Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 41

Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 41
Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað starfrækir blandaða lyf- og handlækningadeild, hjúkrunardeild, fæðingardeild og endurhæfingardeild ásamt stoð- deildum, sem og heilsugæslu fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði. Auk lyflæknis starfa svæfingalæknir, skurðlæknir og deildarlæknir á FSN. Þjónustusvæði sjúkrahússins nær frá Bakkafirði til Djúpa- vogs, svæðis sem telur um 11.000 íbúa. Flugvöllur fyrir sjúkraflug er í Neskaupstað. Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT-tæki, ómtæki, speglanatækjum og rannsóknarstofu. Farandsérfræðingar í ýmsum greinum heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræði- þjónustu í nærumhverfinu. Meginhlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjón- ustu, samanber lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, og það er hlekkur í þjónustukeðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum: heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru auk FSN sjö heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar 11 talsins. HSA byggir þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. Sérfræðilæknir í almennum lyflækningum Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í almennum lyflækn- ingum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina. Staðan veitist frá 1. febrúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð • Umsjón með medisinskum sjúklingum á sjúkradeild • Þjónusta við heilsugæslu og göngudeild sjúkrahússins • Þátttaka í vaktþjónustu • Þátttaka í kennslu læknanema og deildarlækna • Ráðgjöf til almennra lækna innan HSA • Þátttaka í þverfaglegri samvinnu og teymisvinnu HSA Hæfniskröfur Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum. Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki telj- ast uppfylla framangreind skilyrði. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Emb- ættis landlæknis; https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/ umsoknir/ til HSA, framkvæmdastjóra mannauðs , Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbaks- notkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 20.01.2022 Nánari upplýsingar veita: Jón H H Sen – jon.sen@hsa.is – sími 470 1450, Pétur Heimisson – petur.heimisson@hsa.is – sími 470­3052 / 860­6830 Frekari upplýsingar um starfið FJARÐABYGGÐ ER ÁKJÓSANLEGUR KOSTUR JAFNT Í STARFI OG LEIK: Samfélagið Í Neskaupstað er sterkt skólasamfélag: leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og verkmenntaskóli. Næsti menntaskóli er á Egilsstöðum. Vegalengdir eru að jafnaði stuttar og fólk því fljótt í förum milli staða, hvort sem um er að ræða t.d. skóla eða þjónustu af ýmsum toga. Íbúarnir eru samheldnir og samfélagið líflegt. Íbúafjöldi er um 1400 manns. Íþróttir Íþróttalífið á svæðinu er fjölbreytt og ýmislegt í boði, svo sem sjósport, fjallgöngur, fótbolti, blak, sund, hestamennska, skíði, golf og karate. Oddskarð er skíðasvæði í fjöllunum milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Það er rómað fyrir náttúrufegurð og góðan aðbúnað. Mjög góður 9 holu golfvöllur er í Norðfirði. Samgöngur Ný Norðfjarðargöng hafa gjörbylt samgöngum í Fjarðabyggð. Egilsstaða- flugvöllur er í aðeins tæplega klukkustundar akstursfjarlægð. Náttúrufegurð Náttúra Austurlands er í senn mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt með að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og náttúruunnendur eru óvíða betur í sveit settir en einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn vilja lóna á fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar. Áhugafólk um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til sjós og lands og allir eru þeir nærtækari en menn gæti að óreyndu grunað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.