Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 45
UPPBYGGING SPENNANDI
HRINGRÁSARVERKEFNIS
Viltu bætast í öflugan hóp
reynslumikilla einstaklinga við
uppbyggingu stærsta landeldis á
Íslandi, þar sem ný vistvæn hugsun
og tækni ráða för?
Störf í boði:
Samherji Fiskeldi hefur verið stórframleiðandi á laxi og bleikju í yfir 20 ár og rekur
eingöngu landeldisstöðvar. Í undirbúningi er nú 40.000 tonna landeldisstöð sem
framleiða mun hágæðalax með nýjustu tækni í glæsilegri aðstöðu. Staðsetning
stöðvarinnar í Auðlindagarðinum á Reykjanesi skapar einstök tækifæri til
fullnýtingar affallsstrauma m.a. frá jarðvarmavirkjunum. Hringrásarhagkerfi verður
leiðarljós og lægsta mögulega vistspor er markmiðið. Allt framleiðsluferlið verður á
sama stað, frá innsetningu hrogna að fullunnum hágæðaafurðum. Fyrsti áfangi af
þremur er þegar fjármagnaður en framkvæmdir munu hefjast á næsta ári og áætlað
að stöðin verði fullbúin árið 2032. Starfsstöðvar verða í Reykjavík og Reykjanesi
samhliða framkvæmdum.
Sviðsstjóri hönnunar og
framkvæmda
• Yfirmaður hönnunar 40.000 tonna
landeldis
• Verkefnastjórn á hönnunar- og
framkvæmdatíma
• Undirbúningur og eftirfylgni
verksamninga
• Framkvæmdaáætlun og
áfangaskipting
Menntun og reynsla:
Byggingarverkfræði eða sambærilegt.
Reynsla af stjórnun og stórum
verklegum framkvæmdum er skilyrði.
Stöðvarstjóri seiðaeldis
• Stöðvarstjóri í nýrri og glæsilegri
RAS-seiðastöð
• Hönnun, innkaup, framkvæmdir,
eftirfylgni og rekstur seiðastöðvar
Menntun og reynsla:
Háskólamenntun í fiskeldi, líffræði eða
sjávarútvegsfræði. Reynsla af rekstri
RAS-kerfa er nauðsynleg.
Stöðvarstjóri áframeldis
• Stöðvarstjóri í nýju og yfirbyggðu
40.000 tonna landeldi með
PRAS-kerfi
• Hönnun, innkaup, framkvæmdir,
eftirfylgni og rekstur áframeldis
Menntun og reynsla:
Háskólamenntun í fiskeldi, líffræði eða
sjávarútvegsfræði. Reynsla af fiskeldi er
nauðsynleg.
Verkefnastjóri vinnsluferla
• Hönnun og bestun vinnsluferla
• 40.000 tonn framleidd árlega
• Verkefnastjórn á hönnunar- og
framkvæmdatíma
• Undirbúningur verksamninga vegna
vinnslubúnaðar
• Eftirfylgni uppsetninga og prófana
Menntun og reynsla:
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
Þekking á Inventor/Solidworks og
Autocad.
Leiðtogi öryggismála
• Skipulag og umsjón
öryggishönnunar
• Áhættugreining verkferla
• Samræming þjálfunarskrár
starfsfólks
• Þjálfun starfsfólks og skipulag
námskeiða
• Eftirfylgni öryggissamninga á
framkvæmdatíma
Menntun og reynsla:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s.
á sviði matvæla- eða verkfræði.
Þekking og reynsla af öryggisstjórnun,
gæðastjórnun og rekstri gæðakerfa.
Gagnasérfræðingur
• Uppbygging vöruhúsa gagna
• Eldiskerfi
• Vinnslukerfi
• SCADA-kerfi
• Fjárhagskerfi
• Skýrslugerð í PowerBI
Menntun og reynsla:
Tölvunarfræði eða verkfræði. Reynsla af
gagnagreiningu og skýrslugerð er
nauðsynleg.
Dýralæknir
• Yfirdýralæknir Samherja Fiskeldis
• Umsjón með líffræðilegum þáttum,
sýnatökum og heilbrigðiseftirliti í
eldisstöðvum
• Bestun verkferla til að tryggja
heilbrigði eldisstofns
• Gerð heilbrigðisáætlana fyrir hverja
eldisstöð í samstarfi við
stöðvarstjóra og gæðastjóra fiskeldis
• Símenntun starfsfólks í almennri
fiskavelferð, umgengni og
sjúkdómavörnum.
Menntun og reynsla:
Háskólapróf í dýralækningum.
Umsóknir og kynningarbréf skulu send á www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2022.
Upplýsingar um störfin veita Hallveig Hafstað Haraldsdóttir,
hallveig@hagvangur.is og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is.
For English:
Byggingarverkfræðingur
• Byggingarverkfræðingur á hönnunar-
og framkvæmdasviði
• Forhönnun í samstarfi við eldissvið
• Eftirlit og samþætting hönnunar
Menntun og reynsla:
Byggingarverkfræði eða sambærilegt.
Þekking á lagnahönnun er mikill kostur.