Læknablaðið - 01.05.2022, Side 29
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 249
sinn sem flutti með henni til Íslands um
aldamótin. Hann hafi velt fyrir sér að
fara til Úkraínu til að verja gömlu fóstur-
jörðina. „En við sáum að hann hafði enga
þekkingu til þess. Betra væri að fara þegar
byggja þarf upp að nýju.“ Einnig þurfi
þá að vinna úr áfallastreituröskun fólks.
„Þetta er áfall hjá öllum. Hrikalegt áfall og
mikilvægt að eiga vin, nána manneskju til
að tala við.“
Angela segir að hún hafi búist við
stríðinu. Rússar hafi mánuðina fyrir
stríðið reist færanleg sjúkrahús við landa-
mærin. Hún hafi reiknað með að stríðið
hæfist 23. febrúar, því þeir tengi gjarnan
atburði við dagsetningar og þann 23.
sé dagur rússneskrar herþjónustu. Þeir
hafi svo ráðist á landið aðfaranótt 24. og
sprengt á fleiri en 40 stöðum samtímis
fyrsta klukkutímann og hermenn streymt
inn í landið.
„Mér leið hræðilega. Var stjörf.“ Hringt
hafi verið í hana af Landspítala og henni
boðið að vera heima. „En ég mætti á
vaktina og vann mikið næstu daga. Ég
held ég hefði ekki fúnkerað annars.“ Hún
hafi samt átt erfitt með að rita nótur eftir
tímana og gefa vottorð. Hún hafi ekki náð
einbeitingunni.
Treystu sér ekki úr landi
„Fyrstu dagarnir voru skelfilegir. Það
var erfitt að hugsa til foreldra minna sem
mátu að pabbi væri of veikur til að fara.
Þau sögðust treysta sér til að vera og ég
sagði: Já, ykkar nánustu ættingjar eru er-
lendis, en mínir nánustu eru í stríðshrjáðu
landi. Þau sýndu því takmarkaðan skiln-
ing,“ segir hún og hlær góðlátlega.
Hún man eftir Sovétríkjunum, enda
ólst hún þar upp. „Ég hef búið svo lengi
hér á landi að ég er orðinn gestur í Úkra-
ínu. Þar hefur svo margt breyst,“ segir
hún. En þar séu ræturnar. „Allt frá falli
Sovétríkjanna hafa heilu kynslóðirnar
alist upp við frelsi. Þær hafa alist upp við
málfrelsi, hafa vilja. Þannig var það ekki
í Sovétríkjunum,“ segir hún og rifjar upp
söguna.
„Báðar ömmur mínar hafa sagt sögur
frá barnæsku sinni. Báðar upplifðu að
allt væri tekið frá þeim. Önnur var send
til Síberíu 10 ára gömul ásamt foreldrum
sínum og systur árið 1930 með lest eftir
að allt sem þau áttu var tekið frá þeim.
Fjölskyldunni tókst að hoppa af lestinni
V I Ð T A L
og koma til baka fótgangandi. Þau áttu
ekkert,“ lýsir hún. „Þá var hungursneyð
í Úkraínu, því öll uppskera var flutt til
Rússlands. Gervihungursneyð,“ segir hún,
enda Úkraína gjöfult land.
„Hin fékk að vita að pabbi þeirra yrði
tekinn frá þeim. Allt var tekið af býlinu.
Þau voru skilin eftir 8 systkini með móður
sinni til að deyja. Pabbi þeirra og elsti son-
ur höfðu byggt falskan vegg í hlöðunni og
settu þar korn. Þetta var að haustið 1936.
Amma var send að veggnum á nóttunni
til að ná nokkrum kornum dag hvern.
Móðir hennar sauð það niður, gaf öllum
að drekka og þau lifðu veturinn af,“ rifjar
Angela upp. Erfiðir tímar sem ekki hafi
verið kenndir í sovéska skólakerfinu.
„Sögur sem þessar voru klipptar út úr
sögunni og hún gerð falleg.“
Staðfestan skilaði Angelu nýju læknaleyfi
„Ég sagði alltaf að ég ætlaði aldrei að verða geðlæknir því pabbi minn er það,“ segir
Angela Haydarly, geðlæknir á Landspítala. Hún er einnig sjálfstætt starfandi. „En
hann vissi að þetta er það sem ég átti að gera.“
Angela var sérfræðingur í berklasjúkdómnum í Úkraínu. „Ég vann aðallega með
börn,“ segir hún, en menntun hennar hafi ekki gilt hér á landi þar sem Úkraína var
ekki á Evrópska efnahagssvæðinu. „Ég varð því að taka prófin aftur,“ segir hún og
lýsir því hvernig uppeldið mótaði hana. „Ég ólst ekki upp við hugarfarið: Ég vil,
heldur: Ég verð.“
Hún hafi því lært íslensku og stóðst öll próf eftir að hafa mánuðum saman, dag
eftir dag, óskað eftir viðtali um framvinduna í læknadeild. Hún stundaði nám í ís-
lensku fyrir útlendinga og lífeindafræði meðan hún beið og hafði áður starfað á St.
Jósefsspítala í stöðu hjúkrunarfræðings.
„Í hvert sinn sem ég mætti í Læknagarð var ritað á post-it miða. Svo þegar ég
fékk loksins fundinn einhverjum mánuðum síðar flæddu póst-it miðar upp úr
möppu forseta deildarinnar,“ lýsir Angela og hvernig fundurinn kom henni á beinu
brautina að nýju. Hún tók prófin, stóðst með prýði, fékk að fylgja kandídötum og
kláraði sérnám í geðlækningum.
Uppgjöf ekki í myndinni
Angela segir stríðið geta varað lengi.
„Uppgjöf er ekki í eðli okkar.“ Rússar
hafi heilaþvegið þjóð sína. Hún hafi verið
beðin að ræða við einstakling og talið að
þar færi Úkraínumaður sem hefði verið
lengi hér á landi, enda karlar sjaldséðir
meðal flóttamannanna sem nú koma.
„Hann brosir og segir: Ég er reyndar
Rússi. Ég horfi á hann og segi: Ég sam-
hryggist þér og vorkenni.“ Margir Rússar
utan lands síns skilji hvað sé að gerast.
Þeir séu ekki heilaþvegnir af aðgerð-
um yfirvalda sinna. „Þetta er þeim líka
áfall og ég er fegin að vera frá Úkraínu
í þessari stöðu. Að vera frá Rússlandi er
hræðilegt og þurfa að standa undir þess-
um gjörðum.“
Angela Haydarly er geðlæknir sem vinnur á Landspítala
á daginn og leggur samlöndum sínum lið á kvöldin.
Hennar lækningaleyfi er bæði íslenskt og úkraínskt.
Mynd/gag