Fréttablaðið - 01.10.2022, Qupperneq 114
Hægt verður að fá
bílinn í tveimur
útfærslum, 489 hestafla
Long Range með 840
Nm togi og 510 Per-
formance útgáfu.
Polestar 3 er næsti bíll á mark-
að frá rafbílaframleiðand-
anum en hann verður frum-
sýndur á sérstakri kynningu í
Danmörku þann 12. október
næstkomandi.
njall@frettabladid.is
Hægt verður að forpanta bílinn í
framhaldi af þeirri kynningu. Verð-
ið á bílnum mun byrja í 12.550.000
kr. í Bretlandi og er honum ætlað að
keppa beint við Audi e-tron, Merce-
des EQC og BMW iX til að mynda.
Verð á bílnum hérlendis verður þó
ekki tilbúið fyrr en í byrjun næsta
mánaðar að sögn Brimborgar.
Bíllinn mun koma með einni
gerð rafhlöðu sem er 107 kWst að
rúmtaki. Hægt verður að fá bílinn
í tveimur mótorútfærslum. Long
Range útfærslan verður með tveim-
ur mótorum og skilar 489 hestöflum
ásamt 840 Nm togi. Sú útgáfa er
fimm sekúndur í hundraðið og
hefur 610 km drægi. Performance
útgáfa notar öf lugri mótora sem
skila 510 hestöflum og 910 Nm togi.
Sá er 4,7 sekúndur í hundraðið en
drægið dettur niður í 560 km. Sú
útgáfa verður einnig með stillan-
legri loftpúðafjöðrun sem staðal-
búnað. n
Forsala Polestar 3 hefst fyrri
hluta október á heimsvísu
Polestar 3 mun
koma með gler-
þaki sem teygir
sig að vindskeið
bílsins að aftan-
verðu.
MYND/POLESTAR
njall@frettabladid.is
Hingað til hefur verið talið að raf-
bílar séu öruggari en aðrir bílar
í árekstrum þar sem undirvagn
þeirra er sterkari, en það kemur
til vegna meiri styrks bílanna
vegna aukins þunga rafhlöðunnar.
Franskt/svissneskt tryggingarfyrir-
tæki er þó ekki lengur á sama máli
eftir árekstrarpróf á vegum þeirra.
Samkvæmt tryggingarfélaginu
AXA valda rafbílar meiri skemmd-
um í árekstrum heldur en aðrir
bílar. Er það að hluta til vegna meiri
hröðunar þeirra en einnig er sú
staðreynd að þeir eru mun þyngri,
áhyggjuefni fyrir ökumenn minni
bíla. Getur það valdið hættu á meiri
meiðslum og f leiri banaslysum á
gangandi vegfarendum að sögn
tryggingarfélagsins.
„Samkvæmt slysatölfræði AXA
Switzerland valda ökumenn raf-
bíla 50% f leiri óhöppum en öku-
menn bíla með brunahreyf lum,“
segir í yfirlýsingu frá AXA sem titluð
er „Fleiri árekstrar og aukin áhætta
vegna raf bíla“. Tryggingarfélagið
lætur ekki tölfræðina eina um
þetta álit og framkvæmdi árekstrar-
próf á tveimur VW Golf bifreiðum.
Önnur þeirra var bensínknúin og
1.250 kg en hin rafdrifin og 1.650
kg að þyngd. „Léttari bíllinn fær
á sig meira högg og meira tjón er
sjáanlegt á honum. Í árekstri skiptir
þyngdarmunurinn því höfuðmáli.“
Farþegarými beggja bifreiðanna
sluppu vel frá prófuninni og töldu
rannsakendur að farþegar beggja
bílanna hefðu sloppið við meiðsli.
„Þegar kemur að eldri módelum
gæti það hins vegar orðið að vanda-
máli,“ segir einnig í skýrslunni. n
Rafbílar geta verið hættulegri í árekstrum
njall@frettabladid.is
Kínverski bílarisinn Geely hefur
keypt 7,6% hlut í sportbílaframleið-
andanum Aston Martin. Geely á
merki eins og Lotus, Volvo, Polestar
og helminginn í Smart og hefur sóst
eftir hlut í Aston Martin síðan 2020.
Nýlega hafnaði Aston Martin
1,3 billjón punda tilboði frá Atlas
Consortium, sem var hópur sem
Geely var með hlut í ásamt Invest-
industrial sem á Morgan Motor
Cars. Að sögn Daniel Donghui Li,
forstjóra eignarfélags Geely munu
tæknilegir yfirburðir Geely hjálpa
Aston Martin í framtíðinni.
Fyrir þremur mánuðum keypti
Public Investment sjóðurinn í Saudi-
Arabíu 16,7% hlut í Aston Martin
sem hefur verið skuldum vafið á
undaförnum árum. PIF er stærsti
hluthafinn á eftir Lawrence Stroll
Yew Tree Consortium sem á 18,3%
hlut. Annar stór hluthafi er Merce-
des-Benz sem á 9,7% hlut. n
Geely kaupir hlut í Aston Martin
njall@frettabladid.is
Kínverska frumkvöðlafyrirtækið
SSC hefur frumsýnt fyrsta raf bíl
sinn sem ber einfaldlega nafnið
SC-01. SSC stendur fyrir Small
Sports Car og eins og nafnið ber í
sér er um lítinn, tveggja sæta sport-
bíl að ræða.
Bíllinn er áhugaverður fyrir
nokkrar sakir, en hann mun kosta
frá rúmum sex milljónum króna í
Kína. Hann er rúmir fjórir metrar
að lengd og aðeins 1.300 kg sem
þýðir að hann er svipaður í stærð
og þyngd og Audi TT. Raf hlaðan
er fyrir aftan sætin til að dreifa
þyngdinni sem mest en rafmót-
orar eru við bæði fram- og aftur-
hjól. Hann verður 429 hestöf l og
getur komist í hundraðið á aðeins
3,9 sekúndum. Drægi SC-01 er um
500 km samkvæmt NEDC-staðl-
inum. Bíllinn fer á markað í lok
næsta árs í heimalandinu en enn
hefur ekkert verið gefið upp hvort
hann verði fáanlegur í Evrópu eða
Norður-Ameríku. n
Tveggja sæta rafsportbíll frá Kína
Þótt engin mynd sé af innanrými segir SSC að ekki verði notast við snertiskjá
heldur verður öllu stjórnað gegnum hefðbundna takka. MYND/SSC
Aston Martin framleiðir lúxusbíla af
dýrari gerðinni og keppir auk þess í
Formúlu 1. MYND/ASTON MARTIN
Árekstrarprófið var framkvæmt á 50 km hraða en um 400 kílóa munur var á
þyngd bílanna. MYND/AXA
AXA var gagn-
rýnt á dögunum
fyrir að hafa
viljandi kveikt
í Tesla bifreið í
árekstrarprófi
til að leggja
áherslu á bruna-
hættu rafhlaða.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
RómÍtalía
595 1000 www.heimsferdir.is
6. október í 4 nætur
89.900
Flug & hótel frá
4 nætur
44.950
Flug báðar leiðir
Flugsæti
ULLARJAKKI
NÁTTÚRUVÆN EINANGRUN
ÚR ÍSLENSKRI ULL
28.990,-
50 Bílar 1. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐBÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 1. október 2022 LAUGARDAGUR