Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Side 28

Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Side 28
Þegar þetta atriði nálgaðist, sagði gamla konan, sem hafði séð myndina viku áður: „Skyldi hann nú ekki hafa vit á að læsa í þetta sinn?“ 49. HINN KUNNI HAGYRÐINGUR og gleðimaður, Haraldur Hjálmarsson frá Kambi, vann um tíma í Utvegsbankanum. Hann lenti eitt sinn á fylliríi og hafði þá orðið all djarftækur við útskrift ávísana. Hann kom þó til starfa daginn eftir og var fremur framlágur. I anddyrinu mætti hann Adolf Björns- syni, sem vatt sér að honum með gusti miklum og sagði: „Það er ljótt með tékkana." „Já, þetta er ekki nógu gott,“ svaraði Haraldur. „Nógu gott! Þetta er hryllilegt,“ sagði Adolf. „Já, það má kannski segja það,“ svaraði Haraldur, en reyndi þó að bera sig mannalega. „Við ætlum að hafa mínútu þögn í bankanum í hádeginu," sagði þá Adolf. „Nei, heyrðu mig nú,“ svaraði Haraldur, „er þetta ekki einum of langt gengið út af nokkrum helvítis ávísunum?“ Hann vissi auðvitað ekki, að þennan morgun höfðu Rússar ráðist inn í Tékkóslóvakíu, og að það voru þeir tékkar, sem Adolf var að tala um. 50. SIGURJÓN hafði lengst af verið mikið gefinn fyr- ir vín. Hann var nú orðinn aldraður, heyrnarsljór og kalkaður, og beið dauðans á sjúkrahúsi. 26

x

Íslenzk fyndni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.