Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Side 34

Íslenzk fyndni - 01.10.1976, Side 34
Meðal þeirra var Ólafur Friðriksson, en hann var lítt hrifinn af hugmyndinni um sambandsslitin og lét það óspart í ljós. Einn viðstaddra ætlaði að kveða Ólaf í kútinn og sagði: „Það er ekkert að marka þig, Ólafur, því þú áttir danska ömmu.“ „Getur vel verið góði, en þú hefur sko aldrei átt neina ömmu,“ svaraði Ólafur og lét sér hvergi bregða. 63. ÞAÐ ER KUNNARA en frá þurfi að segja, að mikill rígur hefur lengst af verið milli Stykkishólms- búa og Ólafsvíkinga. Ólafsvíkingur nokkur var eitt sinn staddur í Stykk- ishólmi. Er hann kom að mjög stóru íbúðarhúsi, sem nýríkur heimamaður var að láta reisa, hreytti hann út úr sér: „Alltaf eru þeir jafn vitlausir þessir hólm- arar. Nú eru þeir að byggja félagsheimili þar sem engin bílastæði eru.“ 64. ÁRNI GRÉTAR FINNSSON, lögfræðingur, Stef- án Gunnlaugsson, alþingismaður, og Kristinn Ó. Guð- mundsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sátu eitt sinn inni á Nausti og skröfuðu margt. Varð þeim tilrætt um nýlátinn merkismann að nafni Ágúst. „Hann var svo ansi hrifinn af þér,“ segir Árni við Stefán. „Jæja,“ svarar Stefán, „ég held hann hafi verið ágætismaður.“ „Já, já. En honum gat nú skjátlast," varð þá Árna að orði. 32

x

Íslenzk fyndni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.