Bændablaðið - 22.09.2022, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
VÉLABÁSINN
Claas Arion 470 sem Vélfang selur
er millistór traktor á íslenskan
mælikvarða. Sambærilegar vélar
hvað varðar stærð eru Massey
Ferguson 5700S, Valtra N og New
Holland T6 þó erfitt sé að gera
beinan samanburð.
155 hestöfl ásamt aflúrtaki að
framan og aftan ætti að duga þessari
vél í flest verk. Ámoksturstæki auka
notagildi og fjaðrandi framhásing
gerir akstur þægilegan.
Þegar horft er á vélina utan frá
sést strax að metnaður hefur verið
settur í að láta vélina líta smekklega
út. Eitt helsta einkenni vélarinnar er
ljósgræni liturinn og rauðu felgurnar
sem hafa verið einkennislitir Claas
landbúnaðartækja í áratugi. Annað
sterkt einkenni eru sex hringlaga ljós
fremst á húddinu. Þrátt fyrir að ljósin
minni helst á augun á könguló þá er
útfærslan á þeim vel heppnuð.
Að öðru leyti er Claas Arion eins
og hver önnur dráttarvél: Með stór
dekk að aftan, aðeins minni dekk
að framan og ökumannshúsi aftast.
Uppskrift sem er praktísk, enda er
þetta vinnuvél.
Ökumannshús
Þegar klifrað er upp í ökumannshúsið
heldur jákvæð upplifunin áfram.
Sætið er stillanlegt á fjölmarga vegu
og fjaðrar bæði upp og niður; og
fram og til baka.
Flest sem ökumaðurinn snertir
með höndunum er vel formað og úr
góðum efnum. Stýrið er leðurklætt
eins og í betri bifreiðum.
Fjölnota stýripinni og
sjálfvirkur gírkassi
Næstum allri vinnu vélarinnar
er stjórnað með stýripinna sem
er þægilega staðsettur fremst
á armpúðanum hægra megin.
Ámoksturstækin eru það helsta sem
er stjórnað með pinnanum, en með
fjórum forritanlegum hnöppum er
hægt að láta pinnann stjórna hverjum
þeim aukahlut sem stýrt er með
vökvaþrýstingi.
Auðvelt er að forrita hnappana
eftir þörfum hverju sinni og getur
sami takkinn stýrt þriðja sviðinu á
ámoksturstækjunum eða verið til að
hífa og slaka sláttuvél. Þessi pinni
auðveldar verk sem krefjast mikillar
endurtekningar og þarf notandinn
ekki að teygja sig endurtekið í
stjórnborðið við hliðina á sætinu.
Akstursupplifun vélarinnar
minnir um margt á akstur sjálfskipts
bíls, þökk sé Quadrishift 16/16
gírkassa. Í gólfinu er kúpling en hún
er ekkert notuð við almenna vinnu
þar sem nóg er að ýta á bremsuna
til að stöðva vélina. Akstursstefnan
er valin með vendigír sem er ýmist
stjórnað með lítilli sveif vinstra
megin við stýrið eða einfaldri skipun
í stýripinnanum.
Annaðhvort er hægt að láta
vélina skipta sjálf á milli gíra eða
ökumaðurinn velur sjálfur milli
þrepa með hnappi á pinnanum góða.
Hljóðlát og fjaðrar vel
Eitt af því sem ekki er til staðar
í ökumannshúsinu er hávaði.
Greinilegt er að hljóðeinangrunin
er vönduð, því hávaðinn sem berst
inn er engu meiri en í venjulegum
fólksbíl. Peltor heyrnartólin er því
hægt að skilja eftir heima.
Vélin í þessum reynsluakstri var
útbúin fjaðrandi framhásingu. Þökk
sé fjöðrun í hásingu; sæti sem fjaðrar
á fjóra vegu (upp/niður og fram/
aftur); og öflugrar hljóðeinangrunar
er akstursupplifunin afslappandi.
Ökumaðurinn er einangraður frá
verstu höggunum sem verða við
akstur á grófu yfirborði og áreynsla
minnkar.
Óhindrað útsýni
Hægt er að fá þessar vélar útbúnar
með ámoksturstækjum sem auka
notkunarsvið þeirra til muna. Við
notkun tækjanna kemur sér vel að
á vélinni er topplúga sem tengist
framrúðunni nær samskeytalaust.
Notandinn getur því staflað rúllum
leikandi í fjórar hæðir án þess að
þurfa endalaust að rugga sér fram og
aftur í sætinu til að skyggnast fram
fyrir þakið. Ef sól er lágt á lofti er
hægt að draga fyrir topplúguna.
Sjálfvirk kúpling
Við nákvæmnisvinnu getur verið erfitt
að ná tökum á sjálfvirku kúplingunni;
sérstaklega ef gírkassinn er stilltur á
sjálfskiptingu. Bremsan virkar mikið
til eins og „af eða á“ hnappur fyrir
kúplinguna og nýtist hún því illa til
að stilla hraðann af mjúklega. Þetta
skánar örlítið þegar gírkassinn er
tekinn úr sjálfskiptingu og valinn er
lágur gír. Þessi eiginleiki er örugglega
eitthvað sem er hægt að ná tökum
á, en upplifunin er ólík fínvinnu á
skotbómulyfturum eða bílum með
hefðbundna sjálfskiptingu.
Tölur
Helstu mál eru 2.715 mm á hæð,
2.500 mm á breidd og 4.444 mm
á lengd. Þyngd vélarinnar er 5.300
kg án aukabúnaðar og burðargetan
er 3.700 kg. Leyfð heildarþyngd
9.000 kg. Claas Arion 470 með
ámoksturstækjum og framfjöðrun
kostar frá frá 14.600.000 krónum án
vsk. Vélin í þessum prufuakstri var
með aukabúnað eins og aflúrtaki og
lyftu að framan og kostar með þeim
útbúnaði 15.400.000 krónur án. vsk.
Sérstakar þakkir fá bændurnir
á Signýjarstöðum sem lögðu til
dráttarvélina í þennan reynsluakstur.
Sætið fjaðrar á fjóra vegu (upp/niður & fram/aftur). Fjöðrunin fram/aftur
breytir miklu hvað varðar þægindi.
Einn helsti kostur ökumannshússins er óhindrað útsýni um þakgluggann.
Claas Arion 470 eru notendavænar dráttarvélar í millistærð. Smekklegt útlit og vel útfært vinnuumhverfi gera vélina að valmöguleika sem er vel þess virði að skoða.
Myndir / ÁL
Skýr skjár við hliðina á framrúðunni
gefur allar helstu upplýsingar.
Stýripinnann er hægt að forrita á þá vegu að notandinn þarf ekki að teygja sig
í stjórnborðið við vinnu sem krefst mikillar endurtekningar.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is