Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Grasagarðurinn í Kew var
formlega settur á stofn árið 1840
en þar hafði verið einkagarður
fyrir með miklu plöntusafni. Í
dag er Kew einn af fallegustu og
virtustu grasagörðum í heimi.
Auk garðsins sjálfs, sem er opinn
almenningi, er unnið í tengslum
við hann gríðarlegt vísindastarf
sem felst meðal annars í greiningu
og varðveislu erfðaefnis plantna í
útrýmingarhættu og nytjaplantna.
Markmið Kew er að auka skilning
manna á gróðri og sveppum og á
sama tíma að vernda líffræðilega
fjölbreytni í náttúrunni og vera safn
og sýningarsvæði fyrir plöntur.
Garðurinn, sem heitir fullu
nafni Royal Botanic Gardens,
Kew, er 120 hektarar að stærð
og staðsettur í Richmond upon
Thames í suðvesturhluta London.
Í honum er að finna yfir fimmtíu
þúsund mismunandi tegundir
plantna auk fjölda ólíkra yrkja og
afbrigða. Garðurinn er eitt stærsta
og fjölbreyttasta safn lifandi gróðurs
í heiminum.
Til að skilja umfang starfsemi
garðsins í Kew þá starfa við hann
rúmlega 500 manns og þar af
150 garðyrkjufræðingar og 350
sérfræðingar sem sinna rannsóknum
og flokkun. Vísindasvið garðsins
heldur úti meistara- og doktorsnámi
í grasafræði og þar er einnig
garðyrkjuskóli. Auk stjórnunar-,
skrifstofu- og starfsfólks í þjónustu
við veitingasölu og verslun garðsins
og ekki má gleyma ógrynni af
sjálfboðaliðum við leiðsögn og
umhirðu blómabeða. Árlega
heimsækja garðinn meira en 1,4
milljónir gesta.
Wakehurst í Sussex
Grasagarðurinn við Wakehurst
í Sussex er rekinn undir stjórn
Konunglega grasagarðsins í Kew.
Fyrstu kæligeymslurnar þar fyrir
fræ voru byggðar árið 1978. Þar er
varðveitt fræsafn Kew, Milleninum
Seed Bank, sem hýsir fræ um 75.000
tegunda sem er nærri 25% allra
þekktra plantna í heiminum.
Garður á gömlum grunni
Fyrtu heimildir um búsetu
háaðalsins í Richmond upon Thames
eru frá 1299 þegar Edvarð I flutti
hirð sína í sveitasetur sem hann
byggði þar. Hinrik VII bætti um
betur og létt byggja þar höll 1501
og gerða að fastabústað sínum
og þar bjó Mary Tudor eða Blóð-
María Bretlandsdrottning um tíma.
Umhverfis höllina voru lendur Kew.
Upphaf ræktunar á landinu þar
sem Kew er í dag er rakið aftur til
Henry Capell baróns sem var uppi
á sautjándu öld. Capell, sem átti þar
132 hektara, var mikill plöntusafnari
líkt og margir aðalsmenn á þeim
tíma og ræktuðu garðyrkjumenn
hans sjaldgæfar plöntur undir berum
himni og í gróðurhúsum úr gleri.
Árið 1731 keyptu Frederick
Louis og Ágústa af Saxe-Gotha,
prinsinn og prinssessan af Wales,
landið og héldu ræktunarstarfinu
áfram. Frederick lést skyndilega
1751 en ekkjan hélt sínu striki og
árið 1759 opnaði hún átta hektara
grasa- og skemmtigarð fyrir gestum
af aðals- og hefðarstétt.
Frá þeim tíma hafa margir
merkismenn komið að uppbyggingu
garðsins. Árið 1762 hannaði William
Chambers lávarður, og lét byggja,
pagóðu í garðinum sem gjöf til
Ágústu prinsessu. Pagóðan stendur
enn og var á sínum tíma einn besti
úrsýnisstaðurinn í London.
Joseph Banks, sem ferðaðist
um Ísland 1772, sendi fyrstur
manna fræ frá fjarlægum löndum
til Kew árið 1768 þegar hann
var náttúrufræðingur um borð
þegar Cook sigldi Endeavor fyrir
Hornhöfða Suður-Ameríku og þaðan
til Ástralíu og Nýja-Sjálands og fyrir
suðurodda Afríku heim til Bretlands.
Eftir heimkomuna var Banks
útnefndur fyrsti forstöðumaður
garðsins og sérstakur ráðgjafi
Georgs III Bretakonungs við Kew.
Banks var ekki bara duglegur
að safna plöntum sjálfur fyrir
garðinn því hann sendi áhugasama
grasafræðinga út um allan heim til að
safna plöntum. Sagan segir að fyrir
hans tilstuðlan hafi borist í garðinn
um 30 þúsund plöntur sem flestar
voru óþekktar í Evrópu á þeim
tíma. Banks er sagður eiga mesta
heiðurinn af því að byggja grunninn
að gróðurfjölbreytni Kew og því
vísindastarfi sem þar fer fram í dag.
Skoski grasafræðingurinn Francis
Masson, sem dvaldi í Suður-Afríku
við gróðurrannsóknir frá 1773
til 1775, sendi hátt í þúsund sýni
af fræjum, lifandi og þurrkuðum
plöntum til Kew. Masson sendi
árið 1175 til Bretlands kögurpálma,
Encephalartos altensteinii.
Árið 1848 var planta flutt í
pálmahús Kew og er plantan enn og
telst vera elsta pottaplanta í heimi.
Kew formlega grasagarður
William Hooker, lávarður og
Íslandsferðalangur, tók við af
Banks sem forstöðumaður Kew
1840. Sama ár er grasagarðurinn í
Kew formlega settur á laggirnar og
garðurinn opnaður fyrir almenningi.
Ári seinna færði sonur hans og
Joseph Hooker garðinum að gjöf
plöntur frá Falklandseyjum sem voru
fluttar yfir hafið í Wardian-kassa.
Einfaldri uppfinningu sem breytti
sögu grasafræðinnar.
Næstu áratugina var mikil
uppbygging í garðinum. Hitabeltis-
eða pálmahúsið og gróðurhús fyrir
plöntur frá tempruðu beltunum eru
reistar og reist er sérstök bygging til
að hýsa þurrkaðar plöntur.
Þegar Hooker eldri lést árið
1865 tók Joseph sonur hans við
sem forstöðumaður en steig til
hliðar í því starfi 1885. Í hans tíð
var stofnsett við garðinn Jodrell
rannsóknamiðstöðin sem á þeim
tíma lagði áherslu á rannsóknir
á plöntusjúkdómum og frumum
Grænni framtíð með Kew
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
GRÓÐUR&GARÐAR
Pálmahúsið hýsir plöntur sem upprunnar eru í hitabeltinu. Húsið, sem er í Viktoríustíl, var reist á árunum milli 1844 og 1848. Myndir VH
Wollemia nobilis er ein af sjaldgæfustu trjátegundum í heimi. Tegundin er í
gjörgæslu og fjölgað í Kew. Sama tré 2011 og 2022 og það hefur þrefaldast í hæð.