Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 8
kristinnpall@frettabladid.is
HAFNARFJÖRÐUR Á nýjasta fundi
bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar
kom fram að starfsfólk vantar á
ellefu af 17 leikskólum bæjarins.
Alls eru 25 stöðugildi laus í tveimur
þriðju af leikskólum Hafnarfjarðar.
Fjöldi fólks, bæði faglært og ófag-
lært, hefur sagt upp störfum í leik-
skólum bæjarins á síðustu árum.
Þetta kom fram í svari við fyrir-
spurn Hildar Rósar Guðbjargar-
dóttur, bæjarfulltrúa Samfylking-
arinnar.
„Það eru þarna ellefu leikskólar
sem eru ekki fullmannaðir, til að
bera þetta saman við Reykjavíkur-
borg, þar sem það hefur verið mjög
hávær umræða um þetta og niður-
stöðurnar eru mjög sorglegar. Þetta
eru grafalvarlegar tölur og þetta
bitnar á starfsfólki, börnunum og
fjölskyldunum,“ segir Hildur Rós, í
samtali við Fréttablaðið.
„Í Reykjavík vantar 90 starfs-
menn á 80 leikskólum þannig að
hlutfallið í Hafnarfirði er talsvert
hærra. Þessar tölur vekja áhyggjur
hjá okkur þar sem við höfum verið
að tala fyrir leikskólamálum í
bæjar félaginu.“
Í bókuninni talar Hildur um áhrif
deilna innan meirihlutasamstarfs
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
þegar kemur að leikskólamálum og
kallar eftir því að undið sé ofan af
þessum vinnubrögðum á kjörtíma-
bilinu. Hún segir stöðuna erfiða.
„Við höfum fengið upplýsingar
frá stéttarfélaginu um að starfsfólk
á leikskóla í Hafnarfirði sé á lakari
kjörum en í nágrannasveitarfélög-
um og starfsaðstæðurnar fara sífellt
versnandi með aukinni manneklu.
Það sem af er ári hafa þrjátíu leik-
skólarakennarar í Hafnafirði sagt
upp störfum og það þrengir sífellt
að þessum hópi.
Við erum að missa kennarana og
foreldrarnir eru að koma til okkar
að lýsa yfir áhyggjum. Fyrir vikið
var þetta lagt fram til að vekja
athygli á þessu og tryggja að þetta
yrði í fjárhagsáætlunargerð, hvern-
ig við getum bætt starfsumhverfi
og aðstæður á leikskólum í Hafnar-
firði,“ segir Hildur við Fréttablaðið.
n
64%
leikskóla í Hafnarfirði
eru eru ekki fullmann-
aðir
24,6
19,3
13,9
8,2
6,2
5,7
iPad:
31,9
Mac:
35,2
Nærhlutir (e. wearables), heimili og aukahlutir*: 38,4
Þjónusta:**
68,4
iPhone:
192,0
‡
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
37,5
42,9
65,2
108,2
156,5
170,9
182,8
233,7
215,6
229,2
265,6
260,2
274,5
Samtals***:
365,8
Tim Cook hefur þrefaldað stærð Apple á tíu árum
Sala Apple á heimsvísu (milljarðar Bandaríkjadala, fjárhagsár)
25. ágúst: Tim
Cook skip-
aður eftir-
maður Steve
Jobs sem
forstjóri.
Jobs deyr úr
krabbameini
í brisi sex
vikum síðar.
*Meðal annars AirPods, Apple Watch og Home Pods. †Meðal annarsApp Store, iTunes,
Apple Pay, iCloud vistun, áskriftir á borð við Apple Music, Apple Arcade, Apple TV+,
Apple News+; Apple Fitness+ og ábyrgðir eins og AppleCare. ***Tölur virðast ekki
stemma vegna námundunar. Heimildir: Statista, Dazeinfo, Statistic, Investopedia.
©GRAPHIC NEWS
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra
húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr.
577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til:
• viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum, ásamt öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa
menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
• byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningar húsa og
mannvirkja, og miðlunar upplýsinga um þær.
• sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í
samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016
um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í
byggð.
Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna
byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs
ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna
á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2022. Umsóknir sem berast
eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af
hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit
um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og
varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir
Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf
um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á
www.husverndarstofa.is).
