Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Page 30
leið, sem lögreglan hafði leyft að gengin yrði, vatt
sér að honum lögregluþjónn og sagði: „Hvor skal du
hen?“
Grikkinn skildi auðvitað ekki orð og hrópaði það
eina, sem hann kunni í íslensku: „Lifi lsland!“
53.
MANNI NOKKRUM varð svo að orði, er hann
heyrði dóttur sína bölva all hressilega:
„Það er ég viss um, að Guð mundi snúa sér við í
gröfinni, ef hann heyrði til þín núna.“
54.
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON var eitt sinn í forsetatíð
sinni í heimsókn á Hrafnistu. Hann var þar kynntur
fyrir nokkrum vistmönnum, en þegar átti að kynna
hann fyrir Lása kokki, sem reyndar heitir Guðmund-
ur, vildi forsetinn láta í ljós, að hann þekkti Lása.
Hann kunni þó ekki við að kalla hann því nafni,
en sagði: „Ég þekki nú Nikulás matsvein.“
55.
NOKKRIR MENN komu eitt sinn á sveitabæ. Þeim
var vel tekið og kaffi borið fyrir þá, ásamt kaffi-
brauði. Þegar þeir höfðu gætt sér á veitingunum
nokkra stund, þreif húsmóðirin allt meðlætið af borð-
inu og sagði: „Jæja drengir, þá er það molinn.“
56.
HREINN HREINSSON, sonur Hreins Pálssonar,
söngvara og framkvæmdastjóra, var lengi skipstjóri
28