Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Page 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Page 19
Ramsgate þar sem þeir voru að skoða neðansjávarlagnir. Veran var aðeins einn mánuður á þessu skipi enda eru starfs- menn Redwise ekki ráðnir til langtíma á þau skip sem þeir sigla á. Næsta skip var 8.000 tonna þunga- flutningaskip, Roelof, sem búið var tveimur 150 tonna krönum. Skipið var í eigu skipstjórans sem reyndar var mjög trúaður maður. Skipið gekk gjarnan undir nafninu kirkjan en kallinn var meðal annars með guðsþjónustu í brúnni á sunnudögum. Áður en heimskreppan skall á stöðvaði hann skipið frá miðnætti á laugardegi og hreyfði ekki skipið allan sunnudaginn. Þegar fjárhagserfiðleikarnir fóru að herja á gerði bankinn, sem lánað hafði skipstjóranum, kröfu um að skipið sigldi sjö daga vikunnar og því varð kall- inn að hlýða. Skipstjórinn hafði ráðið 5 Filippseyinga á skipið sem allir höfðu hlotið herþjálfun. Þegar skipinu var siglt um sjóræningjasvæði hafði hann alltaf tvo þeirra á vakt allan sólarhringinn og voru þeir þá vopnaðir, hvor á sínum brúarvæng. Skipstjórinn hafði komið með vopnin frá Hollandi og sagðist hann hafa fundið í hollenskum siglinga- lögum ákvæði um að ef hollenska ríkið gæti ekki varið sjómenn sína mættu þeir vopnbúast. Og það gerði hinn trúaði skipstjóri sannarlega. Hjá Leppalúða og Gilitrutt Tími Elfars með þessum sérstaka skip- stjóra varð ekki langur því á daginn kom að hann hafði ekki sjóferðabók og til að bjarga því þá þurfti hann að verða sér út um hollensk réttindi. Hann var því send- ur til Rotterdam þar sem hann dvaldist á hóteli í viku tíma meðan hann undirbjó sig undir að taka próf sem varð til þess að hann fékk bæði hollensk atvinnurétt- indi og hollenska sjóferðabók. Næsta verkefni var að sigla nýjum 28 metra dráttarbát, Frey, frá Galatz í Rúmeníu til Kartagena í Kólumbíu. Þökk sé flugvélum sem hafa stytt ferðaleiðir sjómanna og gert þeim kleift að komast til skipa sinna á sem skemmstum tíma en það tekur alltaf sinn tíma þó að sigla þeim á áfangastað. Saga Jules Vernes, Umhverfis jörðina á 80 Brunadælur og slökkvibyssur prófaðar til að gera sig klára að takast á við sjóræningja.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.