Læknablaðið - 01.01.2022, Qupperneq 41
Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN
í Neskaupstað starfrækir blandaða lyf- og handlækningadeild,
hjúkrunardeild, fæðingardeild og endurhæfingardeild ásamt stoð-
deildum, sem og heilsugæslu fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði.
Auk lyflæknis starfa svæfingalæknir, skurðlæknir og deildarlæknir
á FSN. Þjónustusvæði sjúkrahússins nær frá Bakkafirði til Djúpa-
vogs, svæðis sem telur um 11.000 íbúa. Flugvöllur fyrir sjúkraflug
er í Neskaupstað. Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT-tæki,
ómtæki, speglanatækjum og rannsóknarstofu. Farandsérfræðingar í
ýmsum greinum heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræði-
þjónustu í nærumhverfinu.
Meginhlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjón-
ustu, samanber lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, og það
er hlekkur í þjónustukeðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum:
heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru
auk FSN sjö heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar 11 talsins.
HSA byggir þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri
samvinnu.
Sérfræðilæknir í
almennum lyflækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í almennum lyflækn-
ingum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað.
Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina. Staðan
veitist frá 1. febrúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með medisinskum sjúklingum á sjúkradeild
• Þjónusta við heilsugæslu og göngudeild sjúkrahússins
• Þátttaka í vaktþjónustu
• Þátttaka í kennslu læknanema og deildarlækna
• Ráðgjöf til almennra lækna innan HSA
• Þátttaka í þverfaglegri samvinnu og teymisvinnu HSA
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum.
Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika.
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er
réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki telj-
ast uppfylla framangreind skilyrði.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Emb-
ættis landlæknis; https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/
umsoknir/ til HSA, framkvæmdastjóra mannauðs , Lagarási
22, 700 Egilsstöðum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn
fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu
og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi
kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum
umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og
byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbaks-
notkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.01.2022
Nánari upplýsingar veita: Jón H H Sen – jon.sen@hsa.is – sími 470 1450,
Pétur Heimisson – petur.heimisson@hsa.is – sími 4703052 / 8606830
Frekari upplýsingar um starfið
FJARÐABYGGÐ ER ÁKJÓSANLEGUR KOSTUR JAFNT Í STARFI OG LEIK:
Samfélagið
Í Neskaupstað er sterkt skólasamfélag: leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli
og verkmenntaskóli. Næsti menntaskóli er á Egilsstöðum. Vegalengdir eru
að jafnaði stuttar og fólk því fljótt í förum milli staða, hvort sem um er að
ræða t.d. skóla eða þjónustu af ýmsum toga. Íbúarnir eru samheldnir og
samfélagið líflegt. Íbúafjöldi er um 1400 manns.
Íþróttir
Íþróttalífið á svæðinu er fjölbreytt og ýmislegt í boði, svo sem sjósport,
fjallgöngur, fótbolti, blak, sund, hestamennska, skíði, golf og karate.
Oddskarð er skíðasvæði í fjöllunum milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Það er
rómað fyrir náttúrufegurð og góðan aðbúnað. Mjög góður 9 holu golfvöllur
er í Norðfirði.
Samgöngur
Ný Norðfjarðargöng hafa gjörbylt samgöngum í Fjarðabyggð. Egilsstaða-
flugvöllur er í aðeins tæplega klukkustundar akstursfjarlægð.
Náttúrufegurð
Náttúra Austurlands er í senn mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt
með að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og náttúruunnendur
eru óvíða betur í sveit settir en einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn
vilja lóna á fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar. Áhugafólk
um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til sjós og lands og allir eru þeir
nærtækari en menn gæti að óreyndu grunað.