Bændablaðið - 22.09.2022, Page 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
LÍF&STARF
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Vandaðar Alzaga kerrur frá Spáni
39 ára reynsla
Innifalið í verði er nefhjól, varadekk,
öryggiskeðja.
Stærð kassi 2300x1400x440. 750 kg.
Verð kerra frá 210.000 kr.
Verð kerra með festingum fyrir hjól
frá 250.000 kr.
Upplýsingar í síma 6660632.
Hreppamjólkur, en hana er hægt að
fá í sjálfsala í Krónunni Lindum.
Þar getur fólk mætt með hreina
flösku og fyllt á að vild,“ segja þær
brosandi og bæta því við að þrífa
þurfi flöskuna vel og sótthreinsa.
Upplýsingar um þrif á flöskum
má finna á vefsíðunni, en stefnan
er auðvitað sú að sjálfsala verði að
finna víða um land í framtíðinni.
Greiðslukerfi má svo finna framan á
sjálfsalanum þannig að ýtt er á start
og stopp og greitt eftir því.
Fyrirtækið Hreppamjólk
býður upp á, auk mjólkurinnar,
Hreppó, afar vinsælan bragðbættan
mjólkurdrykk. Er hann fáanlegur í
þremur bragðtegundum: súkkulaði,
jarðarberja og biskotti.
Einnig má fá
H r e p p a r j ó m a ,
bakaða Hreppa-
jógúrt, ís og
undanrennu.
Á Landsmótinu
buðu þær stöllur
gestum og gang-
andi að kaupa sér
heitt kakó sem má
segja að hafi runnið
ljúflega ofan í
viðstadda enda,
eins og allar vörur
Hreppamjólkur, var
það hreint fyrirtak.
Litla hestabúðin
Sigga Pje var viðmælandi minn er
kom að bás Litlu hestabúðarinnar
á Sólvangi við Eyrarbakka. Í
þeirri verslun má meðal annars
finna talsvert úrval af gjafavöru
og listmunum tengdum íslenska
hestinum og hestavörum frá dönsku
fyrirtækjunum Birgittes BlingBling
svo eitthvað sé nefnt. „Jú, segir
Sigga hressilega, „ég kynntist henni
Birgitte þegar við vorum að dæma
hesta á hestamannamóti í Danmörku
og náðum svo vel saman að við
hófum samstarf. Birgitte handgerir
semelíuskreyttar ennisólar og annað,
þannig ég fór að kaupa af henni og
selja fyrir hana.“
Sérpantanir í boði
„Markaðurinn fyrir slíkt skraut
hefur þó vaxið á ógnarhraða enda
leið ekki á löngu þar til ég var farin
að gera allar ennisólarnar sem seldar
eru á Íslandi. Ég dúlla mér í þessu á
kvöldin og geri eina tvær … svipað
og fólk róar sig við CandyCrush eða
prjónar, þá sit ég og skreyti ennisólar
með hágæða kristalsteinum,“
segir hún glottandi. „Í rauninni
eyði ég mestum tíma í að hugsa
samsetningarnar á steinunum, enda
er engin hönnun eins. Svo er ég að
halda námskeið, gerði það fyrir jólin
í fyrra t.d., þar sem fólk mætir og
getur gert sína eigin ennisól. Að
auki geri ég alls kyns sérpantanir
– enda ekki bara ennisólar sem fólk
óskar eftir heldur eru beisli skreytt,
taumar og annað.“
Bás Siggu er listilega uppsettur
og vel hannaðir og skrautlegir
fylgihlutir hesta blasa við í
hvívetna. Tvímælalaust eitthvað
sem þarf að líta tvisvar á. /SP
Listakonurnar Brigitte og Sigga Pje handgera semelíuskreytta fylgihluti
ætlaða hestum sem eru afar vinsælir.
Reynsla, virðing,
fagmennska
Baritón
Veiti einnig ráðgjöf
vegna tónlistar og
útvega sönghópa
SÖNGUR VIÐ ÚTFARIR
Jón Svavar Jósefsson
jonsvavar.is s: 864 2407
jonljon@gmail.com
facebook/jarðarfarasöngvarinn
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is