Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 VÉLABÁSINN Claas Arion 470 sem Vélfang selur er millistór traktor á íslenskan mælikvarða. Sambærilegar vélar hvað varðar stærð eru Massey Ferguson 5700S, Valtra N og New Holland T6 þó erfitt sé að gera beinan samanburð. 155 hestöfl ásamt aflúrtaki að framan og aftan ætti að duga þessari vél í flest verk. Ámoksturstæki auka notagildi og fjaðrandi framhásing gerir akstur þægilegan. Þegar horft er á vélina utan frá sést strax að metnaður hefur verið settur í að láta vélina líta smekklega út. Eitt helsta einkenni vélarinnar er ljósgræni liturinn og rauðu felgurnar sem hafa verið einkennislitir Claas landbúnaðartækja í áratugi. Annað sterkt einkenni eru sex hringlaga ljós fremst á húddinu. Þrátt fyrir að ljósin minni helst á augun á könguló þá er útfærslan á þeim vel heppnuð. Að öðru leyti er Claas Arion eins og hver önnur dráttarvél: Með stór dekk að aftan, aðeins minni dekk að framan og ökumannshúsi aftast. Uppskrift sem er praktísk, enda er þetta vinnuvél. Ökumannshús Þegar klifrað er upp í ökumannshúsið heldur jákvæð upplifunin áfram. Sætið er stillanlegt á fjölmarga vegu og fjaðrar bæði upp og niður; og fram og til baka. Flest sem ökumaðurinn snertir með höndunum er vel formað og úr góðum efnum. Stýrið er leðurklætt eins og í betri bifreiðum. Fjölnota stýripinni og sjálfvirkur gírkassi Næstum allri vinnu vélarinnar er stjórnað með stýripinna sem er þægilega staðsettur fremst á armpúðanum hægra megin. Ámoksturstækin eru það helsta sem er stjórnað með pinnanum, en með fjórum forritanlegum hnöppum er hægt að láta pinnann stjórna hverjum þeim aukahlut sem stýrt er með vökvaþrýstingi. Auðvelt er að forrita hnappana eftir þörfum hverju sinni og getur sami takkinn stýrt þriðja sviðinu á ámoksturstækjunum eða verið til að hífa og slaka sláttuvél. Þessi pinni auðveldar verk sem krefjast mikillar endurtekningar og þarf notandinn ekki að teygja sig endurtekið í stjórnborðið við hliðina á sætinu. Akstursupplifun vélarinnar minnir um margt á akstur sjálfskipts bíls, þökk sé Quadrishift 16/16 gírkassa. Í gólfinu er kúpling en hún er ekkert notuð við almenna vinnu þar sem nóg er að ýta á bremsuna til að stöðva vélina. Akstursstefnan er valin með vendigír sem er ýmist stjórnað með lítilli sveif vinstra megin við stýrið eða einfaldri skipun í stýripinnanum. Annaðhvort er hægt að láta vélina skipta sjálf á milli gíra eða ökumaðurinn velur sjálfur milli þrepa með hnappi á pinnanum góða. Hljóðlát og fjaðrar vel Eitt af því sem ekki er til staðar í ökumannshúsinu er hávaði. Greinilegt er að hljóðeinangrunin er vönduð, því hávaðinn sem berst inn er engu meiri en í venjulegum fólksbíl. Peltor heyrnartólin er því hægt að skilja eftir heima. Vélin í þessum reynsluakstri var útbúin fjaðrandi framhásingu. Þökk sé fjöðrun í hásingu; sæti sem fjaðrar á fjóra vegu (upp/niður og fram/ aftur); og öflugrar hljóðeinangrunar er akstursupplifunin afslappandi. Ökumaðurinn er einangraður frá verstu höggunum sem verða við akstur á grófu yfirborði og áreynsla minnkar. Óhindrað útsýni Hægt er að fá þessar vélar útbúnar með ámoksturstækjum sem auka notkunarsvið þeirra til muna. Við notkun tækjanna kemur sér vel að á vélinni er topplúga sem tengist framrúðunni nær samskeytalaust. Notandinn getur því staflað rúllum leikandi í fjórar hæðir án þess að þurfa endalaust að rugga sér fram og aftur í sætinu til að skyggnast fram fyrir þakið. Ef sól er lágt á lofti er hægt að draga fyrir topplúguna. Sjálfvirk kúpling Við nákvæmnisvinnu getur verið erfitt að ná tökum á sjálfvirku kúplingunni; sérstaklega ef gírkassinn er stilltur á sjálfskiptingu. Bremsan virkar mikið til eins og „af eða á“ hnappur fyrir kúplinguna og nýtist hún því illa til að stilla hraðann af mjúklega. Þetta skánar örlítið þegar gírkassinn er tekinn úr sjálfskiptingu og valinn er lágur gír. Þessi eiginleiki er örugglega eitthvað sem er hægt að ná tökum á, en upplifunin er ólík fínvinnu á skotbómulyfturum eða bílum með hefðbundna sjálfskiptingu. Tölur Helstu mál eru 2.715 mm á hæð, 2.500 mm á breidd og 4.444 mm á lengd. Þyngd vélarinnar er 5.300 kg án aukabúnaðar og burðargetan er 3.700 kg. Leyfð heildarþyngd 9.000 kg. Claas Arion 470 með ámoksturstækjum og framfjöðrun kostar frá frá 14.600.000 krónum án vsk. Vélin í þessum prufuakstri var með aukabúnað eins og aflúrtaki og lyftu að framan og kostar með þeim útbúnaði 15.400.000 krónur án. vsk. Sérstakar þakkir fá bændurnir á Signýjarstöðum sem lögðu til dráttarvélina í þennan reynsluakstur. Sætið fjaðrar á fjóra vegu (upp/niður & fram/aftur). Fjöðrunin fram/aftur breytir miklu hvað varðar þægindi. Einn helsti kostur ökumannshússins er óhindrað útsýni um þakgluggann. Claas Arion 470 eru notendavænar dráttarvélar í millistærð. Smekklegt útlit og vel útfært vinnuumhverfi gera vélina að valmöguleika sem er vel þess virði að skoða. Myndir / ÁL Skýr skjár við hliðina á framrúðunni gefur allar helstu upplýsingar. Stýripinnann er hægt að forrita á þá vegu að notandinn þarf ekki að teygja sig í stjórnborðið við vinnu sem krefst mikillar endurtekningar. Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.