Læknablaðið - 01.05.2022, Page 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 267I 15
Dagur í lífi framkvæmdastjóra
lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri
05:00 Vaknaður á undan klukkunni að
venju. Klæði mig og svo göngutúr með
Ými (10 ára Labrador). Þessa dagana eru
göngutúrarnir í styttra lagi þar sem Ýmir
er nýbúinn í aðgerð. Gef honum síðan að
borða og fæ mér kaffisopa.
05:50 Mæti í ræktina. Þar hitti ég besta
æfingafélagann og við tökum hefðbundna
mánudagsæfingu. Á eftir er það heitur
pottur, svo kaldur pottur (6 mínútur) og
svo nokkrar mínútur í heita aftur. Spjall
við pottverja.
07:30 Mættur í vinnuna. Þar sem ég er
formaður viðbragðsstjórnar SAk byrja ég
á að skoða stöðuna á sjúkrahúsinu með
tilliti til fjölda sjúklinga og hversu margir
eru inniliggjandi með COVID-19. Helgin
hefur greinilega verið annasöm og aldrei
fleiri inniliggjandi með COVID. Sendi póst
til sóttvarnalæknis og landlæknis með
nýjustu tölum. Fer síðan yfir tölvupósta
og svara erindum. Á stutt spjall við Hildi-
gunni Svavarsdóttur forstjóra um stöðuna
og einnig varðandi vinnu við rekstrar-
áætlun sjúkrahússins.
09:00 Fundur með forstöðulækni bækl-
unarskurðlækninga um stöðu á gerviliða-
aðgerðum og hvernig við sjáum vinnast úr
málum varðandi biðlista þegar COVID -19
áhrifin á starfsemina fara að dvína.
10:00 Átti fund með forstöðumanni sem
boðar forföll vegna veikinda. Nota tím-
ann til að svara tölvupóstum, samþykkja
reikninga og undirrita ráðningarsamn-
inga.
11:00 Viðbragðsstjórnarfundur. Farið
er yfir stöðuna á sjúkrahúsinu með við-
bragðsstjórninni og forstöðumönnum
eininga sem mest mæðir á. Í framhaldi
er gefin út tilkynning frá viðbragðsstjórn
sem sett er á vefsíður SAk.
11:45-12:00 Stutt matarhlé. Maturinn
á sjúkrahúsinu finnst mér frábær og sést
best á því að eftir 20 ár er ég ekki orðinn
leiður á matnum. Sést líka á mér.
12:00 Held áfram að vinna við að svara
tölvupóstum og undirbúa mig fyrir
framkvæmda stjórnarfund.
13:00-15:00 Framkvæmdastjórnar-
fundur. Fjölþætt dagskrá að venju en
mesta púðrið fer í að forgangsraða fjár-
munum í tækja- og búnaðarkaup á árinu.
Eins og svo oft er ekki hægt að verða við
öllum óskum en þarf að vega og meta
út frá rökstuðningi forstöðumanna og
ramma fjárlaga. Í lok fundar liggur fyrir
áætlun í samræmi við fjárveitingu. Nota
pásu á fundi til að fara í útvarpsviðtal.
15:20-16:00 Frágangur eftir fund.
Samtal við framkvæmdastjóra lyflækn-
ingasviðs vegna rekstraráætlunar.
16:20 Kominn heim. Við hjónin spjöll-
um um daginn og veginn en einnig
hvaða ráðleggingar við fengum frá dýra-
lækninum varðandi Ými. Erum líka að
skipuleggja helgarferð til London seinna
í mánuðinum. Hringi síðan í vin sem er
veikur heima með COVID-19. Síðan hef
ég samband við systkini mín varðandi af-
mæliskvöldverð fyrir föður okkar. Lít yfir
fréttamiðla.
19:00 Eiginkonan er á Zonta-fundi
í kvöld þannig að ég fæ mér léttan
kvöldverð. Kem mér svo vel fyrir og horfi
á fótboltaleik í sjónvarpinu og renni yfir
samfélagsmiðlana.
21:00 Kvöldganga með Ými.
22:30 Skoða dagskrána hjá mér á
morgun og síðan bíður rúmið.
Sigurður Einar Sigurðsson
Hér er SES sjálfur í sinni stjórnstöð og
út um gluggann sést eyrin á Akureyri
teygja makindalega úr sér.
– Mynd/Unnur Ingibjörg Gísladóttir
Endurbirting úr aprílblaði