Bændablaðið - 22.09.2022, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Bráðabirgðaniðurstöður DNA
greininga Mast á 32 löxum sem
Fiskistofa veiddi í Mjólká í
Arnarfirði í ágúst síðastliðnum
sýna að 16 laxar af þessum 32
reyndust eldislaxar. Hinir 16
reyndust villtir.
Vísbendingar eru um að eldis
laxarnir séu frá Haganesi í Arnarfirði
en gat kom á kví á því eldissvæði í
ágúst 2021.
Endurkeyra þarf DNA grein
inguna til að geta staðfest bráða
birgðaniðurstöðurnar og í framhaldi
af því verður hægt að rekja uppruna
eldislaxanna nánar.
Tilkynnt um gat í sjókví
Matvælastofnun barst tilkynning
frá Arnarlax mánudaginn 30. ágúst
um gat á nótarpoka einnar sjókvíar
Arnarlax við Haganes í Arnarfirði.
Gatið uppgötvaðist við neðan
sjávareftirlit og er viðgerð lokið.
Samkvæmt upplýsingum Arnarlax
var gatið á um tveggja metra dýpi
og reyndist vera um það bil 2 x 2
metrar að stærð. Í þessari tilteknu
kví voru um 120.000 laxar með
meðalþyngd 0,8 kg.
Neðansjávareftirlit var áður
framkvæmt 31. júlí síðastliðinn og
var nótarpoki þá heill. /VH
FRÉTTIR
Eitt af þeim fyrirtækjum sem
blaðamaður Bændablaðsins
heimsótti í sumar í tengslum við
alþjóðaráðstefnu landbúnaðar-
blaðamanna kallast BioRefine
A/S á Jótlandi og sérhæfir sig í
framleiðslu á próteini úr grasi,
smára og alfalfa.
Hráefnið í vinnsluna, gras, smári
og alfalfa, er fengið frá bændum af
um 3.000 hekturum af graslendi
í 30 kílómetra radíus umhverfis
verksmiðjuna. Grasið er sérræktað
og slegið tvisvar til þrisvar á
sumrin og haustin frá því í maí og
fram í nóvember og flutt nýslegið
í verksmiðjuna. Túnin eru hvíld
þriðja til fjórða hvert ár til að auka
kolefnisbindingu þeirra.
Árleg framleiðsla er um sjö
þúsund tonn af því sem kallað er
grænt prótein.
Samkeppni við innflutt soja
Vagn Hundebøll, forstjóri BioRefine,
sagði í samtalið við Bændablaðið
að forgangsverkefni fyrirtækisins í
dag væri að mæta fóðurpróteinþörf
danskra bænda og neytenda á
vistvænan hátt.
„Danir flytja inn um 50 þúsund
tonn af lífrænu og 1,7 milljón tonn
af ólífrænu soja á ári, við viljum
draga úr þeim innflutningi.“
Grænt prótein til manneldis
„Enn fremur leggjum við áherslu
á að þróa grænt prótein til notkunar í
matvæli til manneldis og að það geti
orðið um fjórðungur af því próteini
sem notað er til matvælaframleiðslu
í Danmörku.
Á sama tíma höfum við áhuga
á að deila þekkingu okkar á
framleiðslu græns próteins enda
tæknin sem við notum nothæf hvar
sem er í heiminum.“
Fóður fyrir hænur og gæludýr
Eftir að safinn er pressaður úr
grasinu fer það í skilvindu og
þurrkara sem skilur próteinið
úr því og eftir það líkist
próteinið helst kaffikorgi.
Afgangsgrasið er notað í
textíliðnaði og í umbúðir og
safann má nota til framleiðslu
á lífgasi og sem áburð.
Próteinið má meðal annars
nota sem fóður fyrir hænur og
gæludýr og getur hún komið í
staðinn fyrir sojamjöl.
Í kynningu Biorefine
á framleiðslunni segir að
prótein sé eitt af undirstöðuefnum
fæðunnar, hvort sem það er fyrir
menn eða skepnur. Grasprótein
meltist vel hjá húsdýrum með einn
maga eins og svín og alifugla en
hentar síður fyrir jórturdýr þar sem
það er of auðmelt.
