenskra
lækna hefur fækkað verulega þegar skoðaður er
samanburður á milli háskólasjúkrahúsa á Norður-
löndum. Sá stuðull fyrir Landspítala fer úr því að
vera leiðandi á Norðurlöndum í það að vera í lægsta
sæti.1 Íslenskir læknar eru sjaldnar
í forsæti birtra rannsókna.1 Þetta er
áhyggjuefni og er von lækna að aukið fé
renni til vísindavinnu sem skapi rými
fyrir unga lækna við sín fyrstu spor í
vísindavinnu og þeirra eldri sem leiða
brautina.
Þjóð sem nýtur vaxandi langlífis
þarf að bregðast við fjölþættari heil-
brigðisvanda með hækkandi aldri
og auka fjölda heilbrigðisstarfsfólks.
Læknaskortur er þegar farinn að segja
til sín á Íslandi. Læknadeild Háskóla Ís-
lands hefur ekki getað aukið fjölda læknanema eins
og þyrfti og kraftmikið menntafólk leitar erlendis
til læknanáms. Læknadeild þarf aukið fé og athygli
stjórnvalda. Fjöldi íslenskra læknanema erlendis er
jákvæður með tilliti til læknaskorts framtíðarinn-
ar. Er ekki eðlilegra að stjórnvöld styðji betur við
fjárhag Háskóla Íslands og Landspítala? Vísindi
og menntun heilbrigðisstarfsfólks eru órjúfanlega
tengd. Fé skortir í báða málaflokka og læknar binda
vonir við að nýr heilbrigðisráðherra fái tækifæri til
að beita sér fyrir aukinni vísindavinnu með auknu fé
til þess málaflokks og til menntunar lækna og heil-
brigðismála almennt.
Virk vísindavinna og styrk heilbrigðisþjónusta
eru undirstaða heilbrigðrar og hamingjusamrar
þjóðar.
Heimildir
1. Gottfreðsson M. Úr fyrsta sæti í botnsætið á 15 árum – saga um sam-
runa og vannýtt tækifæri. Vísbending 2021; 33: 1-4.
doi 10.17992/lbl.2022.01.668
Þjóð sem nýtur vaxandi langlífis þarf að
bregðast við fjölþættari heilbrigðisvanda
með hækkandi aldri og auka fjölda
heilbrigðisstarfsfólks. Læknaskortur er
þegar farinn að segja til sín á Íslandi.
Læknadeild Háskóla Íslands hefur ekki
getað aukið fjölda læknanema eins og
þyrfti.
Helga Ágústa
Sigurjónsdóttir
sérfræðingur í lyflækning-
um og innkirtla- og efna-
skiptalækningum, klínískur
prófessor við Landspítala
og Háskóla Íslands.
Sérfræðilæknir Læknasetri.
Ritstjóri Læknablaðsins
helgaags@landspitali.is
1. Samantekt á eiginleikum lyfs - Eliquis.
Ábendingar: Forvörn gegn bláæðasegareki (VTE) hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa gengist undir valfrjáls mjaðmarliðskipti eða
hnéliðskipti (eingöngu ELIQUIS (APIXABAN) 2,5 mg). Forvörn gegn heilablóðfalli og segareki í slagæð hjá fullorðnum sjúklingum
með gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum (non-valvular atrial fibrillation, NVAF) ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum,
svo sem sögu um heilablóðfall eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient ischaemic attack, TIA), aldur ≥ 75 ára, háþrýstingi,
sykursýki eða hjartabilun með einkennum (NYHA flokkur ≥ II). Meðferð við segamyndun í djúplægum bláæðum (DVT) og
lungnasegareki (PE), og forvörn gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki hjá fullorðnum
(báðir styrkleikar).
*Eliquis dregur marktækt úr hættu
á heilaslagi/segareki í slagæð ásamt því að fækka
meiriháttar blæðingum í samanburði við warfarín2
VIÐHELDUR JAFNVÆGI*
VIÐ NOTKUN ELIQUIS1
SKÖMMTUN TVISVAR Á DAG
432DK1900464-01, PP-ELI-DNK-0247, PFI-21-02-05, febrúar 2021