Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.05.2022, Page 20

Læknablaðið - 01.05.2022, Page 20
240 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 R A N N S Ó K N barna, menntunarstig, hjúskaparstöðu og reykingar, bæði fyr- ir og á meðgöngu, ásamt heildar- og hlutfallslegum styrk EPA og DHA í blóðvökva þátttakenda. Upplýsingar um neyslutíðni fæðu tegunda og bætiefna sem innihalda langar ómega-3 fitusýr- ur má sjá í töflu II. Þátttakendur borðuðu magran fisk að jafnaði 1,3 sinnum í viku og feitan fisk um einu sinni í mánuði. Jákvæð fylgni var á milli neyslu magurs fisks og feits fisks hjá konunum (r=0,39 p<0,001) (ekki birt í töflu). Hærri heildartíðni fiskneyslu og notkun bætiefna sem innihéldu langar ómega-3 fitusýrur endur- speglaðist í hærri heildarstyrk ómega-3 í blóðvökva (plasma) (r=0,34 p<0,001) og einnig hærri hlutfallslegum styrk EPA + DHA í blóðvökva (r=0,41 p<0,001). Einnig sást jákvæð fylgni á neyslu- tíðni fisks (r=0,24 p<0,001 og r=0,28 p<0,001) og ómega-3 bætiefna (r=0,28 p<0,001 og r=0,35 p<0,001) við bæði heildar- og hlutfalls- legan styrk EPA og DHA í blóðvökva. Þegar skoðuð var sérstak- lega fylgni stakra tegunda bætiefna sem innihalda langar ómega-3 fitusýrur við styrk og hlutfall EPA og DHA í blóðvökva sást að bæði neysla á lýsi og ómega-3 olíu eða hylkjum endurspeglaðist í hærri styrk, en ekki neysla á íslensku meðgöngu-fjölvítamíni sem inniheldur EPA og DHA (r=0,01 og r=0,001). Þegar íslenska með- göngu-fjölvítamínið var undanskilið og fylgni könnuð á ný, sást hærri fylgni á milli neyslu fisks og bætiefna (r=0,37 p<0,001 og r=0,46 p<0,001) við heildar- og hlutfallslegan styrk EPA og DHA. Í töflu III er samanburður á heildar- og hlutfallslegum styrk EPA og DHA í blóðvökva út frá neyslutíðni kvennanna á fisk. Um 35% borð uðu einhvern fisk tvisvar í viku eða oftar og voru þær með hærri heildar- og hlutfallsstyrk EPA og DHA í blóði, borið saman við þær sem borðuðu fisk sjaldnar eða aldrei. Í töflu IV sést samanburður á heildar- og hlutfallslegum styrk EPA og DHA í blóðvökva, milli kvennanna sem tóku bætiefni sem innihalda langar ómega-3 fitusýrur að minnsta kosti daglega og þeirra sem tóku þau sjaldnar eða aldrei. Í heild tóku um 50% kvennanna einhver bætiefni sem innihalda ómega-3 og voru um 40% að taka lýsi og/eða ómega-3 olíu/hylki daglega. Af þeim sem Tafla II. Niðurstöður fæðutíðnispurningarlista varðandi vikulega fæðutíðni matvæla við 11.-14. viku meðgöngu og fylgni1 við heildar- og hlutfallslegan styrk EPA og DHA. Sett fram sem hlutföll eða miðgildi og hundraðshlutar (10-90). (n=853) Vikuleg fæðutíðni miðgildi (10-90 hundraðshluti) EPA+DHA, μg/ml P EPA+DHA, %2 P Allur fiskur og öll ómega-3 bætiefni 7,5 (1,0-16,3) 0,34 <0,001 0,41 <0,001 Allur fiskur, lýsi og ómega-3 bætiefni3 3,3 (0,9-14,7) 0,37 <0,001 0,46 <0,001 Allur fiskur 1,3 (0,4-3,0) 0,24 <0,001 0,28 <0,001 Fiskur, magur 1,0 (0,1-2,5) 0,18 <0,001 0,23 <0,001 Fiskur, feitur 0,3 (0,1-1,0) 0,24 <0,001 0,28 <0,001 Öll ómega-3 bætiefni 7,0 (0,4-14,2) 0,28 <0,001 0,35 <0,001 Lýsi og Ómega-3 olía/hylki 0,7 (0,3-14,0) 0,31 <0,001 0,40 <0,001 Lýsi 0,1 (0,1-7,0) 0,21 <0,001 0,27 <0,001 Ómega-3 olía/hylki 0,2 (0,2-7,1) 0,19 <0,001 0,25 <0,001 Meðgöngu fjölvítamín 0,1 (0,1-7,0) 0,01 0,835 0,001 0,977 1Spearman fylgnistuðull. 2Hlutfall fitusýra af heildarstyrk fitusýra í blóðvökva. 3Inniheldur ekki meðgöngu fjölvítamín með ómega-3. EPA: eikósapentaensýra. DHA: dókósahexaensýra. Tafla III. Heildar- og hlutfallslegur styrkur EPA og DHA í blóðvökva skipt upp eftir neyslutíðni fisks, sett fram sem hlutföll eða miðgildi og hundraðshlutar (10-90). N% EPA+DHA, μg/ml EPA+DHA, % Allur fiskur ≥2 vikulega 35,1 100 (71-142) 3,7 (2,7-5,1) 1x mánaðarlega - 1x vikulega 55,9 90 (66-131) 3,3 (2,5-4,6) Aldrei 9,0 87 (60-118) 3,0 (2,2-4,1) P1 <0,01 <0,01 Fiskur, magur ≥1 vikulega 59,0 98 (70-139) 3,6 (2,6-4,9) 1x mánaðarlega - <1x vikulega 29,7 87 (64-128) 3,3 (2,5-4,6) Aldrei 11,3 89 (62-132) 3,1 (2,3-4,5) P1 <0,01 <0,01 Fiskur, feitur ≥1 vikulega 22,5 103 (68-144) 3,7 (2,8-5,2) 1x mánaðarlega - <1x vikulega 42,0 97 (70-137) 3,5 (2,7-4,9) Aldrei 35,5 86 (61-122) 3,1 (2,4-4,3) P1 <0,01 <0,01 1Kruskal Wallis próf notað til kanna mun á milli neyslutíðnihópa. EPA: eikósapentaensýra. DHA: dókósahexaensýra.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.