Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
ÞÓR F
H Reykjavík: Krókháls 16 | Sími 568-1500
Akureyri: Baldursnes 8 | Sími 568-1555
www.thor. is | thor@thor.is
Söluráðgjafi vélasviðs á Akureyri
Þór hf. leitar að hressum og drífandi einstaklingi með áhuga á vélum og
landbúnaði til starfa í útibúi okkar á Akureyri.
Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði í starfi og þarf að vera tilbúinn í söluferðir
og heimsóknir til bænda. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfssvið:
z Sala á landbúnaðarvélum og vinnuvélum.
z Starfið felur í sér ferðalög og heimsóknir til
viðskiptavina, aðallega á norðurlandi.
z Viðkomandi starfsmaður verður með
starfsstöð í verslun okkar á Baldursnesi á
Akureyri.
Þór hf. er umboðsaðili fyrir sterk og vönduð vörumerki eins og
Kubota, Deutz-Fahr, Amazone, Joskin, Grimme ofl.
Hæfniskröfur:
z Reynsla af sölumennsku.
z Góð þekking á vélum og vélbúnaði
z Tölvukunnátta
z Góð kunnátta í ensku
z Þjónustulund og góð framkoma
z Reynsla og þekking á landbúnaði æskileg,
ekki nauðsyn.
Sótt er um starfið á www.alfred.is - Nánari upplýsingar veitir Einar í síma 568-1513
eða með tölvupósti á starf@thor.is - Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2022
MSZ-RW er besta loft í
loft varmadælan okkar.
Hentar vel í nánast allar
tegundir húsa t.d.:
• Alrými einbýlishúsa
• Sumarbústaði 60+ fm
• Geymslur
Kynningartilboð á
MSZ-RW35 Varmadælu,
innifalið er:
• Góð þjónusta
• Veggfesting
• Mótorpúði
• Flott skjólhus fyrir útieiningu
Nánari upplýsingar á
nýrri heimasíðu okkar:
AÐEINS
333.333 ISK m/vsk
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS
900 milljónir greiddar út til bænda
Fyrstu sprettgreiðslurnar
til bænda voru greiddar út
síðastliðinn föstudag, tæpar
900 milljónir
króna.
Um var að
ræða álag á
gæðastýringar-
greiðslur, álag
á nautakjöt fyrir
f r a m l e i ð s l u
fyrri hluta árs og
stuðning við geitfjárrækt.
Á mánudaginn í þessari
viku var svo greitt út álag á
gripagreiðslur á mjólkur- og
holdakýr. Í næsta mánuði verður
svo greitt út álag á jarðræktar-,
útirækt og landgreiðslur. Síðari
hluti greiðslna vegna nautakjöts,
stuðningur til alifugla- og svína
kjötsframleiðenda verður
greiddur í lok árs og upphafi
næsta árs.
Ég stend með bændum
Samtals er þessi stuðningur
rúmir 2,5 milljarðar króna.
Síðastliðið vor blasti við að
grípa þurfti til aðgerða til þess
að viðhalda framleiðsluvilja
og fæðuöryggi. Ég skipaði
þriggja manna spretthóp til
að vinna hratt og skila mér
útfærðum tillögum á viku. Það
gekk eftir og tillögurnar hlutu
víðtækan pólitískan stuðning,
bæði á vettvangi stjórnmálanna
og í samfélaginu. Það var mér
mikilvægt að finna að vilji var
til þess á stjórnarheimilinu að
fara að tillögu minni að standa
með bændum. Aðfangakeðja
landbúnaðar er þó áfram
með hnútum og löskuðum
hlekkjum. Enn þá geisar stríð
í Úkraínu, kornforðabúri
Evrópu. Enn þá er mikil óvissa
um áburðarframleiðslu næsta
árs og viðbúið að verð á helstu
aðföngum til landbúnaðar verði
hátt um nokkra hríð. Þó að
afurðaverð í t.d. sauðfjárrækt
hafi hækkað myndarlega í
sumar veit ég að mörg þeirra
sem stunda landbúnað mega
ekki við miklum áföllum til
þess að heimilisbókhaldið fari
forgörðum.
Þá hafa stýrivaxtahækkanir
haft áhrif á vaxtagreiðslur
hjá mörgum í landbúnaði og
líklegt að svo verði þangað
til að verðbólgudraugurinn
verður særður burt á nýjan
leik. Vegna þessa þurfa fleiri
en stjórnvöld að koma að
borðinu. Öll þau sem koma að
virðiskeðju matvæla þurfa að
axla sameiginlega ábyrgð á því
að tryggja skilyrði fyrir innlenda
landbúnaðarframleiðslu og þar
með fæðuöryggi. Fæðuöryggi
verður eingöngu tryggt með
kraftmiklum landbúnaði.
Eitt af þeim málum sem
eru á minni þingmálaskrá
fyrir þetta löggjafarþing er
frumvarp um hagræðingu í
afurðastöðvageiranum. En ein
af tillögum fyrrnefnds spretthóps
var að skapa umgjörð utan um
hagræðingu við slátrun og
kjötvinnslu. Unnið er að útfærslu
þeirra tillagna og verða þær
kynntar í samráðsgátt stjórnvalda
þegar líða tekur á haustið. Ætla
má að þær tillögur muni hljóta
nokkra umræðu í samfélaginu
þegar þær verða birtar og
verður í kjölfarið unnið úr þeim
athugasemdum sem berast áður
en málið er lagt fyrir Alþingi.
Ef við gerum sömu hlutina,
fáum við sömu niðurstöður
Ég hef rætt við marga bændur
síðan ég tók við embætti
matvælaráðherra og ég finn
metnaðinn og kraftinn sem býr
í þeim. Það eru mikil tækifæri
í íslenskum landbúnaði og ég
held að á næstu árum muni
landbúnaðurinn sýna hvað
í honum býr. Við þurfum
metnaðarfullan og framsækinn
landbúnað hér á landi, til þess
að tryggja fæðuöryggi og til þess
að ná árangri í loftslagsmálum.
Okkur hættir til þess að
gleyma því að landbúnaðurinn
er sífellt að breytast og verður
að vera sífellt að breytast til
að mæta áskorunum hvers
tíma. Þannig þurfa verkfæri
hins opinbera til stuðnings við
landbúnað að breytast í takt
við verkefnin. En þar held
ég að við eigum mikið verk
eftir óunnið við endurskoðun
búvörusamninga. Bændur og ríki
þurfa að spyrja sig, hvað hefur
gengið vel og hvað hefur gengið
illa. Því það er ljóst í mínum
huga að ef við gerum það sama
áfram, þá munum við fá sömu
niðurstöðu. Og þá niðurstöðu
felli ég mig ekki við – því að
landbúnaðurinn er of mikilvægur
til þess að vera í vörn. Ábyrgðin
er ekki eingöngu gagnvart
íslenskum skattgreiðendum og
þeirra sem eru bændur núna
og í næstu viku. Heldur er hún
gagnvart landbúnaði og innlendri
matvælaframleiðslu til langrar
framtíðar á Íslandi.
Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra.
Svandís
Svavarsdóttir.