Bændablaðið - 22.09.2022, Síða 6

Bændablaðið - 22.09.2022, Síða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 Haustið er nú komið í allri sinni dýrð. Bændur eru margir hverjir búnir eða að fara að ljúka réttum og lífið er að fara í sitt eðlilega horf. Þingsetning var í síðustu viku og ráðherrar hafa lagt fram þingmálaskrár vetrarins. Á þingmálaskrá matvælaráðherra fyrir 153. löggjafarþing Alþingis er nú að finna hvort tveggja tillögu til þingsályktunar um Matvælastefnu og tillögu til þingsályktunar um Landbúnaðarstefnu Íslands, en grundvöllur hennar er skýrsla Hlédísar Sveinsdóttur og Björns Bjarnasonar, Ræktum Ísland! sem kom út í ágúst á síðasta ári. Með Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland er ætlunin að huga að umgjörð landbúnaðar í heild og er stefnunni ætlað að liggja til grundvallar við endurskoðun búvörusamninga árið 2023. Ég hvet því alla bændur til þess að kynna sér stefnuna þegar hún birtist í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar. Viðhorf neytenda Í umræðuskjalinu Ræktum Ísland! var talsvert fjallað um tengsl bænda og neytenda, þ.e. þau gagnvirku tengsl bænda og neytenda sem þyrftu að vera til staðar og væru áhrifaþáttur í að stuðla að aukinni vöruþróun og nýsköpun innan atvinnugreinarinnar. Einnig var tæpt á því í stefnunni að neytendur ættu skýlausan rétt á upplýsingum um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif matvæla sem þeir kaupa í verslunum, neyta á veitingahúsum eða í mötuneytum. En viðhorf neytenda birtast matvælaframleiðendum með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða þann hóp neytenda sem kýs að láta verð hafa ráðandi áhrif við kaup á matvælum og þá vegur minna hvort um sé að ræða íslenska eða innflutta landbúnaðarafurð því þar skiptir höfuðmáli hvor varan er ódýrari. Síðan er það hinn hópurinn sem mótast fyrst og fremst af kröfum þeirra til gæða og þjónustu og þessi hópur er reiðubúinn að greiða hærra verð fyrir meiri gæði, umhverfisvænni vöru með skýrar upprunamerkingar. En byggir kauphegðun neytenda alfarið á verði eða gæðum landbúnaðarafurða, eða jafnvel sambland af hvoru tveggja? Nú loga öll ljós rauð á meginlandinu og þar undirbýr fólk sig undir harðan vetur. Framundan eru gríðarlegar hækkanir á gasi, olíu og rafmagni sem mun gera fyrirtækjum og heimilum afar erfitt fyrir og enginn mun sjá fyrir endann á eins og staðan horfir við núna. Tækifæri okkar er því núna, að hefja stórsókn í aukinni framleiðslu allra landbúnaðarvara hér á Íslandi. Áhrif höfrungahlaupsins Kjaraviðræður haustsins eru á næsta leiti og síðustu vikur hafa forkólfar verkalýðshreyfinganna farið mikinn í fjölmiðlum. Hafa menn lagt drög að hinum ýmsum kröfum í aðdraganda viðræðna og ber þar helst á góma enn frekari stytting vinnuvikunnar. Því er ágætt að tæpa á því hér að matur á Íslandi er ekki framleiddur fjóra daga í viku. Framleiðsla matvæla getur verið ansi langt ferli, allt frá nokkrum vikum í tilfelli grænmetis yfir í nokkra mánuði í tilfelli lambakjöts í nokkur ár í tilfelli nautgripakjöts. Vinnuumhverfi bænda er þar af leiðandi erfitt og krefjandi. Bændur þekkja ekki styttingu vinnuvikunnar eða helgarfrí. Lífsstíll og heimilislíf bænda er samtvinnað vinnu þeirra með löngum og óreglulegum vinnustundum. Það sætir því ákveðinni furðu það höfrungahlaup sem kjarasamningar á Íslandi virðast fastir í þar sem alltaf þarf að semja um örlítið meira en síðasti samningur hljóðaði upp á. Þá sætir jafnframt furðu málflutningur hagsmunasamtaka um að neytendur vilji og stýrist alfarið af verði við kaup á matvælum. Það er nefnilega svo að einhver verður að taka á sig komandi launahækkanir og þrátt fyrir að matarkarfan sé búin að lækka um 6,4% frá 2019 miðað við laun í landinu, þá er ekki endilega útséð með það hver áhrif kjarasamningshækkana verða. Það sé aftur á móti fastlega hægt að gera ráð fyrir því að það verði skrið á launahækkunum og eftir stendur nafnlaunahækkun sem minnkar óðum í meiri verðbólgu. Við þurfum að spýta í Landbúnaður líkt og aðrar atvinnugreinar hafa þróast og tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum og er það að miklu leyti tæknivæðingunni að þakka, sem og dýravelferð og kröfur um bættan aðbúnað búfjár. En þessi þróun hefur leitt til samþjöppunar innan atvinnugreinarinnar, þar sem bú hafa stækkað og framleiðsla aukist. En stækkun búa hefur einnig í för með sér nýjar áskoranir á borð við auknar áherslur á umhverfismál og umsvifameiri rekstur búa sem kallar á auknar fjárfestingar og stækkun húsa. Það eru atriði sem við sem bændur og hagsmunasamtök bænda þurfum að horfa til þegar við nálgumst neytendur. En við þurfum að spýta í og hefja stórsókn í aukinni framleiðslu en þá má regluverkið ekki hefta og er það Alþingis að laga svo mögulegt sé að auka framleiðslu óháð búvörusamningum. Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (24. tölublöð) kostar þá kr. 12.200 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 8.000 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Landbúnaður og umhverfisvernd Rannsóknir og vísindi skipta miklu fyrir nútímalandbúnað og umhverfisvernd enda mikilvægt að þessir tveir þættir fari saman. Matvælaframleiðsla er grunnþáttur í tilveru nútímafólks þrátt fyrir að sífellt færri taki þátt í framleiðsluferlinu og margir vita jafnvel ekki hvernig maturinn verður til. Í heimi sem þegar telur um átta milljarða manna, og það bætast við um 200 þúsund munnar á hverjum degi, er óhjákvæmilegt annað en að matvælaframleiðsla gangi á náttúruna. Það sem meira er að nú þegar eru flest bestu ræktunarsvæði heimsins notuð undir ræktun eða eldi. Samkvæmt FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, eru 35% af landi í heiminum nýtt undir landbúnað, 1/3 af því er nýtt til ræktunnar og 2/3 til beitar. Til samanburðar eru 14,6% af landi í heiminum flokkað sem friðland og talsvert af því á undir högg að sækja. Borgir stækka, námuvinnsla eykst, lítið sem ekkert dregur úr losun skaðlegra lofttegunda og drykkjarvatn og jarðvegur er víða mengað og slíkt ógnar lífríki svæðanna og líffræðilegri fjölbreytni. Stundum heyrist að nóg sé framleitt af mat í heiminum en að vandamálið sé að honum sé ekki rétt úthlutað, sumir fái of mikið en aðrir allt of lítið. Þetta kann að vera rétt en það breytir ekki þeirri staðreynd að fólki er að fjölga og náttúran er á undanhaldi. Rannsóknir í landbúnaði miða að því að auka framleiðni á þeim svæðum sem þegar eru nýtt undir matvælaframleiðslu því bætt gæði hennar er nauðsynlegt til að fæða allt þetta fólk. Áskoranir í landbúnaði sem rannsóknir og vísindi þurfa að takast á við eru fjölmargar og felast meðal annars í hlýnun jarðar, breytingar á veðurfari og meiri ofsa í veðri, auknum þurrkum á stórum svæðum, sjúkdómum og meindýrum, að draga úr notkun tilbúins áburðar og eiturefna og á sama tíma auka vægi lífrænar ræktunar. Erfðatæknin og beiting hennar lofar góðu, hvort sem er fyrir minni eða stærri framleiðendur, ekki síst þegar kemur að því að auka uppskeru og aðlaga nytjaplöntur að hlýnun jarðar og breyttum vaxtarskilyrðum. Auknar rannsóknir á gömlum ræktunaryrkjum hafa aukist og mörg þeirra sýna seiglu við sjúkdómum sem nýta má með erfðatækni til að auka þol uppskerumeiri yrkja. Aukin umhverfisvernd og umhverfis- vitund eru hugtök sem við heyrum nánast á hverjum degi en á sama tíma heyrast fréttir um að ekki sé nóg að gert. Sífellt er gengið á regnskóga heimsins til að auka ræktar- og beitiland til matvælaframleiðslu og er kjötframleiðsla á slíkum svæðum sögð ein helsta ástæðan fyrir glötun á líffræðilegum fjölbreytileika í heiminum. Umhverfismál skipta allt mannkyn máli því samspil landbúnaðar og umhverfis hafa ekki einungis áhrif á náttúruna og vistkerfið. Samspilið er ekki síður samfélagslegt og án efa eiga þau áhrif eftir að aukast og hafa enn meiri félagsleg áhrif í framtíðinni. Rannsóknir, nýsköpun, tækni og fræðsla, sem leiða til þess að bændur geti nýtt ræktarland betur og aukið magn, gæði og hollustu framleiðslunnar, eru örugglega helsta von okkar um að hægt verði fæða þá tíu milljarða munna sem stefnir í að verði á jörðinni skömmu eftir miðja þessa öld. Á sama tíma munu rannsóknir og vísindi vernda viðkvæm náttúrverndarsvæði og líffræðilegan fjölbreytileika fyrir framtíðina og komandi kynslóðir. /VH Haustið í allri sinni dýrð Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands gunnar@bondi.is GAMLA MYNDIN Ritstjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir (ábm.) gudrunhulda@bondi.is – Sími: 563 0339 – Blaðamenn: – Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 563 0303 Netfang auglýsinga: thordis@bondi.is – Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621 Kennsla í matargerð á Landbúnaðarsýningunni 1968. Sýningin var haldin í Laugardalshöllinni og á útisvæði við hana. Um 94 þúsund manns sóttu sýninguna og var hún langmest sótta sýning landsins til þess tíma. Sýnendur voru um 80 og á sýningunni mátti skoða allt það nýjasta í landbúnaðartækni á þeim tíma auk búfjár og blóma. Kjörorð sýningarinnar voru: Gróður er gulli betri. Mynd / Myndasafn Bændasamtaka Íslands.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.