Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 22
Knattspyrnuáhugafólk á í vændum stór-
kostlegan sunnudag í sófanum, en hver
stórviðureignin rekur aðra í deildum Evr-
ópu. Hér á Íslandi eru úrslitin ráðin í efri
hlutanum, en neðri hlutinn er æsispenn-
andi. Á Spáni er sjálfur El Clásico, í Frakk-
landi er Le Classique og á Englandi eru
öll stærstu liðin í eldlínunni, þar sem
rúsínan í pylsuendanum er stórleik-
ur Liverpool gegn Manchester City.
Á Englandi
Það verður blásið til veislu í enska boltanum
á sunnudag. Klukkan 13.00 fer ríkasta knatt
spyrnufélag í heimi, Newcastle, í heimsókn á Old
Trafford. Gengi Manchester United hefur verið
með nokkrum ágætum undanfarnar vikur, en
eftir slæmt tap gegn Manchester City svaraði
liðið fyrir sig gegn Everton um síðustu helgi. Vilji
lærisveinar Erik Ten Hag halda í við efstu liðin,
þarf liðið að klára Newcastle á heimavelli. Á sama
tíma fer topplið Arsenal í heimsókn til Leeds
United, en Arsenal hefur unnið átta af níu fyrstu
leikjum tímabilsins. Stuðningsmenn Arsenal eru
farnir að leyfa sér að láta sig dreyma um gömlu
góða dagana þar sem Arsenal keppti um alla titla.
45 mínútum eftir að flautað verður af á Old
Trafford og Elland Road, hefst veislan fyrir alvöru
á Anfield í Liverpool. Englandsmeistarar, Man
chester City heimsækja þá vængbrotið Liverpool
lið. Liverpool er fyrir helgina 14 stigum á eftir
toppliði Arsenal og má ekki við því að misstíga
sig mikið meira. Liverpool verður án lykilmanna
en Joel Matip, Trent AlexanderArnold og Luis
Diaz, verða allir fjarverandi. Liðið er hins vegar
með sjálfstraust eftir öruggan sigur á Rangers í
vikunni og vonast stuðningsmenn liðsins eftir
því að varnarmenn liðsins geti stoppað Erling
Haaland.
Á Spáni
Stærsti leikur ársins á Spáni hefur aðeins
tapað sjarmanum síðustu ár, eftir að einvígið
ógurlega á milli Cristiano Ronaldo og Lionel
Messi tók enda. Leikurinn er þó risastór og má
búast við blóðugri baráttu á Santiago Bernabeu
þegar flautað verður til leiks klukkan 14.15 á
sunnudag. Barcelona er á toppi deildarinnar með
22 stig en Real Madrid hefur sama stigafjölda
en ögn lakari markatölu. Börsungar eru sært
dýr eftir vikuna, en liðið er svo gott sem úr leik í
Meistaradeildinni, fjárhagslegt högg fyrir félag í
fjárhagslegri krísu.
Leiktíminn vekur athygli, en á Spáni hafa menn
verið að horfa meira og meira í Asíumarkaðinn,
leiktíminn hentar því vel í það. Bæði lið geta
spilað skemmtilegan sóknarbolta en Real Ma
drid hefur þó sannað að liðinu líður ágætlega að
liggja til baka og sækja hratt.
Á Íslandi
Ef fólk óttast það að fá legusár í sófanum
á sunnudag er hægt að hoppa í úlpuna og
skella sér á völlinn á Íslandi. Klukkan 17.00
tekur Fram á móti ÍBV í Úlfarsárdalnum
en Eyjamenn munu með sigri tryggja veru
sína í deildinni á næstu leiktíð. Fram siglir
svo lygnan sjó. 19.15 er komið að leik Vals og
Stjörnunnar í efri hlutanum, en hvorugt
liðið hefur að neinu að keppa, í
slíkum leik er hægt að búast við
miklu fjöri þar sem bæði lið
munu sækja til sigurs.
Annars staðar
Stærsti leikur ársins í Frakklandi fer fram
á sunnudagskvöld klukkan 18.45 þegar
PSG tekur á móti Marseille. Það gustar um
Parísarliðið nú þegar launahæsti leikmaður
liðsins, Kylian Mbappe vill ólmur losna frá
félaginu. Mbappe lét það leka út í vikunni
að hann vildi helst losna frá PSG strax í
janúar, en félagið gerði hann að launa
hæsta fótboltamanni í heimi í sumar. Í
Belgíu er stórleikur þegar Anderlect tekur
á móti Club Brugge. Ef fólk hefur ekki
fengið nóg af fótbolta þegar líða tekur á
kvöldið er hægt að fylgjast með úrslita
keppninni í MLS deildinni í Bandaríkj
unum, sem fer á fulla ferð um helgina.
n Dagskráin
13.00 Aston Villa Chelsea
13.00 Leeds Arsenal
13.00 Man. Utd Newcastle
13.00 Southampton West Ham
15.30 Liverpool Man. City
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
Sófasunnudagur af bestu gerð
22 Íþróttir 15. október 2022 LAUGARDAGUR