Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 49

Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 ÞÓR F H Reykjavík: Krókháls 16 | Sími 568-1500 Akureyri: Baldursnes 8 | Sími 568-1555 www.thor. is | thor@thor.is Söluráðgjafi vélasviðs á Akureyri Þór hf. leitar að hressum og drífandi einstaklingi með áhuga á vélum og landbúnaði til starfa í útibúi okkar á Akureyri. Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði í starfi og þarf að vera tilbúinn í söluferðir og heimsóknir til bænda. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfssvið: z Sala á landbúnaðarvélum og vinnuvélum. z Starfið felur í sér ferðalög og heimsóknir til viðskiptavina, aðallega á norðurlandi. z Viðkomandi starfsmaður verður með starfsstöð í verslun okkar á Baldursnesi á Akureyri. Þór hf. er umboðsaðili fyrir sterk og vönduð vörumerki eins og Kubota, Deutz-Fahr, Amazone, Joskin, Grimme ofl. Hæfniskröfur: z Reynsla af sölumennsku. z Góð þekking á vélum og vélbúnaði z Tölvukunnátta z Góð kunnátta í ensku z Þjónustulund og góð framkoma z Reynsla og þekking á landbúnaði æskileg, ekki nauðsyn. Sótt er um starfið á www.alfred.is - Nánari upplýsingar veitir Einar í síma 568-1513 eða með tölvupósti á starf@thor.is - Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2022 MSZ-RW er besta loft í loft varmadælan okkar. Hentar vel í nánast allar tegundir húsa t.d.: • Alrými einbýlishúsa • Sumarbústaði 60+ fm • Geymslur Kynningartilboð á MSZ-RW35 Varmadælu, innifalið er: • Góð þjónusta • Veggfesting • Mótorpúði • Flott skjólhus fyrir útieiningu Nánari upplýsingar á nýrri heimasíðu okkar: AÐEINS 333.333 ISK m/vsk Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS 900 milljónir greiddar út til bænda Fyrstu sprettgreiðslurnar til bænda voru greiddar út síðastliðinn föstudag, tæpar 900 milljónir króna. Um var að ræða álag á gæðastýringar- greiðslur, álag á nautakjöt fyrir f r a m l e i ð s l u fyrri hluta árs og stuðning við geitfjárrækt. Á mánudaginn í þessari viku var svo greitt út álag á gripagreiðslur á mjólkur- og holdakýr. Í næsta mánuði verður svo greitt út álag á jarðræktar-, útirækt og landgreiðslur. Síðari hluti greiðslna vegna nautakjöts, stuðningur til alifugla- og svína kjötsframleiðenda verður greiddur í lok árs og upphafi næsta árs. Ég stend með bændum Samtals er þessi stuðningur rúmir 2,5 milljarðar króna. Síðastliðið vor blasti við að grípa þurfti til aðgerða til þess að viðhalda framleiðsluvilja og fæðuöryggi. Ég skipaði þriggja manna spretthóp til að vinna hratt og skila mér útfærðum tillögum á viku. Það gekk eftir og tillögurnar hlutu víðtækan pólitískan stuðning, bæði á vettvangi stjórnmálanna og í samfélaginu. Það var mér mikilvægt að finna að vilji var til þess á stjórnarheimilinu að fara að tillögu minni að standa með bændum. Aðfangakeðja landbúnaðar er þó áfram með hnútum og löskuðum hlekkjum. Enn þá geisar stríð í Úkraínu, kornforðabúri Evrópu. Enn þá er mikil óvissa um áburðarframleiðslu næsta árs og viðbúið að verð á helstu aðföngum til landbúnaðar verði hátt um nokkra hríð. Þó að afurðaverð í t.d. sauðfjárrækt hafi hækkað myndarlega í sumar veit ég að mörg þeirra sem stunda landbúnað mega ekki við miklum áföllum til þess að heimilisbókhaldið fari forgörðum. Þá hafa stýrivaxtahækkanir haft áhrif á vaxtagreiðslur hjá mörgum í landbúnaði og líklegt að svo verði þangað til að verðbólgudraugurinn verður særður burt á nýjan leik. Vegna þessa þurfa fleiri en stjórnvöld að koma að borðinu. Öll þau sem koma að virðiskeðju matvæla þurfa að axla sameiginlega ábyrgð á því að tryggja skilyrði fyrir innlenda landbúnaðarframleiðslu og þar með fæðuöryggi. Fæðuöryggi verður eingöngu tryggt með kraftmiklum landbúnaði. Eitt af þeim málum sem eru á minni þingmálaskrá fyrir þetta löggjafarþing er frumvarp um hagræðingu í afurðastöðvageiranum. En ein af tillögum fyrrnefnds spretthóps var að skapa umgjörð utan um hagræðingu við slátrun og kjötvinnslu. Unnið er að útfærslu þeirra tillagna og verða þær kynntar í samráðsgátt stjórnvalda þegar líða tekur á haustið. Ætla má að þær tillögur muni hljóta nokkra umræðu í samfélaginu þegar þær verða birtar og verður í kjölfarið unnið úr þeim athugasemdum sem berast áður en málið er lagt fyrir Alþingi. Ef við gerum sömu hlutina, fáum við sömu niðurstöður Ég hef rætt við marga bændur síðan ég tók við embætti matvælaráðherra og ég finn metnaðinn og kraftinn sem býr í þeim. Það eru mikil tækifæri í íslenskum landbúnaði og ég held að á næstu árum muni landbúnaðurinn sýna hvað í honum býr. Við þurfum metnaðarfullan og framsækinn landbúnað hér á landi, til þess að tryggja fæðuöryggi og til þess að ná árangri í loftslagsmálum. Okkur hættir til þess að gleyma því að landbúnaðurinn er sífellt að breytast og verður að vera sífellt að breytast til að mæta áskorunum hvers tíma. Þannig þurfa verkfæri hins opinbera til stuðnings við landbúnað að breytast í takt við verkefnin. En þar held ég að við eigum mikið verk eftir óunnið við endurskoðun búvörusamninga. Bændur og ríki þurfa að spyrja sig, hvað hefur gengið vel og hvað hefur gengið illa. Því það er ljóst í mínum huga að ef við gerum það sama áfram, þá munum við fá sömu niðurstöðu. Og þá niðurstöðu felli ég mig ekki við – því að landbúnaðurinn er of mikilvægur til þess að vera í vörn. Ábyrgðin er ekki eingöngu gagnvart íslenskum skattgreiðendum og þeirra sem eru bændur núna og í næstu viku. Heldur er hún gagnvart landbúnaði og innlendri matvælaframleiðslu til langrar framtíðar á Íslandi. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Svandís Svavarsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.