Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Page 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Page 27
Sjómannablaðið Víkingur – 27 svo við vorum fljótir að átta okkur á skekkjunni, Þegar við komum að skipaskurðinum Falsterbro, vorum við heppnir. Það var stór skúta að fara í gegn og við eltum hana og ég hélt að við slyppum við að borga toll, því það þurfti að hífa upp brúna til að hleypa skipum í gegn, en það kom á okkur kastari augnablik og búið. Og þegar við komum til Gautaborgar, var kominn reikningur til umboðsmannsins. Þegar við komum á móts við Málmey fórum við fram hjá stórri bauju með hvítu ljósi, þar skiptust leiðirnar, grænt ljós á stjórnborða og rautt á bakborða var leiðin upp Eyrarsundið, en hvítt ljós á stjórnborða og rautt á bak, var leiðin til Kaupmannahafnar. Ég man að klukkan var rétt yfir miðnætti og ég orðinn ansi þreyttur, svo að ég lét stýri- manninn taka við. Áður var ég búinn að skýra fyrir honum leiðirnar. Ég var varla búinn að vera meira en hálftíma í koju, þegar hann kom og sagðist bara sjá hvítt ljós á stjór og rautt á bak. Ég sá strax að hann hafði tekið feil og var á leið til Kaup- mannahafnar. Við sáum ljósið á stóru baujunni við Málmey, svo að ég ætlaði að snúa bátnum við en keyrði þá utan í sand- eða drullubakka og þrælfesti bátinn. Seinna frétti ég að Eyrarsundið er allt grafið út í rásir. Við sátum þarna fastir og ég spurði eftir- litsmanninn, hvað ég mætti keyra mikið. „Full spit! Full spit,“ svaraði hann, ábyggilega hálf hræddur. Það var alveg hvíta logn. Ég fór að reyna að keyra með fullri ferð og leggja á stýrið sitt á hvað og bakka á milli, allt í einu losnaði djöfsi og við gátum rétt okkur af. Strax og við komum norður fyrir Kullin, byrjaði kompás- skekkjan að segja til sín og það tók okkur tvær baujur að rétta okkur af. Það var eins gott, því að þegar við komum að eynni Vinga, þar sem við tókum lóðsinn, var komin þokumugga. Við komum ekki til Gautaborgar fyrr en um miðja nótt. Það væri synd að segja að vélaverksmiðjan hefði verið okkur velviljuð, því ljósavélin var enn í Jönköbing og ekki farið að finna verk- stæði til að setja hana niður. Faðir minn vildi að við kæmum bara með vélina heim og hún yrði sett niður heima, því það væri komin góð veiði í reknetin. Ég tók það ekki í mál, við værum búnir að borga fyrir verkið og vélin skyldi niður á þeirra kostnað. Loksins þegar ljósavélin kom, þá var þetta, jú 12 ha. June Munktell tík, handsnúin í gang með 500 watta og 32 volta rafali, reimdrifnum, og þurfti að setja sígarettu í hana, áður en henni var snúið í gang. Verkstæðið, sem tók að sér verkið var staðsett hinum megin við Gautaána sem var ekki til að flýta verkinu. Þeir voru fjóra daga að ganga frá tíkinni. Ég lét rétta af áttavitann á meðan við biðum þarna. Það var betur gert en í Simrishamn. Eins tókum við olíu og kost og gerðum upp við umboðsmanninn, sem hét Lundgreen og var tengdafaðir sænska boxarans Johnson, sem var frægur á þessum tíma. Við vorum fegnir að komast frá Gautaborg síðustu dagana í september. Auk mín voru um borð Benidikt Guðmundsson stýrimaður, Sigurður Kristjánsson vélstjóri og Guðjón Gunnar Ólafsson, bróðir minn, sem 2. vélstjóri og kokkur. Við lögðum af stað að kvöldi í sæmilegu veðri. Settum út vegmæli við Vinga um leið og við slepptum lóðsinum. Ákveðið var að koma við í Færeyjum og var stefnan sett fyrir North Unst á Séttlandseyj- um, þegar við vorum við Skagen í Danmörku. Togast á um sæng Seinni part fyrstu nóttina, þegar við vorum komnir um fjörutíu mílur frá Skagen, stöðvaðist vélin snögglega. Við athugun kom í ljós að útblásturs ventill hafði festst og undirlyftu stöngin bogn- að, hún var um metri á lengd. Tveir ventlar voru til vara og var fljótlegt að skipta um þá, því að þeir voru í sér húsum og bara að losa tvo bolta, en engin undirlyftustöng var til vara, svo að við urðum að rétta hana með slaghamri fram á lestarlúgu. Það tókst bærilega. Við töfðumst á þriðja tíma við þetta. Það sama kom fyrir aftur þriðju nóttina, svo að við tókum hlífarnar af, sem voru yfir ventlunum, svo að hægt væri að smyrja þá með smurkönnu. Við komum til Þórshafnar í Færeyjum að morgni á fjórða sólarhringnum. Við höfðum samband við Ólaf Guð- mundsson, sem var umboðsmaður fyrir marga Íslendinga. Hann var gamall Keflvíkingur, svo að við þekktumst vel. Hann fékk menn úr smiðju til að taka ventlana og undirlyftustangirnar í smiðju og fór lunginn úr deginum í að losa ventlana úr húsun- um. Um kvöldið, þegar allt var komið í lag, fórum við að olíu- bryggju ESSO, en þar höfðum við úttektarheimild á olíu. Ég fór upp á skrifstofuna og fékk að hringja heim í föður minn og lét Styrkir brjósk og bein www.hafkalk.is Virðist draga úr liðverkjum vegna slitgigtar

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.