Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 19
að gamall karl á bænum byrjaði að klæða sig úr skóm
og sokkum. Þreif hann að því búnu vaskafat undan
rúmi sínu, hellti volgu vatni í það, og fór að þvo fæt-
ur sína, sem voru kolsvartir af skít.
Viðstaddir horfðu undrandi á aðfarir karlsins, en
létu þó á engu bera. Þegar fótaþvottinum var um það
bil að ljúka andvarpaði karlinn:
„Ætli maður eigi eftir að verða svo gamall, að
þurfa að gera þetta aftur?“
26.
ERLINGUR PÁLSSON, yfirlögregluþjónn, var ó-
feiminn og nokkuð góður með sig, en rækti starf sitt
af stakri kostgæfni. Þegar hann lést, var yfirlögreglu-
þjónum fjölgað í þrjá. Sagt er, að Erlingur hafi þá
komið fram á miðilsfundi og mælt þessi orð:
„Það þurfti þrjá.“
17