Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Side 23
35.
SVO SEM KUNNUGT ER þýddi Steingrímur
Thorsteinsson, þjóðskáld, Grimmsævintýri á sínum
tíma.
Þegar þau komu svo aftur út fyrir nokkrum árum
fékk Steingrímur J. Þorsteinsson, prófessor, bréf frá
skattstofunni. Þar var honum tilkynnt, að skattar
hans það árið hefðu verið hækkaðir, enda hefði hon-
um láðst að telja fram tekjur vegna þýðingarinnar.
36.
GUNNÞÓRUNN LITLA, 3ja ára, var með óþekkt
við mömmu sína. Þetta var rétt fyrir jólin og hátíðar-
undirbúningur í algleymingi. Eins og títt er um for-
eldra þegar jólin nálgast, hafði mamma hennar oft
fullyrt, að jólin kæmu ekki til hennar nema hún yrði
þæg.
Hún greip nú enn einu sinni til þessa ráðs og sagði:
„Ef þú verður með óþekkt væna mín, koma jólin
ekki.“
„Æ, hættu nú að tala um þessi fjandans jól,“ svar-
aði þá sú litla.
37.
ÚTVEGSBÆNDUR I GRlMSEY skiptu lengi við
fyrirtæki í Reykjavík, er hét Fiskur hf.
Einhverra hluta vegna varð fyrirtækið að senda
Grímseyingum svohljóðandi skeyti:
„Lengið frestinn. Fiskur.“
Skeytið þurfti að fara í gegnum margar símstöðv-
21