Suðurgötu 39, 101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2023
Margir aðdáendur tölvufyrir-
tækisins Apple óttuðust að
gengi þess yrði brösótt eftir
að Steve Jobs hvarf úr brúnni.
Uppgangur fyrirtækisins
undir stjórn Jobs hafði verið
ævintýralegur. Ekkert lát
hefur hins vegar orðið á vel-
gengninni og Apple er verð-
mætasta fyrirtæki í heimi.
olafur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Tim Cook hefur nú stýrt
Apple í ellefu ár. Hann var útnefnd-
ur eftirmaður Steve Jobs síðsumars
2011, er sá síðarnefndi háði sitt
dauðastríð, en Jobs lést af völdum
krabbameins í brisi 5. október það
ár.
Tim Cook hóf störf hjá Apple
árið 1998, en áður starfaði hann hjá
tölvufyrirtækinu Compaq. Seinna
lýsti hann þessu svo: „Ég hlustaði
á hjartað þennan dag snemma árs
1998, en ekki vinstra heilahvelið
eða einu sinni fólkið sem þekkti mig
best … það voru ekki liðnar fimm
mínútur af viðtalinu við Steve [Jobs]
þegar mig langaði bara að láta vaða
og fara til Apple.“
Hjá Apple gegndi Cook til að
byrja með ýmsum stjórnunar-
stöðum og stuðlaði meðal annars
að margra milljóna dala sparnaði,
með því að endurskipuleggja verk-
smiðjur og vöruhús félagsins. Hann
gerði líka langtímasamninga við
framleiðendur leifturminniskubba
og tryggði nauðsynlega íhluti fyrir
iPod og síðar iPhone og iPad.
Jobs barðist við briskrabbamein
og hafði betur, en meinið kom aftur
og þegar heilsu hans tók að hraka
verulega valdi hann Cook sem eftir-
mann sinn og tók Cook við starfinu
25. ágúst 2011. Jobs dó sex vikum
síðar, 5. október.
Frá því að Cook tók við keflinu
af Jobs hefur vöxtur Apple verið
hraður og vaxandi. Gagnrýnendur
hans segja hins vegar að mjög skorti
á þá nýsköpun sem einkenndi Apple
undir Steve Jobs.
Þeir neikvæðustu fárast yf ir
því að árlegar kynningar Apple á
nýjum vörum séu nú lítið meira
en kynningar á uppfærslum á eldri
tækni, ólíkt því sem var á tíma Jobs
þegar tekin var gríðarleg áhætta og
kynntar til leiks vörur sem breyttu
heiminum, á borð við iPod, iMac,
iPhone og iPad.
Fjárfestar hlæja hins vegar alla
leiðina í bankann. Tekjur Apple á
fjárhagsárinu 2021 námu meira en
Eftirmaður Steve Jobs hefur
gert Apple stærst í heimi
Tim Cook og Steve Jobs árið 2007. Cook tók við af Jobs sem forstjóri 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
milljarði Bandaríkjadala á hverjum
einasta degi ársins. Í síðasta mánuði
kynnti Apple iPhone 12 og Apple
Watch 8, auk iOS 16 stýrikerfisins
fyrir snjalltæki og watchOS 9 stýri-
kerfisins fyrir úrin. n
Áfangar í sögu Apple
n 1. apríl 1976 Apple lítur dagsins ljós.
n Janúar 1984 Macintosh-tölvan kynnt.
n 1985 Steve Jobs bolað út úr Apple.
n Júlí 1997 Steve Jobs snýr aftur sem forstjóri.
n Ágúst 1998 iMac kynntur.
n Jan. og okt.2001 iTunes og iPod.
n Mars 2001 OS X.
n Janúar 2007 iPhone og Apple TV.
n Apríl 2010 iPad.
n Ágúst 2011 Tim Cook verður forstjóri.
n September 2014 iPhone 6 og Apple Watch.
n September 2016 Nýir AirPods.
n September 2017 iPhone X.
n Ágúst 2018 Apple verður verðmætasta fyrirtæki sögunnar.
n Mars 2019 Apple beinir sjónum að sölu á þjónustu.
n Mars 2019 Apple-kreditkort.
Fjölmargir leikskólakennarar hafa
sagt upp störfum í Hafnarfirði það
sem af er ári. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Staða leikskólamála í
Hafnarfirði sé alvarleg
8 Fréttir 15. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