Læknablaðið - 01.05.2022, Síða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 223
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Þetta kom fram í orðum landlæknis á Læknadögum.
Margfaldur munur er á notkun hér á landi og á
Norðurlöndunum. Landlæknir og framkvæmdastjóri
geðheilbrigðismála hjá Heilsugæslunni benda
á að rannsóknir skorti til að meta ástæður
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Fleiri 15-55 ára
konur nota
ADHD-lyf en
karlar á sama aldri
Helmingur barna vaxi upp úr ADHD
Alls 12,1% barna fékk örvandi lyf í fyrra. Þetta
kom fram í hjá landlækni á Læknadögum. Í máli
Guðlaugar Þorsteinsdóttur geðlæknis á mál-
þinginu kom fram að rannsóknir sýni að allt að
helmingur barna vaxi upp úr greiningu sinni á
fullorðinsárum. Því væri best að endurmat færi
fram frá 18 ára aldri.
„Okkur vantar rannsóknir til að geta skýrt þenn-
an mun,“ sagði Alma D. Möller landlæknir á
Læknadögum um þá staðreynd að konur á aldr-
inum 15-55 noti meira af ADHD- lyfjum en karlar.
Hún sagði hins vegar ekki koma á óvart að notk-
unin sé meiri meðal drengja en stúlkna og sýndi
tölur fyrir 5 og 10 ára börn.
Alma benti í erindi sínu á að notkun örvandi
lyfja hafi aukist um tæp 49% frá árinu 2017. Ávís-
aðir skammtar hafi á sama tíma aukist um 56%
og þeim fjölgi sem fái háa skammta hvern dag.
Guðlaug Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
geðheilbrigðismála hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, segir vert að skoða magnið
sem sumir fá ávísað. „Við höfum áhyggjur þegar
við sjáum skammtastærðir umfram það sem
mælt er með. Við sjáum dæmi um einstaklinga
sem taka jafnvel 140 mg tvisvar sinnum á dag af
Elvanse þar sem ráðlagður hámarksskammtur
er 70 milligröm. Engar rannsóknir styðja slíka
notkun. Við þurfum að vera vakandi fyrir
þessu,“ segir hún.
Alma sagði á málþinginu notkun ADHD-lyfja
hafa aukist 85% meira hér en í Svíþjóð á árunum
2016-2020, en Svíar stóðu þó landanum næst í
notkun. Notkun karla hér sé 280% meiri en meðal
sænskra karla. Meðal kvenna sé munurinn 310%.
Alma sagði að rannsaka þyrfti þettatil að skýra
málið en mikilvægt væri að allir sem þurfi með-
ferð fái hana. „Ég tek það fram að ég er ekki að
dæma eitt eða neitt. Þetta eru tölurnar.“
Guðlaug tekur undir að rannsóknir skorti.
„Við höfum ekki kortlagt hvort við greinum of
marga eða of fáa. Heldur ekki hver gæði grein-
inganna séu. En auðvitað hjálpa lyfin heilmik-
ið,“ segir hún og bendir á að 1300 séu nú á
biðlista eftir greiningu.
„Við sjáum veldisvöxt í greiningum á
ADHD,“ segir hún. Lítið hafi verið um grein-
ingar fullorðinna fyrir 20-30 árum. Aðgengi að
geðlækningum sé mikill flöskuháls en þeir
greini og ávísi fyrstu lyfjunum.
„Það er því gríðarleg ásókn á stofulæknana.
Mikill meirihluti tilvísana til þeirra snýst orðið
um ADHD. Það er mikil breyting frá því sem
áður var,“ segir hún. Biðin eftir tíma geti varað í
eitt til þrjú ár.
Landlæknir benti á að leiðbeiningar um
vinnulag við greiningar og meðferð við ADHD
hafi verið endurskoðaðar 2007, 2012 og 2014 og
aftur núna 2022. „Það er mjög mikilvægt að
endurskoða stöðugt verklag og endurmeta ár-
angurinn,“ sagði hún.
Undir það tekur Guðlaug, sem fór einmitt
yfir leiðbeiningarnar nýju fyrir fullorðna á mál-
þinginu. Hún segir að við næstu endurskoðun
megi skoða hvort ráð sé að heimilislæknar og
taugalæknar fái þjálfun í ADHD-greiningum og
lyfjagjöfum.
„Það væri ekki óeðlilegt. Barnalæknir getur
gert þetta hjá börnunum og því mætti staðan
vera sambærileg hjá fullorðnum.“ Heimilislækn-
ar sinna nú þegar eftirfylgni. „Þeir hafa því
þegar mikla reynslu og það væri eðlilegt að
áhugasamir fengju formlega handleiðslu og
þjálfun í greiningunum.“
„Framheilinn þroskast. Mikið af höml-
unum lagast því bæði af utanaðkomandi
ástæðum og/eða vegna einhvers sem gert er.“
Í viðtali við Læknablaðið segir hún ekki kerfis-
bundið skimað eftir þessu en mælt sé með
árlegu viðtali við þá sem séu á ADHD-lyfjum.
Því sé mögulegt að bregðast við þegar ADHD
hættir að hamla einstaklingnum.