Læknablaðið - 01.05.2022, Síða 25
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 245
F R É T T I R
Þórarinn Guðnason hjarta-
læknir er annar tveggja
sem kosnir hafa verið nýir
í stjórn Almenna lífeyr-
issjóðsins. Frambjóðend-
urnir voru tíu og úrslitin
kynnt á aðalfundinum í marslok.
„Ég er þakklátur sjóðsfélögum fyrir
traustið og hlakka til að takast á við verk-
efnin,“ sagði Þórarinn þegar Læknablaðið
náði tali af honum. Hann beið þá þess að
sitja fyrsta stjórnarfundinn mánudaginn
25. apríl.
Alls nýttu 838 kosningaréttinn og er
mesta kjörsókn í sögu sjóðsins. Þórarinn
varð efstur í kjörinu með rúm 53% en Már
Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum, annar
með tæp 12%. Frosti Sigurjónsson var kos-
inn nýr varamaður í stjórn.
Þórarinn í stjórn
Almenna lífeyrissjóðsins
Frétt Læknablaðsins um að Krabbameins-
félagið hefði boðið 450 milljónir króna
framlag yrði ráðist strax í uppbyggingu
nýrrar dagdeildar vakti athygli. Málið var
rætt á Alþingi. Heilbrigðisráðherra sagði
þar framtakið virðingarvert. Hann sagðist
vona að hægt yrði að nýta boðið en að það
þyrfti að gera í samhengi við aðra upp-
byggingu Landspítala.
„Við höfum ekki heyrt neitt frekar frá heilbrigðisráðuneytinu,“
segir Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins
Halla segir að félagið hafi átt fund með
nýjum forstjóra Landspítala sem hafi ver-
ið bæði skilningsríkur og meðvitaður um
vandann. Ákvarðanir um húsnæðismál
séu hins vegar ekki í höndum Landspítala
heldur stýrihóps um Hringbrautarverk-
efnið NLSH ohf., Nýjan Landspítala.
Halla bendir á að aðalfundarsamþykkt
félagsins gildi í eitt ár, en aðalfundurinn
var í lok maí í fyrra. „Það er ekkert sem
bendir til að þiggja eigi boðið.“ Því sé
ekki útlit fyrir að breytingar verði á að-
Sjá ekki að aðstaðan verði bætt í bráð
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameins-
félagsins, hvetur yfirvöld til að bregðast við. „Aðstaða
krabbameinssjúkra á Landspítala er óviðunandi.“ Undir
það taka yfirlæknar deildarinnar. Mynd/gag
Krabbameinsleit forðað hundruð kvenna frá dauða
Yfir 450 konum var forðað frá ótímabærum dauða á árunum 1972-2020 með
leghálskrabbameinsleit. Þetta kom fram í máli Laufeyjar Tryggvadóttur, fram-
kvæmdastjóra Rannsóknar- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins, á Lækna-
dögum.
Tölurnar eru miðaðar við andlát vegna leghálskrabbameins á árunum 1967-1971
og frá Krabbameinsfélaginu. „Þetta er klárlega vanmat því tölurnar voru á uppleið
í löndum þar sem ekki var skimun,“ sagði hún í pontu.
Mínerva – rafrænt skráningarkerfi fyrir
lækna til að skrá og halda utan um sí-
menntun sína, er komin í gagnið. Kerfið
ásamt leiðbeiningum er á innri vef LÍ.
Hrönn Pétursdóttir, verkefnastjóri
Læknafélags Íslands, segir að næstu
mánuði prófi hópur lækna Mínervu. „En
skráningarkerfið er nú opið öllum félags-
mönnum sem vilja nota það.“
Skrá þarf sérgrein og vinnustað þegar
farið er inn á innri vefinn í fyrsta sinn.
„En að því loknu birtist innri vefurinn
eins og vanalega nema efst í hægra horn-
inu hefur nú bæst við slóð á Mínervu,“
segir Hrönn og hvetur alla til að skrá
símenntun sína.
„Með því að skrá geta læknar séð
hversu mikil símenntun hefur verið
Mínerva komin í gagnið
Hrönn Pétursdóttir,
verkefnastjóri
Læknafélags Íslands
ástunduð á gefnu tímabili og hvort
hún uppfyllir lágmarks viðmið sem
skilgreint er í leiðbeiningum um sí-
menntun,“ segir hún. Á Mínervu er
dagbók um lærdóminn og hægt að taka
út skýrslur sem gefa yfirsýn yfir ástund-
aða símenntun.
stöðu krabbameinssjúkra á meðan beðið
er eftir að yfirvöld skilgreini hlutverk
spítalans, þörf fyrir húsnæði út frá því og
ástandsmeti allar byggingar.
„Það er auðvitað skynsamlegt að vita
hvert stefnir en ég get ekki ímyndað mér
annað en allur þessi ferill taki langan
tíma. Ég spyr: Hvar eiga sjúklingar að fá
þjónustu á meðan og hvernig á að vinna
að bættri þjónustu?“ Enginn geti svarað
því. „Vandinn er núna,“ segir Halla.