Samvinnuverkefni þriggja
landbúnaðarfyrirtækja
BioRefine er samstarfsverkefni
þriggja danskra landbúnaðar
fyrirtækja, DLG, Danish Agro og
DLF, með það að markmiði að
framleiða umhverfisvænt prótein
sem fóður fyrir búfé.
Grasvinnsla Biorefine byggir
á 50 ára reynslu fyrirtækis sem
kallaðist Nybro sem var keypt árið
2020 og starfsemi þess breytt til að
framleiða prótein.
/VH
Afgangstrefjar sem nýttar eru í textíliðnaði og í umbúðir.
BioRefine A/S:
Próteinvinnsla úr grasi,
smára og alfalfa
Graspróteinverksmiðja BioRefine. Myndir / VH
Grasprótein, afgangstrefjar
og umbúðir úr þeim.
Nýslegnu grasi mokað í skilvindu.
Vísbendingar eru um að eldislaxarnir
séu frá Haganesi í Arnarfirði en gat
kom á kví á því eldissvæði í ágúst
2021. Mynd / Arnarlax.
Mjólká í Arnarfirði:
Eldislaxar greindir
Í nýrri skýrslu Hafrannsókna-
stofnunar segir að eldi á laxi á
heimsvísu hafi aukist mikið á
undanförnum áratugum og að
laxeldi sé nær eingöngu stundað í
sjókvíum en slíkt er víða umdeilt
vegna umhverfisáhrifa.
Í sumum löndum hefur hægt á vexti
í framleiðslu vegna umhverfisþátta
og stöðugt unnið að umhverfisvænni
lausnum í laxeldi.
Landeldi hefur verið kynnt
sem möguleg lausn við helstu
umhverfisvandamálum laxeldis
en skoðanir hafa verið skiptar um
framtíðarmöguleika þeirrar aðferðar.
Eldi í endurnýtingarkerfum
Í skýrslunni, sem er unnin af Leó
Alexander Guðmundssyni, er fjallað
um landeldi á laxi sem einkum fer fram
í endurnýtingarkerfum. Eiginleikum
endurnýtingarkerfa er lýst, auk þess
sem saga tveggja frumkvöðlafyrirtækja
í landeldi á laxi er rakin. Einnig er
fjallað um greiningar á kostnaði við
landeldi á laxi með hliðsjón af kostnaði
í sjókvíaeldi. Loks er sjónum beint bæði
til Íslands og út í heim og m.a. fjallað
um áætlanir fyrirtækja í uppbyggingu
landeldis á laxi, kolefnisspor og
stóraukinn áhuga á landeldi.
Breytt viðhorf
Í umræðum undir lok skýrslunnar
segir höfundur meðal annars: „Á
tiltölulega fáum árum hefur sýn manna
á möguleika laxeldis á landi breyst.
Fyrir um 10 árum var algengt viðhorf
að um væri að ræða vonlausa iðju
ævintýramanna. Með aukinni þekkingu
og reynslu, ásamt sögulega háum
framleiðslukostnaði í sjókvíaeldi,
hefur það viðhorf almennt breyst. [. .
.] Nú eru mörg stórfyrirtæki komin inn
í greinina ásamt öflugum fjárfestum
og víða er til staðar pólitískur og
efnahagslegur stuðningur ríkja. [. . .]
Á næstu árum verður áhugavert
að fylgjast með þróuninni í
greininni, einkum hvernig ganga
muni að fjármagna verkefni,
manna eldisstöðvar, framleiða á
markað og þróa tæknina enn frekar.
Til skemmri tíma verður áhugavert
að sjá hver þróunin í áætluðu
framleiðslumagni úr landeldi
verður en tölurnar hafa rokið
upp á skömmum tíma. Að sama
skapi verður áhugavert að fylgjast
með þróun í sjókvíaeldi varðandi
umhverfismál, dýravelferð og
framleiðslukostnað. /VH
Skýrsla Hafró um laxeldi:
Laxeldi á landi
Landeldi á laxi.
Mynd / innovationnewsnetwork.com