Bændablaðið - 22.09.2022, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Sagnfræðingurinn Dalrún Kalda-
kvísl Eygerðardóttir útskrifaðist
með doktorspróf í sagnfræði nú
í sumar, en doktorsrannsókn
hennar fjallar um ráðskonur
sem störfuðu á íslenskum
sveitaheimilum á síðari hluta
20. aldar. Rannsóknin byggði á
viðtölum sem hún tók við fyrrum
ráðskonur, er miðluðu upplifun
sinni af ráðskonustarfinu, alls 41
talsins.
Dalrún er sérfræðingur í munnlegri
sögu en slík söguleg nálgun felur í sér
að taka viðtöl, greina þau og miðla
niðurstöðunum í rituðu máli. Aðspurð
bendir hún á að saga kvenna hafi í
gegnum tíðina ekki fengið hljómgrunn
til jafns við sögu karlmanna og því
mikilvægt að sagnfræðingar ljái
konum þá rödd sem eðlilegt er að
þessi helmingur mannkyns hafi í
sögunni. Í þeirri vegferð er mikilvægt
að nýta viðtalsformið eftir mætti í
rannsóknum á sögu kvenna enda þeim
hvað þýðastur tjáningarmáti
„Konur sem gegndu ráðskonu-
starfinu í sveitum landsins á seinni
hluta 20. aldar eru nú komnar á aldur
og því nauðsynlegt að bregðast við og
skrásetja sögu þeirra kvenna áður en
þær hverfa af sjónarsviðinu – forða
ráðskonusögunni frá glötun.“
Dalrún segir það vera mikil
forréttindi fyrir hana sem sagnfræðing
að hafa fengið tækifæri til að ræða við
fyrrum ráðskonur Íslands og heyra
merkilegar lífssögur þeirra. Áður
en hún hóf rannsóknina var saga
ráðskvenna lítt þekkt og heimildirnar
mjög takmarkaðar, jafnvel þó svo
að ráðskonustéttin sé ein elsta
kvennastarfsstétt hérlendis.
Þess ber að geta að Dalrún
rannsakaði einnig forsögu ráðskonu -
starfsins allt aftur til 1850 til þess að
fá mynd af þróun þess, allt frá tímum
gamla bændasamfélagsins
Doktorsrannsóknin miðlar
þannig ekki aðeins fróðleik um
ráðskonustarfið heldur gefur einnig
þýðingarmikla innsýn í uppbyggingu
samfélagsins á síðari hluta 20. aldar.
Ekki síst innsýn í stöðu einstæðra
mæðra á síðari hluta 20. aldar –
því langflestar konur sem sinntu
ráðskonustörfum á því tímabili voru
ungar einstæðar mæður sem fóru í
slíka vist með börn sín með sér.
Í rannsókninni skoðaði Dalrún
félagslega stöðu kvenna sem voru
ráðskonur, bæði áður en þær réðu
sig í vistina og á meðan vistinni
stóð. Hún lagði einnig mikla áherslu
á að skilgreina ráðskonustarfið
með hliðsjón af starfsskyldum og
stjórnunartengdum þáttum er í starfinu
fólust.
Rótgróin kynjaskipting
„Áhugi minn á viðfangsefninu,
kviknaði vegna föðurömmu minnar
– hún starfaði sem ráðskona á
nokkrum sveitabæjum með börn
sín með sér – pabbi minn var sem
sagt ráðskonubarn,“ segir Dalrún og
bætir við að hana hafi langað að vita
hvers vegna konur, á síðari hluta 20.
aldar, sóttust í að flytja úr þéttbýli
í dreifbýli til að sækja sér vinnu.
Á tímum þegar atvinnumöguleikar
þeirra í þéttbýlinu höfðu aldrei verið
meiri. Spurningin var; Hvað stóð að
baki þessum flutningum?
Eftirspurn eftir ráðskonum segir
Dalrún að megi útskýra á fleiri en
einn veg. Vinnuveitendur ráðskvenna
voru langoftast einhleypir miðaldra
bændur, sumir voru piparkarlar,
aðrir fráskildir, einstæðir feður og
ekklar. Reyndar var ekki óalgengt
að ráðskonur störfuðu á bæjum þar
sem í heimili voru bræður, feðgar
eða bændur og oft aldraðar mæður
þeirra. Brotthvarf kvenna úr sveitum
í þéttbýlið á 20. öld skapaði þörf fyrir
ódýrt kvenkyns vinnuafl til að sinna
heimilishaldi í sveitum og í slíkum
tilfellum gat heimilishjúið ráðskonan
bjargað málunum. Á þessum tíma
var enn rótgróin kynjaskipting á
íslenskum sveitaheimilum sem
mótaðist meðal annars af viðteknum
hugmyndum um að heimilisstörf
væru kvennastörf.
