Læknablaðið - 01.05.2022, Qupperneq 19
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 239
R A N N S Ó K N
skammtar af DHA hafa hins vegar verið tengdir við auknar líkur
á ógleði, brjóstsviða og aukinni blæðingu í fæðingu vegna blóð-
þynnandi áhrifa.6 Langar ómega-3 fitusýrur er helst að finna í
sjávarafurðum eins og fiski og fiskiolíu. Barnshafandi konum er
ráðlagt að borða fisk tvisvar til þrisvar í viku, þar af feitan fisk
í að minnsta kosti eitt skipti, meðal annars til að ná æskilegum
markmiðum um neyslu á EPA og DHA.4,7 Sem dæmi er í meðal-
skammti (150 g) af þorski um 105 mg EPA og 228 mg DHA, í ýsu
um 143 mg EPA og 195 mg DHA og í laxi 621 mg EPA og 987 mg
DHA. Þessar þrjár máltíðir á einni viku myndu því gefa um það bil
200 mg DHA og 124 mg EPA á dag að jafnaði.8 Undanfarin ár hafa
niðurstöður rannsókna á mataræði íslenskra kvenna á meðgöngu
bent til þess að hluti barnshafandi kvenna nái ekki ráðlögðum
viðmiðum fyrir neyslu á löngum ómega-3 fitusýrum. Þær aðferðir
sem eru almennt notaðar til að kanna mataræði geta þó haft vissa
galla9 og því getur verið gagnlegt að sannreyna niðurstöður með
lífmerkjamælingum.10 Markmið rannsóknarinnar var að meta með
fæðutíðnispurningalista neyslutíðni barnshafandi kvenna á fæðu-
tegundum og bætiefnum sem innihalda langar ómega-3 fitusýrur,
ásamt því að mæla styrk fitusýranna í blóðvökva.
Efniviður og aðferðir
Þátttakendur voru 853 barnshafandi konur úr rannsókninni
PREgnant Women in ICEland II (PREWICE II), sem fór fram á
6 mánaða tímabili frá október 2017 til mars 2018. Konunum var
boðin þátttaka við fósturgreiningu í 11.-14. viku á fósturgrein-
ingardeild Landspítala. Á þessu tímabili voru 1684 konur bókaðar
í fósturgreiningu, sem samsvarar um 77% af heildarfjölda þung-
aðra kvenna á Íslandi á rannsóknatímabilinu. Af þessum hópi
voru 1350 konur sem mættu í skoðun auk þess að uppfylla önnur
skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni sem voru: staðfest þungun
með fósturskimun, að vera í 11.-14. viku meðgöngu við þátttöku
og að geta svarað íslenskum spurningalista. Af þeim 1350 konum
sem boðin var þátttaka í rannsókninni, vildu 335 konur ekki taka
þátt, en 1015 konur samþykktu (76%). Af þeim voru 853 konur sem
veittu blóðsýni ásamt því að hafa aðgengilegar upplýsingar um
meðgönguna í rafrænni sjúkraskrá og eru niðurstöður birtar ein-
göngu fyrir þennan hóp.
Fæðuval var kannað með rafrænum fæðutíðnispurninga-
lista sem innihélt einnig spurningar um notkun bætiefna, aldur,
menntun, fjölda barna, ógleði á meðgöngu, þyngd fyrir meðgöngu
og hæð. Við svörun á spurningalistanum er miðað við fæðuval
undanfarinna þriggja mánaða. Svarmöguleikar varðandi tíðni
fæðuvals eru 10 talsins og eru allt frá: „sjaldnar en einu sinni í
mánuði“ upp í „oftar en 5 sinnum á dag“. Fjallað hefur verið nánar
um spurningalistann í fyrri vísindagreinum.11-14
Blóðsýni voru fengin til fitusýrumælinga hjá þeim konum sem
fóru í blóðsýnatöku sem hluta af fósturskimun við 11.-14. viku
meðgöngu á Landspítala. Sýnin voru unnin innan klukkustundar
þar sem blóðvökvi var aðgreindur í skilvindu við 3000 snúninga á
mínútu í 10 mínútur. Í kjölfarið var blóðvökvinn frystur við -80°C
þar til hann var sendur til fitusýrugreininga við Chalmers-Tækni-
háskólann í Gautaborg. Styrkur 24 tegunda fitusýra var mældur
með aðferð sem áður hefur verið lýst.15 Niðurstöðum fyrir styrk
DHA og EPA í blóðvökva er bæði lýst sem heildarstyrk og sem
hlutfalli af heildarstyrk allra fitusýra í blóðvökva. Niðurstöður
eru settar fram sem meðaltöl og staðalfrávik fyrir normaldreifðar
breytur, hlutföll eða miðgildi og 10.-90. hundraðshlutar. Mann-
Whitney U-próf var notað til að kanna marktækan mun milli
breyta sem voru ekki normaldreifðar og fylgni var metin með
Spear man-fylgnistuðli. Marktækni var skilgreind sem <0,05.
Niðurstöður
Í töflu I má sjá upplýsingar um aldur, líkamsþyngdarstuðul (LÞS)
fyrir meðgöngu, þyngdaraukningu á meðgöngu, fjölda fyrri
Tafla I. Lýsandi einkenni þátttakenda í PREWICE II-rannsókninni.
Niðurstöður eru settar fram sem meðaltöl ± staðalfrávik eða hlutföll.
Niðurstöður fitusýrumælinga eru settar fram sem miðgildi og hundraðs-
hlutar (10-90).
(n = 853)
Aldur, ár 30,3 ± 4,9
LÞS fyrir meðgöngu1, kg/m2 25,8 ± 5,7
LÞS ≥25 kg/m2, % 47
Heildarþyngdaraukning2, kg 12,3 ± 5,5
Þyngdaraukning á meðgöngu, kg/viku3 0,49 ± 0,2
Fyrri fæðingar4, %
0 44
1 36
≥2 20
Menntun5, %
Grunnskóli 11
Menntaskóli 30
Grunnnám
háskóla
35
Framhaldsnám
háskóla
24
Hjúskaparstaða6 %
Gift 24
Sambúð 71
Einstæð 5
Reykingar7, %
fyrir meðgöngu Já 14
á meðgöngu Já 5
Heildarstyrkur, μg/ml
EPA 19 (11-37)
DHA 74 (52-102)
EPA+DHA 94 (66-135)
Hlutfallslegur styrkur, %
EPA 0,7 (0,4-1,3)
DHA 2,7 (2,0-3,5)
EPA+DHA 3,4 (2,5-4,7)
1Upplýsingar um LÞS (Líkamsþyngdarstuðull) fyrir meðgöngu vantar fyrir 22 konur.
2Upplýsingar um þyngdaraukningu vantar fyrir 45 konur. Heildarþyngdaraukning er
mismunur á milli fyrstu og síðustu mældri þyngd í mæðraeftirliti.
3Vikuleg þyngdaraukning er heildarþyngdaraukning deilt með fjölda vikna á milli mælinga.
4Upplýsingar um fyrri fæðingar vantar fyrir 6 konur.
5Upplýsingar um menntun vantar fyrir 5 konur.
6Upplýsingar um hjúskaparstöðu vantar fyrir 21 konu.
7Upplýsingar um reykingar vantar fyrir 6 konur.
EPA: eikósapentaensýra. DHA: dókósahexaensýra. PREWICEII: Pregnant women in Iceland II.