Fréttablaðið - 01.10.2022, Side 91
Við skiptum starfs-
ánægju í tíu mis-
munandi drifkrafta og
hver og einn þeirra
samanstendur af rann-
sökuðum spurningum
sem virka vel í mann-
auðsmælingum á
Íslandi.
Davíð Tómas Tómasson
árangursríkar breytingar og mælt
áhrif þeirra jafnóðum.“
Starfsánægja vegur þungt í
rekstri
Starfsánægja er órjúfanlegur hluti
af góðum rekstri, segir Björn, og
því mikilvægt að vinnustaðir mæli
starfsánægju. „Ánægt starfsfólk
afkastar meiru, er hugmyndarík-
ara í vinnunni, forfallast sjaldnar,
segir síður upp störfum og mælir
frekar með vinnustaðnum, sem
skilar hæfari umsækjendum í
framtíðinni.“
Aukin starfsánægja skilar
árangri bæði á tekju- og kostnaðar-
hliðinni, bætir hann við. „Gallup
framkvæmir til dæmis stóra
alþjóðlega rannsókn á áhrifum
starfsánægju. Niðurstaðan er að
tekjur á hvern starfsmann aukast
um 23%, fjarvistum fækkar um
45%, og starfsmannavelta minnkar
um 31% þegar efsti og neðsti
fjórðungur vinnustaða eru bornir
saman.“
Besta leiðin til að bæta hlutina
er síðan að mæla þá. „Um leið
og stjórnendur fá góða innsýn
í áhrifaþætti starfsánægju og
sjá áhrif breytinga verður eftir-
leikurinn auðveldur. Ábendingar
frá starfsfólki og þær spurningar
sem við höfum þróað varpa ljósi
á atriði sem auðvelt er að bæta úr
þegar stjórnendur verða meðvit-
aðir um þau.“
Þrír þættir aðgreina fyrirtækið
Davíð segir þrjá þætti aðgreina
Moodup frá öðrum sambæri-
legum fyrirtækjum.
„Við aðgreinum okkur á upp-
lifun, aðferðafræði og gagnvirkni.
Moodup er hannað frá grunni til
að bæði starfsfólk og stjórnendur
geti notað lausnina á einfaldan og
skemmtilegan hátt. Kannanir og
skýrslur eru myndrænar, allt er
einfalt í notkun í snjallsímum og
við notum sjálfvirkni til að spara
stjórnendum sporin, til dæmis
með tengingum við öll helstu
mannauðs- og launakerfi.“
Hann segir aðferðafræði
Moodup tryggja að niðurstöð-
urnar gagnist sem best. „Við
skiptum starfsánægju í tíu mis-
munandi drifkrafta og hver og
einn þeirra samanstendur af
rannsökuðum spurningum sem
virka vel í mannauðsmælingum á
Íslandi. Jafnframt notum við 0-10
kvarðann, sem gefur nákvæmari
niðurstöður og sýnir þannig betur
bæði dreifingu starfsánægju og
áhrif smærri breytinga. Púlsmæl-
ingarnar eru síðan samanburðar-
hæfar yfir tíma og niðurstöðurnar
verða sífellt ítarlegri eftir því sem
mælingunum fjölgar.“
Loks er Moodup tvíhliða sam-
skiptatól. „Starfsfólk sér hvar það
stendur miðað við sína deild og
vinnustaðinn í heild um leið og
það klárar að svara púlsmælingu.
Þá geta stjórnendur átt samtal
um endurgjöf við starfsfólk inni
í Moodup og starfsfólk er áfram
undir nafnleynd í samtalinu.
Þetta þýðir að starfsfólk svarar
ekki könnunum upp á von og
óvon um að svörin hafi áhrif,
heldur fær það staðfestingu á því
að stjórnendur lesi og hlusti á
svörin þeirra.“
Mælanlegur árangur
Aðspurðir um dæmi um góðan
árangur vinnustaða af mælingum
með Moodup segir Björn að
dæmin séu mörg og flokka mætti
þau í einfaldar breytingar og
erfiðari mál. „Í einfalda flokknum
fékk fyrirtæki lága einkunn þegar
kemur að streitu og kvíða í fyrstu
mælingu. Þau fengu sálfræðing til
að halda fyrirlestur um streitu-
stjórnun og einkunnin lagaðist
strax í næstu mælingu.“
Í erfiðari flokknum uppgötvuðu
stjórnendur fyrirtækis tvö ein-
eltismál þegar púlsmælingarnar
hófust. „Þau fengu inn ráðgjafa
sem tók viðtöl við starfsfólk og
stjórnendur í viðkomandi deild og
leysti úr báðum málum.“
Hann segir jafnframt að samtöl
þeirra við stjórnendur gefi vís-
bendingar um árangurinn. „Einn
stjórnandi nefndi við okkur að
starfsmannavelta hefði snarlækk-
að eftir að þau innleiddu breyting-
ar sem bættu úr þeim þáttum sem
komu verst út í mælingunum.“
En stærsta merkið um árangur-
inn segir Björn vera ánægju
stjórnenda. „Frá því að fyrirtækið
var stofnað fyrir tveimur árum
hefur enginn vinnustaður hætt í
mælingum hjá okkur. Það er ansi
sterk vísbending um að Moodup
skili árangri.“
Á að vera einföld lausn
Moodup er sífellt að breikka og
bæta þjónustuna og eru ýmsar
spennandi nýjungar í þróun, að
sögn Davíðs. „Við höfum til dæmis
bætt við sérsniðnum könnunum,
samtölum um endurgjöf og teng-
ingum við mannauðs- og launa-
kerfi. Auk þess fáum við mikið
af góðum ábendingum frá bæði
stjórnendum og starfsfólki sem
við notum til að bæta þjónustuna
jafnt og þétt. Það eru oft atriði sem
fara ekki hátt en bæta upplifunina
í daglegri notkun, til dæmis þegar
kemur að síunarvirkni og annarri
framsetningu niðurstaðna.“
Slíkar umbætur skipta orðið
hundruðum í dag, að hans sögn.
„Þær leiða til þess að Moodup er
bæði áreiðanlegt og útpælt þegar
kemur að helstu notkunarmögu-
leikum.“
Varðandi ýmsar nýjungar í
þróun innanhúss segir Davíð
fyrirtækið halda áfram að slá rétt
jafnvægi á milli einfaldleika og
nýrrar virkni. „Hugbúnaðarlausnir
eiga það til að vaxa smám saman
í f lækjustigi þar til það bitnar á
gagnseminni. Við viljum tryggja
að Moodup verði áfram einföld og
þægileg lausn sem krefst ekki sér-
stakrar þjálfunar til að stjórnendur
og starfsfólk njóti ávinningsins.“ n
Nánar á moodup.is.
Davíð og Björn
vilja tryggja
að Moodup
verði áfram
einföld og
þægileg lausn
fyrir vinnustaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Fræðslufundur-
inn var afar vel
sóttur en þar
kynnti Björn
nýja rannsókn á
starfsánægju á
Íslandi.
kynningarblað 31LAUGARDAGUR 1. október 2022 Mannauður