„Víst er að karlarnir höfðu
iðulega lítinn metnað fyrir því að
sinna heimilisstörfum á bæjunum
en það má samt ekki gleyma því að
þeir höfðu oft og tíðum litla eða enga
kunnáttu á því sviði, enda vanist því
frá unga aldri að slík þjónusta væri
reidd fram af mæðrum, systrum
eða öðru kvenfólki. Það þýðir
þó ekki að þær konur sem sinntu
ráðskonustörfum hafi endilega búið
að reynslu af heimilishaldi sem
eitthvað kvað að.
Áhugavert var að sumar þeirra
höfðu enga reynslu af hússtörfum og
flestar kvennanna höfðu lítinn áhuga
á þrifum og matartilbúningi. Forsenda
þess að vera ráðin sem ráðskona
var því öðru fremur að vera kona,
enda konur taldar búa yfir eðlislægri
þekkingu á heimilisstörfum.“
Helmingur viðmælenda
Dalrúnar sinnti útiverkum samhliða
störfum sínum inni við, en þó fólst
meginábyrgð þeirra í hússtjórn.
Viðtölin leiddu hins vegar í ljós
að margir bændur þörfnuðust
félagsskapar ráðskvennanna, ekki
síður en starfsins sem þær voru
ráðnar til að sinna. „Þeir voru
margir einmana og óskuðu eftir
selskap. Þetta fannst mér merkilegt
að heyra,“ segir Dalrún, en nokkur
hluti viðmælenda hennar sagði
hreint út að þær álitu meginstarf sitt
á bænum hafa verið fólgið í því að
halda bændunum selskap, enda hluti
þeirra er réðu sér ráðskonur með lítil
félagsleg tengsl og þótti vænt um að
fá líf í húsið. Oft gat myndast góður
kunningsskapur með ráðskonunum
og bændunum, sem entist gjarnan
eftir að ráðskonuvistinni lauk.
Viðtölin sýndu að konurnar
voru stoltar af því að hafa sinnt
stjórnunarstöðu á sveitabæjum
enda báru þær mikla virðingu fyrir
sveitalífinu, líkt og reyndin var með
flesta Íslendinga á þeim tíma.
Víst er að vinnuframlag
ráðskvenna á íslenskum sveita-
bæjum skipti miklu máli fyrir
samfélög sveitanna á sínum tíma.
Heimilisstörfin sem þær sinntu voru
nauðsynlegur þáttur í gangverki
búnaðarstarfa sem unnið var að á
sveitabæjunum,“ segir Dalrún.
Félagslegt úrræði
Launuð heimilisstörf á síðari hluta 20.
aldar, þar með talið ráðskonustarfið,
var ekki eingöngu kynbundið heldur
líka stéttbundið. „Það voru yfirleitt
fátækar, ungar einstæðar mæður
úr þéttbýlinu sem tóku að sér þetta
láglaunastarf. Félagsleg staða
einstæðra mæðra á þessum tíma
var líkt og áður mjög bágborin því
samfélagið gerði á margan hátt ekki
ráð fyrir þeim konum og börnum
þeirra. Einstæðum mæðrum var
ætlað að bera þungan af uppeldis-
og framfærslumálum barna sinna en
á sama tíma skorti félagsleg úrræði til
að styðja þær í þeirri erfiðu vegferð.
Afskiptaleysi barnsfeðra á þessum
tíma gagnvart börnum sínum þótti
sumsé ekkert tiltökumál. Einstæðar
mæður sinntu því gjarnan fleiri en
einu starfi til að ná endum saman.
Það er ótrúlegt að einstæðar mæður,
þessar kvenhetjur Íslands, sem alla
tíð hafa þurft að leggja ótrúlega mikið
á sig til að tryggja velferð barna
LÍF&STARF
bondi@byko.is
Stöðluð stálgrindarhús
Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m²
Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er
sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin
standast mestu snjó-og vindálagskröfur
sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta
því sem geymslu-og vélaskemmur í öllum
landshlutum. Húsin eru klædd 60mm PIR
yleiningum á veggi og 80/125mm yleiningum á
þök. Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar.
Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar
til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum
af grunni og vinnuteikningum. Einnig fylgir
keyrsluhurð, einn gluggi og tvær gönguhurðir.
Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypa
inn birtu.
á hagstæðu verði
Ráðskonur í sveit á síðari hluta 20. aldar:
Huldufreyjur Dalrúnar
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Að vera ráðskona
þýddi svolítil völd,
bæði í þeirra huga
og annarra, ekki síst
vegna þess að þetta
var staða konu sem
„bjargaði heimilinu“
ef svo má segja.“
Dalrún fyrir utan heimili sitt í Mosfellsdalnum. Mynd / SP